Vikan - 25.01.2000, Page 54
Spurningar má
senda til „Kæri
Póstur“ Vikan,
Seljavegi 2, 101
Reykjavík. Farið er
með öll bréf sem
trúnaðarmál og
þau birt undir
dulnefni.
Kæri Póstur
Ég er 35 ára gömul kona í mjög vel
launuðu og krefjandi starfi. Ég er
metnaðarfull og hef unnið markvisst
að því að komast í þá stöðu sem ég er
í. Það er hins vegar sá galli á gjöf
Njarðar að mér tekst ekki að halda í
karlmenn og mér hefur verið sagt upp
þrisvar sinnum á síðastliðnu ári. Fyrstu
tveir mennirnir sem ég var með sögð-
ust hafa gefist upp á því hversu hug-
leikin vinnan væri mér og að ég sýndi
þeim lítinn áhuga og
stuðning. Á þessum tíma
var ég bæði í vinnu og
kvöldskóla á meðan fyrri kærastinn
minn var atvinnulaus, en hinn var
tónlistarmaður sem hafði frekar lítið
að gera. Mér sárnaði þetta skilnings-
leysi þeirra og enn átti ástandið eftir
að versna þegar sá þriðji sleit sam-
bandinu á þeim forsendum að ég nyti
meiri velgengni en hann! Ég hefði
ekki trúað því að óreyndu að karl-
menn væru hræddir við konur í góð-
um stöðum. Er það virkilega svo?
Guðbjörg
Kæra Guðbjörg
Það er varhugavert að alhæfa
nokkuð um málefni sem þessi en ef-
laust finna sumir karlmenn til van-
máttar gagnvart konum sem eru í
betri stöðum en þeir sjálfir. Hins veg-
ar er líka ljóst að mikið annríki ein-
kennir líf þitt og því spurning hvort
þú hafir hreinlega tíma til þess að
vera í föstu ástarsambandi. Öll sam-
bönd þarf að rækta og hlúa að en
það krefst vissulega tíma. Svo virðist
sem þú gefir þér ekki (eða hafir
ekki) nægilegan tíma til þess að sinna
ástarsamböndum og því gæti verið
heppilegra fyrir þig að sleppa þeim
um tíma,
sérstaklega á meðan þú ert að koma
þér vel fyrir í kröfuharðri vinnu og
þjálfast í að skipuleggja tíma þinn. í
raun er mesta furða að þú hafir þó náð
að kynnast þremur mönnum þrátt fyrir
miklar annir.
Kannaðu huga þinn og tilfinningar
gagnvart þessum fyrrverandi ástmönn-
um þínum. Kannski varstu ekki nægi-
lega hrifin af þeim til að vilja skapa þér
svigrúm til meiri samskipta við þá? Á
meðan þú ert að feta þig upp metorða-
stigann er líklega vænni kostur fyrir
þig að eiga félaga sem þú hefur ánægju
af að umgangast án þess þó að festa
þig alveg niður og skuldbinda þig í fast
samband. Ef þú ert hins vegar á þeim
buxunum að vilja binda þig þá skaltu
reyna að skipuleggja tíma þinn eins vel
og kostur er til þess að geta hlúð að
ástarsambandi sem skiptir þig miklu
máli.
Eru karlmenn
hræddl
við frama kvennl
54 Vikan