Vikan


Vikan - 25.07.2000, Qupperneq 28

Vikan - 25.07.2000, Qupperneq 28
Hjónabandið var drepleiðinlegt Ég var átján ára begar ég kynntist Eiríki. Hann varð strax mjög hrifinn af mér og gekk á eftir mér með grasið í skónum heilan vetur. Mér Hotti ésköp vænt um hann hví hetta var góður strákur en ég get ekki sagt að ég hafi kiknað í hnjánum í návist hans og hjartað barðist svo sem ekkert hraðar hótt ég heyrði rödd hans. Þrátt fyrir hað vorum við saman í tvö ár áður en ég sleit sambandinu. Eiríkur var vinur minn og mér fannst hann eiga betra skilið en kærustu sem var jafn hálfvolg og ég. Eftir að við Eiríkur hættum saman hellti ég mér út í skemmt- analífið. Ég drakk aldrei mikið en það var gaman að fara með vinkonunum á kráar- rölt og dansa á skemmtistöðun- um. f einni slíkri ferð kynntist ég Dóra. Fyrr um kvöldið hafði ég rekist á kunningja minn og hann beðið mig að koma með sér á næsta bar. Ég lét tilleiðast þótt vinkonur mínar vildu vera eftir en ég fór fljótlega að sjá eftir því. Kunningi minn hitti einhvern vin og þeir höfðu svo margt að segja hver öðrum að það var eins og ég væri ekki til. Ég stóð við bar- inn eins og illa gerður hlutur og reyndi að láta líta út fyrir að ég væri að hlusta á þá. Allt í einu heyrði ég djúpa karlmannsrödd sem spurði hvort ég væri ein á ferð. Ég var ekki sein á mér að svara játandi og hann bauð mér yfir að borðinu sínu þar sem hann sat ásamt kunningjafólki. Við spjölluðum heilmikið þetta kvöld og hann lofaði að hringja í mig. Næstu daga beið ég spennt eft- ir símtali en þegar ekkert hafði heyrst frá honum á fjórða degi var ég orðin viss um að hann myndi alls ekki hringja, en viti menn, þá um kvöldið hringdi síminn og Dóri bauð mér út. Við vorum óaðskiljanleg næstu mán- uði og með Dóra upplifði ég allt sem mér hafði þótt vanta í sam- bandi mínu við Eirík. Dóri var fyndinn, ákaflega vel lesinn, blíð- ur og tilfinninganæmur maður. Hjartað í mér barðist sem aldrei fyrr í hvert skipti sem ég sá hann og ég hreinlega svitnaði í lófun- um þegar hann var nærri mér. Ég hef nokkuð sérstæð áhugamál og þannig vildi til að Dóri hafði einmitt áhuga á því sama. Ég var orðin alveg sannfærð um að ör- lögin hefðu leitt okkur saman og lét mig dreyma um heimili og hóp barna sem öll hefðu augun hans Dóra. En þá dundi reiðarslagið yfir. Ég komst að því að ég var alls ekki sú eina sem fékk að njóta félagsskapar þessa bráð- skemmtilega manns. Við vorum þrjár sem hann var með í takinu um þær mundir en sú fjórða hafði dottið úr skaftinu skömmu eftir að við kynntumst. Hún komst nefnilega að tilvist minni og varð æf. Hún hætti hið snarasta með Dóra en þegar hún komst að því að hann hefði fleiri en mig í taumi taldi hún það skyldu sína að láta mig vita. Ég gekk á Dóra og hann neitaði öllu í fyrstu en þegar hann komst að því að svo illa vildi til að ég hafði sannanir fyrir öllu saman bað hann mig að slíta ekki samband- inu. Honum þætti vænt um okk- ur allar og gæti í augnablikinu ekki gert sér grein fyrir hver væri honum mikilvægust en að því kæmi vafalaust fljótt. Hann væri auk þess nokkuð viss um að ég yrði sú útvalda, hann vantaði að- eins herslumuninn áður en full- vissu yrði náð. Ég átti hreinlega ekki orð yfir þessari fáránlegu röksemda- færslu og ósvífnu beiðni. Ég kvaddi hann ekki beinlínis með hlýju þetta kvöld en ég get lofað því að það var mikill hiti í þeim orðum sem ég lét falla. Næstu mánuði á eftir var ég sárum. Ég var bókstaflega ekki með sjálfri mér. Oft kom ég heim úr vinnu á kvöldin og grét ofan í koddann minn þangað til ég var orðin svo uppgefin að ég sofnaði. Ég gat ekki hugsað mér að gera neitt, ekki hitta neinn, því mér fannst skömmin svo mikil. Mér fannst að allir hlytu að vita hvaða leik Dóri hafi leikið og hversu lítil- fjörleg ég væri í hans augum. Þeg- ar þessar hugsanir gripu mig hafði reiðin yfirhöndina og ég bölvaði honum í sand og ösku. Þess á milli þráði ég hann svo heitt að mér var illt í öllum skrokknum og margoft var ég að því komin að taka upp símann og hringja í hann. Ég var á þeim stundum tilbúin að ganga að af- arkostum hans bara til að fá að vera hluti af kvennabúrinu ögn lengur. Þegar mér leið sem verst fór Eiríkur vinur minn að hringja í mig aftur. Hann hafði alltaf haft samband við mig af og til en þeg- ar hann frétti hvað hafði komið fyrir vildi hann hjálpa. Eiríkur varð haldreipið mitt í eymdinni og volæðinu og það var iðulega tilhugsunin um hann og ást hans á mér sem varð til þess að ég hætti við að hringja í Dóra. Það leið heldur ekki á löngu áður en við Eiríkur vorum farin að vera saman aftur. Eiríkur var yndislegur strák- ur, ljúfur sem lamb, traustur og heiðarlegur. Það var engin hætta á að hann sviki mig nokkru sinni. Neistaflugið sem var milli mín og Dóra var ekki til staðar frekar en áður en ég hugsaði með mér að brennt barn forðist eldinn og kannski væri ástin alls ekki fólg- in í spennu og hamagangi. Hugs- anlega væri sú ást mun betri sem 28 Vikan
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.