Vikan - 25.01.2000, Page 39
andi (tamas) fæða. Hún er
mikið unnin (sýrð, söltuð,
niðursoðin o.s.frv) og letur
fólk til athafna, það verður
feitt og síþreytt. Allt gos,
sælgæti og hvítt hveiti fellur
t.d. undir það að vera tamas
eða letjandi.
Ef við getum ekki fengið
ferskar matvörur skulum við
frekar sætta okkur við
frosna matvöru en niður-
soðna, sultaða eða sýrða.
Einföld fæða og einföld
fæðusamsetning hentar lík-
amanum betur en mikið
samansull og meðlæti.
Hrein fæða stuðlar að
réttri losun eiturefna sem er
nauðsynleg til að ná há-
marksupptöku líkamans á
nauðsynlegum bætiefnum úr
fæðunni. Einn frægur jógi
mælti þau fleygu orð að
hinn vestræni heimur væri
ofalinn, en vannærður. Vest-
urlandabúar borða mikið af
mat sem er letjandi, fá lítið
af bætiefnum úr honum og
eru almennt séð of feitir.
Sameinuðu þjóðirnar hafa
greint offitu sem eitt stærsta
heilbrigðisvandamál hins
vestræna heims á eftir reyk-
ingum og eyðni. Sumir
sjúkdómar eru velmegunar-
sjúkdómar og það vekur
vissulega upp spurningar um
þau lífsgæði sem þjóðir státa
sífellt af.
Hvernig við borðum
Eins og fram er komið
skiptir vissulega máli hvað
við borðum en það skiptir
ekki síður máli hvernig við
borðum. Jógafræðin mæla
með algjörri athygli við
borðhald. Við reyn-
um að sitja við
máltíðir,
Einfaldar ráðleggingar jógafræðanna:
• Lærðu að anda djúpl. Súrefnið er grundvallarorkugjaf-
inn og meðal annars undirstaðan að góðri meltingu.
• Reyndu að borða hrein og fersk (sattva) matvæli.
Forðastu sérstaklega letjandi fæðu.
• Lykilspurning sem vert er að hafa í huga við innkaup:
Hversu nálægt upprunanum er þessi fæða?
• Sýndu matarvenjum þínum fulla alhygli.
• Sýndu matnum virðingu og mundu að þú erl hluti af líf-
keðjunni.
• Góðir hlutir gerasl hægt. Breyttu smátt og smátt unt
mataræði.
• Berðu saman þær upplýsingar sem þú hefur um matar-
æði og lagfærðu þær að þínum þörfum með allt það
besta í huga. T.d. blóðflokk, matarsamsetningu, líkams-
gerð og hreinleika matar.
horfa ekki á sjónvarp eða
lesa um leið og við borðum
og njóta þess sem ofan í
okkur fer. Allt of margir líta
á munn sinn sem rusla-
tunnuop og fleygja inn í
hann hverju sem er án þess
að veita því athygli. Með því
að sýna líkamanum og fæð-
unni þá virðingu sem fylgir
fullri athygli og meðvitund
náum við meiri næringu úr
matnum. Við borðum hægar
og jafnvel minna, því þegar
við hlustum á líkamann seg-
ir hann okkur hvenær við
höfum fengið nóg. Ef við
hlustum ekki, belgjum
við okkur oft út og öll
orka Iíkamans fer í að
melta, við verðum
þreytt, bætum á okkur
kílóum og líður al-
mennt ekki nógu vel.
Samkvæmt jógafræð-
unum á að hálffylla
magann af mat og
skilja einn fjórða
eftir fyrir vatn og
einn fjórða fyrir
loft. Rannsóknir vís-
indamanna hafa
sannreynt þessar
leiðbeiningar því ein
besta leiðin til að
halda heilsu virðist
vera að borða minna.
Því markmiði náum við
aðeins ef við
borð-
um með algjörri athygli. Við
vitum t.d. alltaf hvenær við
erum södd - ef við hlustum
eftir því.
Kjötlaust fæði
Jógafræðin mæla með
kjötlausu fæði. Fyrir
því eru margar
ástæður.
Þau
segja mann-
inn illa búinn til
kjötáts. Við erum með
tennur eins og grænmetisæt-
ur, milt munnvatn, mildar
magasýrur, langa þarma
(kjötætur eru með stutta),
þegar kjöt meltist verður til
þvagsýra á móti mjólkursýru
við meltingu á grænmeti.
Hins vegar mæla þau einnig
með því að hver þjóðfélags-
hópur nýti þær náttúruauð-
lindir sem bjóðast og við ís-
lendingar geturn því borðað
fisk án þess að ganga gegn
jógamataræðinu. Allar
breytingar þurfa þó að ger-
ast hægt og safna þarf upp-
lýsingum áður en kjötlaust
fæði er tekið upp. Jógafræð-
in mæla ekki með öfgum -
sama í hvaða átt þær eru.
Nýjustu upplysingar
Jógafræðin eru mörg
þúsund ára gömul
og hafa staðist
tímans tönn.
Það er hins veg-
ar ekki hægt líta
alveg fram hjá
þeim nýju upplýs-
ingum sem hafa
safnast um næringu
og mataræði síðustu
árin. Tökum sem dæmi
nýjar upplýsingar um
fæðusamsetningu sem
Harvey og Marilyn Di-
amond settu fram í bók
sinni, I Toppformi. Nýjar
upplýsingar um rétt matar-
æði fyrir þinn blóðflokk eru
mjög spennandi og út-
skýra hvers vegna eins
manns matur getur ver-
ið annars manns eit-
ur. Ayurveda
fræðin eru
líka mjög
merkileg sérstaklega
í nútímalegu samhengi
Dr. Deepak Chopra. Aðal-
atriðið er að nýta okkur
þessar upplýsingar. Þær hafa
allar eitthvað fram að færa
og jafnvel er hægt að nota
fleiri aðferðir saman.
Höfundur er jógakennari.