Vikan - 25.01.2000, Page 46
m
h
f r
bliksástríðu, eins og sam-
band hans við Hermione.
Ástarblossinn hafði óhjá-
kvæmilega dáið út eftir
stuttan tíma án þess að
skilja eftir minnstu glóð.
Þessi ást var af allt öðrum
toga spunnin. Frá því augna-
bliki sem hann sá Yseultu í
lestinni hafði fann fundið
þörf fyrir að hjálpa henni og
vernda hana. Síðan hafði
hún stöðugt verið í huga
hans. Hann hafði virt hana
fyrir sér í kirkjunni. Hann
hafði skynjað að hún hlust-
aði með athygli á orð prests-
ins og að bænir hennar
komu frá hjartanu.
Hermione og aðrar ástkon-
ur hans hefðu verið upp-
teknari af nálægð hans og
beitt öllum brögðum til þess
að ná athygli hans. En
Yseulta hafði alls ekki tekið
eftir honum. Hann gat ekki
ímyndað sér að nokkur
kona gæti verið fallegri en
hún þegar hún horfði upp í
blýlagða kirkjugluggana.
Hann hafði horft bergnum-
inn á skuggann af andliti
hennar á dökkum veggjun-
um. Hún er yndisleg, sagði
hann við sjálfan sig, og það
er ófyrirgefanlegt hvernig
frændi hennar kemur fram
við hana! Hann varð æfa-
reiður við tilhugsunina.
Hann langaði, eins og oft
áður, til að taka utan unr
hana og fullvissa hana um
að hún þyrfti aldrei að fara
þangað aftur. Hann hafði
tekið eftir hvað hún var
kurteis og nærgætin við eldri
gestina. Hún hafði setið við
hlið eins eldri herramann-
anna eitt kvöldið og hlustað
á hann af mikilli athygli og
komið með viðeigandi at-
hugasenrdir. Hertoginn vissi
að Hermione og flestar aðr-
ar konur hefðu dáið úr leið-
indum yfir því að þurfa að
tala við hann. Þær hefðu
reynt að snerta hertogann,
daðrað við hann með orðum
og æði og sent honum opin-
skáar augnagotur. Hann var
orðinn vanur því og var
hættur að búast við öðru af
þeirra hendi. Hann hafði í
raun og veru trúað því að
allar konur væru eins. En
Yseulta var gjörólfk þessum
konum. Þegar hann horði á
hana gleymdi hann öllum
hinum gestunum og gat ekki
hugsað urn neitt annað en
hana og vandamál hennar.
Ég verð að hjálpa henni!
sagði hann aftur og aftur við
sjálfan sig en hann var bara
ekki viss um hvernig.
Uppi á heiðinni hafði hann
skynjað, þótt hann vildi ekki
viðurkenna það fyrir sjálfum
sér, að þau hugsuðu ná-
kvæmlega eins. Jafnvel þeg-
ar þau sögðu ekki orð hafði
nálægð hennar gert hann
hamingjusaman sem aldrei
fyrr. Fyrstu viðbrögð hans,
þegar þau mættu manninum
á heiðinni, höfðu verið þau
að vernda hana. En það
hafði verið hún sem vernd-
aði hann. Hún hafði stillt sér
upp fyrir framan hann og
leyst vandamálið með kunn-
áttu sinni á geliskri tungu.
Einhvern veginn hafði það
ekki komið honum á óvart
að hún kynni þetta mál sem
hann kunni aðeins nokkur
orð í sjálfur. Henni hafði
tekist að róa manninn niður
og í sameiningu höfðu þau
ákveðið hvernig best væri að
koma fjölskyldunni, sem var
á ábyrgð hertogans, til
hjálpar. Hvernig ætti ég að
geta gifst konu sem ber eng-
ar tilfinningar til fólksins
sem tilheyrir mér? spurði
hann sjálfan sig. Hann vissi
að lafði Beryl var dæmigerð-
ur Englendingur og myndi
illa þola að þurfa að dvelja í
Skotlandi. Lafði Deborah
myndi eflaust hlæja að öllu
því sem hann segði, en ekki
hafa minnstu hugmynd um
hvernig hún ætti að koma
fram við konu í nauð.
Yseulta er mín! sór hann há-
tíðlega með sjálfum sér. Ég
er ákveðinn í því að giftast
henni, hvað sem hver segir.
Hann vanmat ekki erfiðleik-
ana sem hann stóð frammi
fyrir, sérstaklega gagnvart
móður sinni. Hún elskaði
hann, hann var stoltið henn-
ar og eins og allar mæður
vildi hún honum aðeins það
besta. Hvernig á ég að leiða
henni fyrir sjónir, hvernig
get ég fullvissað hana um að
Yseulta er fullkomin kona
handa mér? spurði hann
sjálfan sig. Hann ákvað með
sjálfum sér að ef hann fengi
ekki að giftast Yseultu færi
hann til jarlsins og tæki af-
leiðingunum. En hann vissi
að hann langaði síst af öllu
að giftast Hermione. Fegurð
hennar hafði heillað hann,
en ef hann átti að vera alveg
heiðarlegur varð hann að
viðurkenna að þau áttu ekk-
ert sameiginlegt. Hann var
viss um að Hermione myndi
dauðleiðast ef hún yrði að
búa í höllinni án herskara
aðdáenda í kringum sig.
Fegurð heiðinnar, áin og
hafið kæmust ekki í hálf-
kvisti við fegurðina sem hún
sá í eigin spegilmynd.
Ég má ekki til þess hugsa að
missa Yseultu! sagði hertog-
inn upphátt. Aldrei fyrr
hafði hann elskað á þennan
hátt og hann var reiðubúinn
til þess að berjast fyrir ást-
ina.
46 Vikan