Vikan - 03.10.2000, Blaðsíða 4
Kæri lesandi
77:
ri a
X n
rir nokkrum
árum lenti ég í
merkilegu boði
þar sem saman voru
komnir nokkrir blaða-
mennfrá öllum Norð-
urlöndunum. Þegar
menn voru búnir að
borða vel og spjalla
um daginn og veginn
(og sumir búnir að
vökva lífsblómið örlít-
ið) komfram sú skelfi-
lega tillaga að allir
œttu að syngja þjóð-
Þióðsöngurinn
sönginn sinnfyrir
hópinn.
Mér brá hroðalega,
enda var ég eini Is-
lendingurinn í hópn-
um og allir vita jú
hvernig það er að
syngja þennan ágœta
söng, jafitvel þegar
liðsinni er affleira
fólki.
Eg marði það að
syngjafyrsta erindið
en það verð ég að við-
urkenna að mér leið
hreint ekki vel og ég
var eiginlega hálf
miður mín aðfara
svona með þettafal-
lega lag. Eg varð þó
fegin að enginn skildi
textann því ég hefði
síður vilja draga menn
niður íþunglyndi í
þessu skemmtilega
boði. Eg er vel liðtœk
til að kyrja alls kyns
skátasöngva og
partíslagara þegar á
þatfað halda, en
þjóðsönginn get ég
einfaldlega ekki sung-
iðfremur en aðrir
meðaljónar í sönglist.
Auk þess er hann alls
ekki vel til þess fallinn
að vera sunginn á
gleðistundum.
Oft hefur þessi ágœta
uppákoma rifjast upp
fyrir mér þegar ég
hlusta á landa mína
reyna að krafsa sig
fram úr því að syngja
fósturjörðinni til dýrð-
ar með vœgast sagt
misjöfnum árangri.
Það liggur stundum
við að maðurfari hjá
sér. Mér finnst það
ömurlegt að við skul-
um hafa þjóðsöng sem
þarfnast þraut-
þjálfaðra óperuradda
til að hœgt sé að
syngja hann skamm-
laust.
Eg er stolt afþví að
vera íslendingur og ég
vona að það séufleiri.
Við þurfum á því að
halda aðfinna til sam-
stöðu og við eigum að
gleðjast yfir því búa á
þessufallega landi og
vera hluti afþeirri
menningu sem hér rík-
ir. Við eigum að nota
fánann okkar á gleði-
stundum og skreyta
með honum þegar við
höldum veislur og við
ættum líka með réttu
að geta sungið þjóð-
sönginn saman, okkur
og öðrum til ánægju.
Því segi ég eins og
fieiri hafa gert á und-
an mér: Skiptum um
þjóðsöng! Veljum
GLAÐLEGT lag sem
allir geta sungið og
texta sem færir birtu
og ást á landinu inn í
sálina. Ég styð ein-
dregið þá tillögu að
„ísland er land þitt“
verði þjóðsöngur okk-
ar.
íþessari Viku segjum
við lesendum frá tveim
konum sem urðu mœð-
ur mjög ungar, lífs-
reynsla þeirra er að
vísu ekki einsdœmi á
Islandi en svo ungum
mœðrumfer þófœkk-
andi hér. Dansinn er
íþrótt sem er mjög
vanmetin og við heim-
sækjum danskennara
sem segja okkurfrá
dansinum og dönsur-
unum. Auk þessa efnis
er blaðið troðfullt af
skemmtilegum grein-
um ogfallegum mynd-
um eins og alltafog
við segjum eins og
alltaf...
Njóttu vikunnar!
Jóhanna
Harðardóttir,
ritstjóri
Ritstjórar: Jóhanna G. Hardardóttir og Hrund Hauksdóttir,
vikan@írodi.is. Útgefandi: Fróði Itf. Seljavegi 2, sínii: 515 5500
fax: 515 5599. Stjórnarformaður: Magnús Hreggviðsson.
Aðalritstjóri: Steinar J. Lúðviksson, simi: 515 5515.
Framkvæmdastjóri: Halldóra Viktorsdóttir, simi: 515 5512.
Blaðamenn: Steingerður Steinarsdóttir, Gunnhildur Lily
Magnúsdóttir, Guðriður Haraldsdóttir og Margrét V. Helgadóttir.
Auglýsingastjórar: Ingunn B. Sigurjónsdóttir og Sigriður
Sigurjónsdóttir vikanaugl@frodi.is.
Grafiskur hönnuður: Guðmundur Ragnar Steingrimsson.
Verð í lausasölu 459 kr. Verð í áskrift ef greitt er með greiðslukorti
344 kr. á eintak. Ef greitt er með giróseðli 390 kr. á eintak.
Litgreining og myndvinnsla: Fróði hf. Unnið i Prentsmiðjunni
Odda hf. Oll réttindi áskilin varðandi efni og myndir.
Áskriftarsími:
515 5555