Vikan - 25.07.2000, Page 35
iksblöndu til að losna við
maura og þess háttar.
Oðruvísi iasagna
Þetta lasagna er skemmti-
leg tilbreyting frá hefð-
bundnu lasagna. Ricotta-ost-
urinn er mjög magur ostur og
tilvalinn til matargerðar. Ólíf-
urnar gefa öðruvísi bragð en
maður er vanur þegar lasagna
er annars vegar.
2 msk. ólífuolía
8 meðalstórir sveppir,
(má sleppa)
2 laukai; smátt skornir
2 pressaðir hvítlauksgeirar
6 stórir vel þroskaðir
tómatar eða 2 dósir
niðursoðnir tómatar
2 msk. rauðvínsedik
1 msk. salt
2 msk. þurrkuð steinselja
I tsk. þurrkað basil
1/2 tsk. þurrkað oregano
1/4 tsk. þurrkað timjan
1/4 tsk. múskat
mulinn svartur pipar
eftir smekk
1 stórt zucchini skorið í
1/2 sm þykkar sneiðar
lasagnablöð (u.þ.b. 9 stk) sem
ekki þarf að forsjóða
400 g Ricotta-ostur
2 bollar rifinn ostur
1/2 bolli Parmesan-ostur
(hœgt er að kaupa mjög góða
eftirlíkingu afParmesan-osti
sem er bœði kólesteróllaus og
mjólkurlaus).
rifnar möndlur og ólífur.
Steikið sveppi í olíu í stór-
um potti. Bætið við lauk og
hrærið í af og til þar til lauk-
urinn er orðinn mjúkur. Bæt-
ið við hvítlauk, tómötum, ed-
iki og kryddi og sjóðið í opn-
um potti í a.m.k. 30 mínútur.
Takið þá af hitanum.
A meðan sósan mallar er
zucchini skorið í sneiðar og
raðað á hreint viskustykki
eða eldhúspappír.
Hitið ofninn í 175° C.
Setjið 1/3 af tómatsósunni
í ofnfast mót og þar ofan á lag
af lasagnaplötum, síðan
Ricotta-ost og rifinn ost og
loks zucchinisneiðar.
Endurtakið þetta þar til
hráefnið er búið og munið að
efsta lagið á að vera ostur.
Stráið síðan rifnum
Parmesanosti ofan á allt sam-
an og bakið í ofni í um 30 mín-
útur. Takið þá úr ofninum og
stráið möndlum og ólífum
ofan á. Bakað síðan í um 20
mínútur í viðbót eða þar til
möndlurnar hafa fengið gul-
brúnan lit.
Með þessu er gott að hafa
tómata- og gúrkusalat.
Tómata- og gúrkusalat
3 tómatar, afhýddii; stein-
hreinsaðir og skornir í bita
1 stór gúrka, afhýdd, stein-
hreinsuð og skorin í bita
1/2 bolli rauðlaukur, smóitt
skorinn
1/2 tsk. salt
2 msk. ólífuolía
1 pressaður hvítlauksgeiri.
Öllu blandað saman.
Chili Con Tofu
Þetta er ákaflega einfaldur
og fljótlegur pottréttur ef
munað er eftir að setja baun-
irnar í bleyti daginn áður.
Tofúið gerir réttinn
próteinríkan og hollan. í ein-
um bolla af réttinum eru II
g af próteini, 6 g af fitu , 22 g
af kolvetni og aðeins 180 hita-
einingar.
1 bolli pinto-baunir sem
lagðar eru í bleyti yftr nótt
og síðan soðnar í u.þ.b.
1 klukkustund.
500 g stinnt tofu, (Guðný
mœlir með Talioe-tofu)
2 msk. Tamari sojasósa
2 msk. olía
1 meðalstór laukur
1/2 grœn paprika
2 hvítlauksgeirar
1 dós tómatsósa (ókiydduð)
1 dl vatn eða grœnmetissoð
3 tsk. chiliduft (Athugið að
magnið fer eftir því hvers
konar chili-duft er notað).
Kreistið safann úr tofuinu
og rífið það niður í litla bita
sem settir eru í skál og
sojasósunni blandað saman
við.
Hitið olíu í potti og brúnið
tofu í henni. Bætið síðan lauk
og papriku út í og mýkið. Síð-
an er tómatsósu, hvítlauk,
vatni og chilidufti bætt í
ásamt soðnum baunum sem
vatnið hefur verið látið renna
af.
Hitið að suðumarki og þá
er pottrétturinn tilbúinn.
Vikan
35