Vikan


Vikan - 25.01.2000, Qupperneq 45

Vikan - 25.01.2000, Qupperneq 45
Eftir Barböru Cartland. Þórunn Stefánsdóttir þýddi. tímis vissi hún hver hún var. Það væri óhugsandi fyrir hertogann að ganga í hjóna- band með henni. Hún var nú einu sinni dóttir föður síns. Það væri jafn óhugs- andi og að stöðva gang him- intunglanna eða láta stjörn- urnar hætta að skína. Frændi hennar kallaði hana oft auðvirðilegan hund; syndasel, sem enginn maður gæti litið á öðruvísi en með fyrirlitningu og viðbjóði. Hvernig gæti nokkur maður viljað giftast henni, hvað þá sjálfur hertoginn af Strath- vegon? Eg verð að fara héðan, sagði hún við sjálfa sig, því fyrr því betra. Hvernig gæti hún afborið það að vera nálægt honum og vita að hann neyddist til þess að giftast einum gesta sinna? Bæði Beryl og Deborah voru hans verðar. Hún sagði við sjálfa sig að þetta gæti ekki verið satt. Það gæti ekki verið að hann hefði sagst elska hana. Þegar hann hélt henni í örmum sínum hafði henni fundist þau vera eitt. Karl- maður og kona sem voru sköpuð fyrir hvort annað. Eg elska hann og ég vil ekki gera honum mein, sagði Yseulta við sjálfa sig. Ég er þakklát fyrir að hafa fengið að upplifa ástina en ég verð að sætta mig við þá stað- reynd að sú ást á enga fram- tíð fyrir sér. Hún neyddi sig til þess að halda aftur af tárunum. Hún reis hægt upp úr rúminu og gekk að glugganum. Sólin var sest og það glitti í haf- flötinn í myrkrinu. Svona verður líf mitt eftirleiðis, hugsaði hún döpur. En ég get ekki kvartað. Ég má þakka fyrir að þessi yndis- legi maður hafi játað mér ást sína, leyft mér að dvelj- ast hjá sér og haldið mér í örmum sínum. Hún horfði út í myrkrið og sagði: Þakka þér fyrir, góði Guð, að leyfa mér að upp- lifa ástina, en ég veit að ég má ekki verða til þess að særa þennan yndislega mann. Hjálpaðu mér að komast héðan óséð á ein- hans og hún beið þess í of- væni að sjá hann aftur. Ég fer strax eftir dansleik- inni, sagði hún við sjálfa sig. Þá verður svo mikið um að vera að enginn tekur eftir því þegar ég læt mig hverfa. Næsta morgun verð ég kom- in langt í burtu. Hún vissi að það yrði ekki auðvelt. En hún vildi frekar hann! Ég elska hann! Hún heyrði það hljóma hvað eftir annað. Hún vissi að það myndi alla tíð hljóma í hjarta hennar. Þegar hertoginn kom niður úr turninum fannst honum sem hann væri staddur í draumaheimi. Hann fór til skrifstofu sinnar þar sem hvern stað þar sem ég get verið örugg. Þetta var lítil, sorgleg bæn. Henni leið eins og hún væri þegar á leið frá höllinni eftir endalausri blindgötu. Hún gat ekki að því gert að hjarta hennar sló hraðar þegar hún hugsaði til kossa deyja en að fara aftur til frænda síns. Það væri betra að láta lífið í keltneska virk- inu en að þurfa að hlusta á svívirðingarnar úr munni frænda hennar. En þótt hún reyndi að vera hughraust heyrði hún hjarta sitt hrópa: Ég elska hann! Ég elska hann vissi að hann gæti ver- ið í einrúmi. Hann vissi að tilfinningarnar sem höfðu bærst innra með honum þegar hann kyssi Yseultu voru allt aðrar en hann hafði upplifað áður. Hingað til hafði samband hans við konur einkennst af augna- Vikan 45
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.