Vikan - 25.07.2000, Side 39
Oddur Arnason aöalvaröstjóri aö hella upp á kaffi og Jóhannes M.
Ármannsson lögreglumaöur rétt ófarinn af stað til Bolungarvíkur í
eftirlitsferð. Þessa fyrstu helgi júlímánaðar var sameiginlegt eftirlit
hjá allri lögreglunni á Vestfjörðum og alveg suður í Búðardal. Oddur
segir að ísfirðingar séu afar gott og löghlýðið fólk. Þennan góðviðr-
isdag var lítið að gera á vaktinni hjá þeim. Kaffið bragðaðist vel
enda hellt upp á
það með gamla
laginu. Ekki spillti
fyrir að á kaffi-
bollanum stóð
„Góðkunningi".
Sumir sem fá
kaffisopa hjá lög-
reglunni taka því
ekkert of vel að
fá kaffið sitt í
þessum bolla en
flestum finnst
það bara fyndið.
Tvö brúðkaup (að
minnsta kosti)
voru haldin á ísafirði á laugardeginum. (
öðru tilfellinu gekk bakari að eiga bókara
og sá bakarinn að sjálfsögðu um að baka
brúðkaupstertuna.Töluverða kátínu vöktu
tvær styttur efst á tertunni. Þær voru ekki
þessar hefðbundnu af brúðhjónum held-
ur var þar stytta af Þór við hlið styttu af
galdranorn. Veislan var fjölmenn og veit-
ingarnar eins vestfirskar og hægt er. Á
borðum var m.a. sushi sem er framleitt á
(safirði, marineraður svartfugl sem brúð-
guminn skaut á Vestfjörðum, rækjur,
plokkfiskur og ótal margt fleira. Veislu-
stjórinn tilkynnti um miðbik veislunnar að
nú væri allt orðið löglegt og bað þá karl-
menn sem hefðu lykla að íbúð brúðar-
innar að skila þeim. Allir karlmenn í veisl-
unni stóðu upp og skiluðu lyklum. Þegar
veislustjórinn bað konur að skila lyklum
að íbúð brúðgumans stóð aðeins ein kona
upp, fyrrverandi eiginkona hans, og skil-
aði lyklinum. Veislugestir veltust um af
hlátri.
Vestfirsk stemmnmg rikir i versluninm
Kjötborg við Ásvallagötu i Reykjavík en
þar ráða ríkjum bræðurnir og Vestfirðing-
arnir Gunnar og Kristján (frá Þernuvík í
Ögurhreppi). (Kjötborg fæst næstum allt á
milli himins og jarðar og meðal annars
harðfiskur frá þremur framleiöendum á
Vestfjörðum, kaffi frá Bíldudal sem sést
hér á afgreiðsluborðinu í brúnum pökkum.
Kjötborg er eina verslunin á höfuðborgar-
svæðinu sem selur þetta „vestfirska"
kaffi. Um nokkrar tegundir er að velja og
þær þrjár sem til eru í Kjötborg heita
Gæðasopi trillukarlsins, Gæðakaffi Vest-
firðingsins og Gæða javakaffi. Kaffifyrir-
tækið heitir Bildudals - Fjalli. Þar er bland-
að saman ýmsum kaffitegundum (frá Te
og kaffi) eftir kúnstarinnar reglum og út-
koman verður bragðgott... framleiðslu-
leyndarmál.
mhMMI
.
í Bolungarvík var markaðsdagur á laugardegin-
um og þangað streymdi fólk víðs vegar af Vest-
fjörðum. Soffía Vagnsdóttir var á fullu við frá-
gang því dagur var að kvöldi kominn. Hún gaf
sér þó tíma til að hjálpa syni sínum á „fötustult-
ur“ því sá stutti var ekkert sáttur við að fjörinu
væri lokið og vildi halda áfram að leika sér í
góða veðrinu.
Vikan 39
Djupmannabuð i Mjoafirði er sannkölluð vin i eyðimörkinni. Þar geta þreyttir og
svangir ferðamenn keypt sér pylsur, samlokur, gosdrykki, kökur og kaffi svo fátt
eitt sé nefnt. Margrét Þorsteinsdóttir og Benedikt Bachmann reka staöinn á
sumrin. Þegar ekin er beinasta leið eftir þjóðvegi 61 og yfir Eyrarfjall er þetta eini
söluskálinn á leiðinni á milli ísafjarðar og Hólmavíkur (ef Súðavík er ekki talin
með). Djúpmannabúð er í 90 km fjarlægð frá Hólmavík og 130 km frá ísafirði.
Þess má geta að þjóðvegur 61 var auðveldur yfirferðar, algjört rennifæri mestan
hluta leiðarinnar, utan stöku stað þar sem unnið var að viðgerðum. Eitthvað var
um kindur við vegkanta en þá er bara að hægja ferðina því þær eru óútreiknan-
legar, blessaðar.
im , a V 'i