Vikan


Vikan - 05.10.1999, Qupperneq 60

Vikan - 05.10.1999, Qupperneq 60
TEXTI: S/EVAR HREIÐARSSON SYNGUR OG DANSAR Alicia Silverstone syngur og dansar í næstu mynd sinni, sem heitir Love's Labours Lost og er byggð á leikriti eftir William Shakespeare. Myndin verður frumsýnd á næsta ári og það er Shakespeare aðdáandi númer eitt, Kenneth Branagh, sem leikstýrir henni. Alessandro Nivola leikur á móti Silverstone í myndinni og hann segir að hún sé sannkölluð Ginger Rogers nútímans. "Við létum ekki nægja að leika sjálf í dansatriðunum heldur sungum við líka. Þetta er ekki ein af þessum myndum þar sem leikararnir bara hreyfa varirnar. Þetta er okkar söngur sem heyrist," segir Nivola og bætir við að hann hafi hrifist mjög af Silverstone. "Við skemmtum okkur konunglega. Þetta var eins og við hefðum ferðast aftur í tímann og vær- um stödd á fjórða áratugnum. Við dáum bæði Fred og Ginger og gerðum okkar besta til að standast þeim snúning." KYNBOMBA Á NÝ Susan Sarandon fagnar 55 ára afmælinu hinn 4. október en hún þykir enn ein sú kynþokka- fyllsta í Hollywood. Fyrir nokkrum árum lék hún í hverri myndinni af annarri, þar sem gert var út á kynþokka hennar en undanfarið hefur hún valið hlutverk, sem krefj- ast meiri leikhæfileika og hún hefur verið í full- orðinslegri hlutverkum. Sarandon segist vera búin að fá nóg af þessu og í næstu mynd sinni ætl- ar hún að krydda aðeins ímyndina á ný. "Mér fannst ég vera búin með kvótann af kynþokkalausum konum með engan farða. Það er kominn tími til að klæða sig í gjálífskjólana," segir Sar- andon, sem leikur ítalska greifynju sem fiekar menn fyrir peninga í myndinni Cradle Will Rock, en hún verður frumsýnd í Bandaríkj- unum síðar á árinu. Leikstjóri myndarinnarerTim Robbins, sambýlismaður og barnsfaðir Sarandon. Sarandon segist frelsinu fegin eftir að hafa leikið nunnur og húsmæður í undanförnum myndum. "Ég elska að leika vondu konuna. Þá þarf maður ekki að hafa áhyggjur af því að vera alltaf einlægur og góður," segir Sarandon. HUGSAR EKKI BARA UM PENINGA Breska leikkonan Kate Winslet er í miklu uppáhaldi hjá harðjaxlinum Harvey Keitel, sem leikur á móti henni í myndinni Holy Smoke. "Ég ber mikla virðingu fyrir Kate," segir Keitel (60), sem leikur elskhuga hennar í mynd- inni. "í staðinn fyrir að nýta sér vin- sældir Titanic til að græða á tá og fingri valdi hún að leika í ódýrum myndum sem eru krefjandi og þroska hana sem leikkonu." Winslet er sam- mála Keitel um að stærðin skipti ekki alltaf máli og segist sátt við þau hlut- verk sem hún hefur valið síðan hún lék í gróðamestu mynd allra tíma. "Ég vel hlutverk eftir því hvernig persón- urnar eru, ekki eftir því hversu mikla peninga þetta kostar. Ég er viss um að ég á einhvern tíma eftir að leika aftur í stórri Hollywood mynd en nú tel ég mikilvægara að leika í myndum sem mér er sjálf annt um." Nú er Winslet í London að leika í myndinni Quills, sem fjallar um klámhundinn Marquis de Sade. Sigourney Weaver er ekkert lamb að leika sér við. Þessi hávaxna leikkonan æfir nú sparkbox af miklum móð með einkaþjálfara í Los Angeles. Weaver heldur upp á fimmtugsafmælið á næstu dögum og ætlar ekki að slá slöku við í leiklistinni. I næstu mynd sinni leikur hún á móti Woody Allen í gamanmyndinni Company Man. Leik- stjórar myndarinnar, þeir Doug McGrath og Peter Askin, hafa nú farið í mál gegn framleiðendum myndar- innar vegna þess að þeir fengu ekki að ráða hvernig hún var klippt. KOKHRAUSTUR LEIKSTJÓRI Antonio Banderas hefur tröllatrú á hæfileikum sínum sem leikstjóri. Frumraun hans var myndin Crazy in Alabama þar sem hann leikstýrði eig- inkonu sinni, Melanie Griffith. Þrátt fyrir að myndin fengi ekkert sérstak- lega góðar viðtökur hjá gagnrýnend- um þá ætlar Banderas ekki að leggja árar í bát. Nú hefur hann hug á að leikstýra sjónvarpsþáttum sem verða byggðir á sex óútgefnum sögum eftir kólumbíska Nóbelskáldið Gabriel Garcia Marquez. Banderas segist hafa fengið þessa hugmynd eftir að hafa snætt kvöidverð með rithöfundinum. "Mér fannst sögurnar ekki henta fyrir hvíta tjaldið en þær eru efni í úrvals framhaldsþætti," segir Banderas. BARN í MELROSE Josie Bissett, sem lék Jane í Melrose Place, hefur tekið sér frí frá leiklist- inni. Bissett eignaðist sitt fyrsta barn í júlí og sinnir nú syninum öllum stund- um. Nú hefur framleiðslu Melrose þáttanna verið hætt og Bissett var ekki sú eina í fjölskyldunni sem missti vinnuna þegar Melrose hætti. Eigin- maður hennar, Rob Estes, lék Kyle McBride í þáttunum. Hann er nú aö reyna fyrir sér í nýjum þáttum sem kallast Outreach en ekki er búist við að þeir nái miklum vinsældum. Afmælisbörn vikunnar 4. okt.: Rachel Leigh Cook (1979), Alicia Silverstone (1976), Liev Schreiber (1967), Armand Assante (1949), Susan Sarandon (1946), Anne Rice (1941) 5. okt.: Kate Winslet (1975), Josie Bissett (1970), Guy Pe- arce (1967), Daniel Baldwin (1960), Bob Geidof (1951) 6. okt.: Elisabeth Shue (1963), Britt Ekland (1942) 7. okt.: John Mellencamp (1951), Oli- ver North (1943) 8. okt.: Matt Damon (1970), Sigourney Weaver (1949), Chevy Chase (1943), Jesse Jackson (1941) 9. okt.: Sean Lennon (1975), Scott Bakula (1954) 10. okt.: Jodi Lyn O'Keefe (1978), Antonio Banderas (1960), Peter Coyote (1941) VITNIAÐ GOTUBARDAGA Matt Damon trúði vart eigin augum þegar hann varð vitni að götubar- daga í New York í sumar. Hann var að leika með Gwyneth Paltrow í mynd- inni The Talented Mr. Ripley og þau horfðu undrunaraugum á slags- mál sem brutust út í ná- grenni við tökustaðinn. Kvik- myndaliðið var að vinna við Central Park og stoppa þurfti umferð á meðan. Ökumenn voru ekki ánægðir og úr varð mikill flautukonsert. Þegar bílunum var loks hleypt framhjá stóð einn leigubíll stopp og hindraði aðra bíla. Jakkaklæddur maður stökk út úr bíl sínum og öskraði nokkur vel valin fúkyrði. Skipti engum togum að hann reif leigubíl- stjórann út úr bílnum og byrj- aði að lumbra á honum. Minnstu munaði að Damon og Paltrow lentu í áflogunum þeg- ar þau reyndu að skakka leik- inn en mennirnir héldu áfram að slást þar til lögreglan mætti á staðinn og stöðvaði bardag- ann. Enginn var handtekinn. wí0RÐ í HORN AÐ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.