Vikan - 03.10.2000, Blaðsíða 34
Sambland af réttum getur uerið góð tilbreyting begar við
viljum gera okkur dagamun. Að bessu sínni höfum stillt
upp bremur réttum sem geta staðið einir sér eða sem
hluti af óhefðbundnum matseðli. Ciabatta brauðið fengum
við hjá Bakarameistaranum í Mjódd en bar er einnig hægt
að fá ciabatta réttinn tilbúinn. Þessi smáréttur er tilvalinn
í ferðanestið eða sem létt máltíð t.d. í hádeginu.
Ciabatta
Fyrir 6-8
1 stk. ciabatta brauð
1 1/2 bolli túnfiskur í olíu
1 1/2 bolli rækjur
4 tómatar
5 egg
1/1 gul, rauð og græn paprika
1-2 hvítlauksgeirar
l/2-l/l fricée salat
(hrokkinblaðssalat)
Krydd:
arómat
blandaður, svartur pipar
sjávarsalt
Aðferð
Sjóðið eggin í hæfilegan
tíma eða í u.þ.b. 8-10 mínút-
ur og kælið þau síðan. Skerið
grænmetið í þunnar sneiðar
eftir smekk en salatið er rifið
niður. Skerið brauðið eftir
endilöngu og setjið grænmeti
og sjávarfang ofan á annan
helminginn. Einnig er gott er
að setja t.d. sýrðan rjóma eða
uppáhaldsdressinguna sína.
Að endingu er hinn helming-
urinn af brauðinu settur ofan
á. Skerið í 6-8 sneiðar.
Ofnbakaður kjúklingaréttur
Fyrir 3-4
1 stk. kjúklingur (u.þ.b. 1,2 kg)
200 g sveppir
1/2 laukur
1 bolli blaðlaukur
krydd: season all, sjávarsalt
og svartur, grófmalaður
pipar
Aðferð:
Ef kjúklingurinn er fersk-
ur og ófrosinn er hann krydd-
aður hæfilega og settur inn í
ofn sem er 180-200 gráðu
heitur. Eldunartími er u.þ.b.
ein klst. Hvernig er hægt að
vita hvort kjúklingur er tilbú-
inn ? Það er t.d. hægt með því
að reyna að snúa lærisbeini í
hring og ef beinið er laust frá
kjötinu, þá er kjúklingurinn
fulleldaður. Ef um frosinn
kjúkling er hins vegar að ræða
þá er nauðsynlegt að þíða
hann alveg svo ekkert frost sé
í honum, annars getur mat-
reiðslan mistekist. Munið eft-
ir því að algengasta og mesta
áhættan í eldhúsinu er
svokölluð krossmengun en
ekki eldunartími. ATHUG-
IÐ ÞVÍ VEL AÐ ÞVO YKK-
UR VEL UM HEND-
URNAR OG NOTA EKKI
ÁHÖLD EÐA BRETTI í
AÐRA MATREIÐSLU
FYRR EN BÚIÐ ER AÐ
ÞVO ÞAU UPP ÚR MJÖG
HEITU VATNI OG SÁPU.
Að endingu er grænmetið
steikt og gott er að bera fram
einhvers konar kartöflur með
kjúklingnum.
Ath: Það hefur borið á því und-
anfarið að kjúklingar hafa ekki
verið nægjanlega snyrtir, þ.e. að
nauðsynlegt hefur verið að
plokka þá. Munið eftir því og lát-
ið heyra í ykkur ef þið lendið í
slíku, því við Islendingar höfum
ekki hingað til vanist því að vera
boðið upp á annars flokks vöru í
verslunum.
34
Vikan