Vikan - 25.01.2000, Side 14
konur og lifa lífi hinnar önn-
um köfnu konu sem vinnur
bæði innan og utan heimilis-
ins. Pær eru allar ófeimnar og
glaðlyndar og síðan dagatalið
kom fyrir almenningssjónir
eru þær orðnar mjög veraldar-
vanar og veigra sér ekki við að
mæta í viðtöl og myndatökur
(fullklæddar!) í fjölmiðlum.
Þær vinkonurnar hafa þó
bundist samtökum um að fara
aldrei í viðtöl þar sem tilgang-
urinn er greinilega að gera
þær og málstaðinn tortryggi-
legan, en dagatalið var gert til
að safna fé til góðgerðarstarf-
semi. Konurnar höfnuðu til
dæmis tilboði Jerry Springer
og Eurotrash um háar fjár-
hæðir fyrir að koma fram í
þessum þáttum þar sem þær
töldu að það myndi eyðileggja
ímynd þeirra og að tilgangur-
inn með dagtalinu yrði mis-
túlkaður og honum snúið upp
í andhverfu sína.
Konurnar í Rylstone hafa
fengið margs konar tilboð frá
karlablöðum, bæði um að
myndirnar úr dagatalinu yrðu
birtar og um að þær sitji fyrir
á nýjum myndum, en þær hafa
hafnað þeim öllum.
Þótt nú sé árið 1999 liðið fyrir
nokkru eru margir enn með
dagatalið uppi. Meira að segja
presturinn í Rylstone í Yorks-
hire uar með dagatal með
nöktum konum uppi á uegg
árið 1999 og skammaðist sín
ekkert fyrir bað, að eigin
sögn. Hann sagði að par væru
fagrar myndir af fögrum, eðli-
legum konum og pað uæri ekk-
ert klúrt við pær.
onurnar sem
fengu þessa
frábæru fjáröfl-
unarhugmynd
og þorðu að
hrinda henni í framkvæmd
búa í litlu sveitaþorpi þar sem
kindur eru á beit innan um
legsteinana við kirkjuna og
endurnar vagga eftir gang-
stígnum við þorpstjörnina.
Pessar konur eru á miðjum
aldri og þú gætir rétt eins
mætt „ungfrú apríl" þegar
hún stígur út úr strætisvangin-
um eða „ungfrú ágúst" þegar
hún er að raða vörum í inn-
kaupavagninn í búðinni.
Þessar konur eru nútíma-
14 Vikan
„Við höfum auðvitað fengið
mismunandi viðbrögð frá
fólki, en flest hafa þó verið
mjögjákvæð," segir Rita
Turner (55 ára). Einhver
spurði mig hvort ég áliti mig
vera kynþokkafulla fyrirsætu
eftir útkomu dagatalsins. Því-
lík heimska - ég áleit sjálfa
mig ekki einu sinni kynþokka-
fulla þegar ég var tvítug!"
Frægur breskur sálfræðing-
ur lét hafa eftir sér að konurn-
ar ættu eftir að sjá eftir þessu
seinna. Hvað
segja konurnar
um það nú þeg-
ar dagatalið hef-
ur hangið uppi á
vegg hjá fólki í
heilt ár? Rylsto-
ne konurnar
hittust í garði
Lyndu Logan
sem er 56 ára
myndlistarkona
og eigandi gall-
erís.
„Nei, við sjá-
um ekki eftir
neinu,- engin
okkar," segir
Lynda. „Við
höfum allar lært
mikið á þessu ári
og við höfum
öðlast mikið
sjálfstraust og
kynnst mörgu."
Konurnar
kunna allar
skemmtilegar
sögur að segja
frá þessu við-
burðaríka ári í
lífi þeirra:
„Jú, auðvitað hefur fólki
brugðið í kringum okkur. Son-
ur minn, 23 ára, sem býr í
Astralíu kom heim úr vinnu
eitt kvöld og kveikti á sjón-
varpinu og það fyrsta sem
hann sá var mynd af mér nak-
inni á skjánum. Honum brá
auðvitað," segir Ros Fawcett
(50 ára).
„Eg fór að sækja dóttur
mína í skólann einu sinni og
þá kom kennarinn hennar til
mín mjög alvarlegur í bragði
og sagði að stúlk-
an notaði mjög
einkennilegar að-
ferðir til að vekja
á sér athygli, hún
segði skólafélög-
unum að mamma
hennar væri nekt-
arfyrirsæta," segir
Leni Pickles (44
ára).
„Við fengum
þúsundir bréfa þar
sem fólk þakkaði
okkur fyrir fram-
takið. Þau voru
bæði frá körlum
og konum sem
sögðust dást að
því að fullorðnar
konur skyldu þora
að sýna heiminum
að fegurð væri
ekki bara fyrir
ungt fólk,"segir
Lynn Knowles (50
ára).
Konurnar neita
því að dagatalið
hafi breytt afstöðu
þeirra gagnvart
eigin líkama. „Ef
Nokkrar
myndir úr
dagatalinu.