Vikan


Vikan - 03.10.2000, Blaðsíða 8

Vikan - 03.10.2000, Blaðsíða 8
fótspor mömmu og útskrifist úr háskóla rúmlega fertug," segir Prúður og fær sér sopa af heitu súkkulaði. Guðný var ekki í sambandi við föður Gunnhildar þegar hún fæddist og það slitnaði fljótlega upp úr sambandi Þrúðar og barnsföður hennar. „Gunnhildur hefur samt alltaf samband við föður sinn," segir Guðný. Þrúð- ur og Ragnheiður bjuggu einar þar til Þrúður kynntist Árna Baldri, eiginmanni sínum en hann ættleiddi Ragnheiði fyrir 3 árum. Það var Ragnheiði mikil- vægt að hafa sömu stöðu og syst- ur hennar þó að hún hafi alltaf verið alin upp sem dóttir okkar beggja. Það var mikil gleðistund þegar hún varð Árnadóttir," seg- ir Þrúður og brosir. Ungar mðmmur Ifka af- skiptasamar Guðný og Þrúður segja dætur sínar ekki mikið spá í hversu ung- ar mæður þeirra séu. „Stundum finnst Gunnhildi það vera spenn- andi en þess á milli er ég bara mamma,“ segir Guðný og brosir og Þrúður samsinnir henni. Ragnheiður hefur stundum ver- ið að spá í aldur minn, sérstak- lega þegar hún byrjaði í skóla. Hún varð til dæm- is stór- hneyksluð á bróður bekkjarfé- laga síns sem var jafngam- all og ég og bjó ennþá heima hjá pabba sínum og mömmu,“ segir Þrúður og hlær. Hún segir ýmsa kosti fylgja því að vera ung mamma. „Það er t.d. stutt síðan við vorum unglingar og við munum enn vel hvernig það var,“ segir Þrúður. Guðný samsinnir henni og segir að stundum séu þær Gunnhild- ur nær því að vera vinkonur en mæðgur, „en stundum finnst henni ég hins vegar vera afskap- lega afskiptasöm mamma,“ seg- ir hún og hlær. Þrúður segir að sér hafi verið bent á það um daginn að hún gæti orðið amma eftir fáein ár. „Mér leist nú ekkert of vel á það og sagði það við Ragnheiði sem leit forviða á mig og sagði: „Mamma, ég ætla nú ekki að eignast barn fyrr en ég er orðin 25 ára og búin að læra.“ Guðný segist vona að það sama verði uppi á teningnum hjá Gunnhildi. „Mér finnst ég óskaplega rík að eiga svona stóra stelpu og allt hefur þetta bless- ast en hennar vegna vona ég að hún klári námið fyrst og lifi líf- inu aðeins áður en hún bindur sig.“ Það eru til getnaðaruarnir Þrátt fyrir ungan aldur á Þrúð- ur fleiri börn en gerist og geng- ur. Hvaða viðbrögð fær hún við því? „Það er mjög algengt að fólk spyrji í gríni hvort ég viti ekki að til séu getnaðarvarnir eða þá hrósar mér fyrir dugnaðinn en spyr um leið: „Hvernig nennirðu þessu?“ Mér finnst forréttindi að geta eignast börn og finnst ofsa- lega gaman að eiga svona mörg. Eg er núna heimavinnandi en var í fullri vinnu þegar ég var með tvær elstu stelpurnar. Við hjónin unnum bæði vaktavinnu, það var erfitt að fá barnapössun og við vorum aldrei öll saman í einu. Mig langaði að kynnast börnun- um mínum betur, fylgjast með þeim þroskast og taka þátt í öllu því ferli. Við tókum því þá ákvörðun þegar Birna Rut var 2 1/2 árs að ég yrði heimavinnandi þótt það þýddi að fjárhagslega myndi þrengja að okkur. Þegar ég átti Snæfríði Sól þá var það í fyrsta sinn sem ég fylgdist með barninu mínu fara að skríða, ganga og heyra það segja fyrstu orðin. Slík uppiifun verður ekki keypt fyrir peninga. Stelpunum finnst afskaplega notalegt að ég sé heima þegar þær koma heim úr skólanum. Mér finnst móðurhlutverkið mjög vanmetið í þjóðfélaginu Fólki finnst maður ekki gera neitt ef maður er heimavinnandi. Það segir jafnvel: „Já, þú gerir ekkert.“ Ég verð stundum hvekkt á þessu viðhorfi því þarf mjög gott skipulag til þess að láta daglegt líf svona stórrar fjöl- skyldu ganga upp. Ég fæ einnig mjög góðan stuðning frá fjöl- skyldunni og er sannfærð um að ég á bestu tengdamömmu í heimi,“ segir Þrúður. Sveitin er barnvæn Guðný tekur undir með Þrúði og segir ómetanlegt að geta alltaf verið með börnunum. „Börnin vita alltaf af manni og það veitir þeim öryggi. I sveitinni taka börnin virkan þátt í bústörfun- um. Þetta er lítið samfélag og persónulegt og hér skiptir hver einstaklingur miklu máli. Skólinn er lítill og heimilislegur og hér er maður ekki foreldri einhvers barns í einhverjum bekk. Sam- félagið er einfaldara og gegn- særra. Börnin taka þátt í lífi full- orðinna, það eru ekki þessi skörpu skil á milli vinnu foreldra og heimilislífsins eins og er í borgunum. Gunnhildur er nú komin suður í menntaskóla og ég verð að viðurkenna að ég er svo- lítið hrædd um hana þar því Reykjavík er orðin stórborg með öllum þeim kostum og göllum sem því fylgja. Mér finnst ég vera öruggari með börnin hér en í Reykjavík. Eini raunverulegi ókosturinn finnst mér að hérna hafa þau ekki sama aðgang að tómstundastarfi og í borginni. Brynjar Gauti hefur geysilega mikinn áhuga á fótbolta en hér er ekkert lið sem hann getur æft með,“ segir Guðný. Að vera vinur barnanna sinna Þær eru sammála um að það sé mikilvægt að vera vinur barn- anna sinna, bera virðingu fyrir þeim og því sem þau eru að gera ogagaþauájákvæðanhátt. „Það verður að setja börnum skýr og sanngjörn mörk svo þau viti hvað sé leyfilegt og hvað ekki. Það er líka nauðsynlegt að útskýra fyr- ir þeim hvers vegna sumt er bannað eða ekki hægt að gera,“ segir Þrúður ákveðin. „Mér finnst mikilvægt að börn beri virðingu fyrir umhverfi sínu og fólkinu í kringum sig og fullorðn- ir þurfa líka að taka til- lit til barna og ung- linga, þau eru líka fólk,“ segir Þrúður. Frænkurnar líta hvor á aðra og hlæja þegar þær eru spurðar um frekari barneignir. „Guðjón, maðurinn minn, vill eiga fleiri en ég er ekki alveg á því,“ segir Guðný og brosir. Þrúður hlær og segir það ekki úti- lokað, en Árni Baldur segir að kvótinn sé búinn. „En veit mað- ur nokkurn tímann hvað framtíð- in ber í skauti sér?“ segir hún og lítur kankvíslega á frænku sína sem hristir höfuðið til samþykk- is. Þrúður: „Fólki finnst maður ekkí gera neitt et maður er heimavinnandi. Það segir jafn- vel: „Já, bú gerir ekkert." Ég verð stundum hvekkt á bessu viðhorfi bví barf mjög gott skipulag til bess að láta daglegt líf svona stórrar fjölskyldu ganga upp.“ 8 Vikan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.