Vikan


Vikan - 25.01.2000, Síða 28

Vikan - 25.01.2000, Síða 28
Einn af níhari mönnum Jiessa lands hirti arfinn mmn Eg missti báða foreldra mína ung. Pabbi dó begar ég uar enn í grunnskóia og bar bað mjög brátt að. Það uar okkur áfaii begar hann dó buí mamma hafði ueríð mikið ueik en hann alltaf hraustur og allir bjuggust uið að hún færi á undan. Sjúk- dómur mömmu dró hana suo til dauða begar ég uar átján ára. Við systurnar reyndum að styrkja huer aðra en ég er yngst briggja systra. Ég bió hjá elstu systur minni meðan ég lauk menntaskóla en begar ég byrjaði í Háskólanum keypti ég mér litla bríggja herbergja íbúð fyrir arfinn sem ég hlaut eftir foreldra mína. Háskólanum kynntist ég yndislegum strák sem ég varð strax nijög ástfangin af. Hann var sonur eins af ríkari mönnum þessa lands og barst mikið á. Hann keyrði um á mjög flottum bíl og var alltaf glæsilega klæddur. Hann virtist aldrei skorta fé og tilhugalífið var dá- samlegt. Við fórum út að borða á flottum veitingahúsum og hann jós yfir mig dýrum og fal- legum gjöfum. Við vorum búin að vera saman í rúmt ár þegar hann flutti inn til mín og hann fór fljótlega að setja mark sitt á íbúðina. Gamla sófasettið þeirra pabba og mömmu var ekki nógu gott svo hann keypti leðurklætt Chesterfield sófa- sett, sófaborð og stóran stofu- skáp í stíl. Rándýr og flott hljómflutningstæki voru keypt, sjónvarp, myndbandstæki, tölva, fax og þráðlaus sími. Eld- húsið fyllti hann af dýrum raf- magnstækjum allt frá rafmagns- safapressu upp í fullkomnustu gerð af örbylgjuofni. Ég spurði hann oft hvort honum þætti þetta ekki of mik- ið og of dýrt. Ég sagði honum að ég vildi fara hægar í sakirnar og kaupa minna. Hann hló að því öllu og sagðist síst af öllu þurfa að hafa áhyggjur af pen- ingum. Hann stofnaði fyrirtæki ásamt vini sínum og þá minnk- aði eyðsla hans í alla vega hluti. Hann sagðist þurfa á öllu sínu að halda til að styrkja rekstur- inn og ég trúði því vel því þeir höfðu innréttað stórt húsnæði með aðstoð innanhússarkitekts og þar var hvergi til sparað svo ímynd fyrirtækisins mætti vera sem glæsilegust. Sjálf kláraði ég námið og fékk fljótt góða vinnu í mínu fagi. Laun mín voru þokkaleg miðað við það sem gengur og gerist á vinnumark- aði á íslandi og við komumst ágætlega af á mínum launum um tíma. Þá kom að því að hann fór að kvarta undan að reksturinn gengi illa. Þeir seldu ágætlega sagði hann, en fyrirtækin sem keyptu af þeim greiddu seint og illa og meira lausafé vantaði inn í reksturinn. Hann bað mig að skrifa upp á lán til að fleyta þeim yfir erfiðan hjalla og ég samþykkti. Lánið var nokkuð hátt en hann fullvissaði mig um að þeir væru borgunarmenn og benti mér á að bíllinn hans væri heldur meira virði en upphæðin á láninu var. Sambýlismaðurinn uar bara stórt barn Við héldum áfram að lifa af laununum mínum því fyrirtækið gaf ekkert af sér. Ég kunni vel við fjölskyldu hans og litla syst- ir hans var nánast heimagangur hjá okkur. Okkur langaði að eignast barn sarnan og vorum farin að tala um að gifta okkur og láta verða af því að stofna fjölskyldu. Áður en af því varð kom hann til mín aftur og bað mig enn að skrifa upp á lán til að styrkja reksturinn. Ég var mjög treg til, enda taldi ég að reksturinn gengi illa og hafði þegar þangað var komið sögu litla trú á þessu fyrirtæki. Ég hafði einnig heyrt utan af mér að vinur hans væri að reyna að losa sig út úr samstarfinu. Hann gekk á eftir mér í nokkra daga og fékk mig loks til að skrifa upp á með því skilyrði að pabbi hans væri einnig ábyrgðarmað- ur. Það var smátt og smátt að renna upp fyrir mér að þessi sambýlismaður minn var algjör- lega óábyrgur í fjármálum. Ég fann að brestir voru komir í samband okkar. Ég horfði ekki á hann jafn blind af aðdáun og áður og það átti hann bágt með að þola. Hann brást illa við allri gagnrýni og ef ég gerði ekki eins og hann vildi túlkaði hann það þannig að ég elskaði hann ekki lengur. Mér fannst þetta barnalegt og í raun hálf bjálfa- legt viðhorf. Að mínu mati kom það ást ekkert við þótt maður gagnrýndi makann af og til eða vildi ræða hlutina. Ég fann að ég var satt að segja orðin hund- leið á þessu stóra barni. Sambúð okkar hélt áfram í tæpt ár eftir þetta en þá gafst ég endanlega upp. Hann gerði ekkert sérstakt sem gekk end- anlega fram af mér heldur var þetta frekar að ég dró mig smátt og smátt í hlé og að lok- um fann ég að ég átti ekkert sameiginlegt með þessum manni lengur og þá sleit ég sambandinu. Ég krafðist þess að hann tæki með sér öll dýru tækin sem hann hafði keypt og húsgögnin. Fljótlega kom í ljós að það hafði verið viturleg ráð- stöfun af minni hálfu því nokkrum vikum eftir að hann flutti komst ég að því að fæst var að fullu greitt og sumt hafði aðeins verið borgað inn á og síðan ekki söguna meir. Ég var óskaplega fegin að geta vísað á hann en mér leið samt lengi illa þegar fjárnámskröfurnar á hann streymdu inn í póstkass- ann minn. Faðirinn ekki ábyrgur fyrir skuldum sonarins Lánin sem ég hafði skrifað upp á fyrir hann voru bæði í vanskilum og tvisvar hafði ég greitt af þeim til að forðast frekari vandræði. Ég varð hins vegar einnig að hugsa um mig svo ég gekk hart að honum að selja bílinn og borga a.m.k. ann- að lánið. Hann sagði mér þá að bíllinn væri alls ekki hans eign. Hann var skráður á nafn móður hans en hann fékk að nota hann að vild. Þetta var mikið áfall. Ef ég hefði vitað þetta á sínum tíma er ég alls ekki viss um að ég hefði skrifað upp á lánið. Ég talaði þá við mömmu hans og fór fram á að þau greiddu eitt- hvað af þeim afborgunum sem komnar voru í skuld á þessum tveimur lánum. Mamrna hans sló í og úr og vildi ekki gefa mér neitt ákveðið svar. Ég gaf 28 Vikan

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.