Vikan


Vikan - 03.10.2000, Blaðsíða 28

Vikan - 03.10.2000, Blaðsíða 28
Ástsjúka þorpsfíflið lagði hana í einelti Ég og Sigrún, sem er besta uinkona mín, höfðum allt frá bví að við vorum ungiingar látið okkur dreyma um að fara saman í háskólanám til Bandaríkjanna. Þegar við höfðum lokið stúdentsprófi sóttum við um inngöngu í nokkra háskóia bar og völd- um, eftir miklar pælingar, skóla sem var í háskólabæ í New York fylki. Við kusum frekar að leggja stund á nám í litlum, vinalegum bæ heldur en í stórborg bví við töldum að okkur liði öruggiega betur á svoleiðis stað en innan um ópersónulegan mannfjöida í stórborg. hituðum vatn í stórum potti til að hella í baðkerið því það var sjaldnast heitt vatn í hús- inu. Baðkerið var reyndar eitt það ógeðslegasta sem við höfðum séð en við fylltum það bara af ódýru freyðibaði til þess að sjá ekki ryðið. Okkur gekk vel í skólanum og eignuðumst nokkrar góð- ar vinkonur strax á fyrstu vik- unum. Við sátum alltaf í há- deginu við stórt hringborð í kaffiteríu skólans, mauluðum heimatilbúnar samlokur, splæstum í kaffi, hlógum og spjölluðum. Dag nokkurn, þegar við sátum við umrætt borð, gekk maður upp að okkur og bauð góðan daginn. Mér varð hverft við því hann var svo undarlegur útlits. Hann var u.þ.b. 45 ára gam- all, þéttvaxinn og afar búldu- leitur. Hann var með há koll- vik, miklar svartar augabrún- ir og stór, geðveikisleg augu. Hann var klæddur í skítugan gallasamfesting og var með hamar í vasanum. Það var svo fyndið að sjá fullorðinn mann í svona barnalegum samfest- ingi að ég varð að taka á hon- um stóra mínum til þess að fá ekki æðislegt hláturskast. Ekki bætti það úr skák að hann var í grænum krumplakksleðurjakka yfir skítagallanum! Maðurinn var eitthvað svo gjörsamlega úr samhengi við háskólasamfé- lagið. Nú, hann sagðist heita Rick og hann væri í hlutanámi í skólanum, hann hefði tekið eftir okkur nýju stelpunum og vildi gjarnan kynnast okkur. Stelpunum fannst þetta bara krúttlegt og buðu honum sæti. Mér leið hins vegar illa í návist hans og fór fljótlega heim. Þegar Sigrún vinkona kom svo heim síðar um daginn sagði hún mér að Rick hefði Furðufugl ber að garði í háskólanum voru u.þ.b. 5000 nemendur sem þykir ekki fjölmennur skóli á bandarískan mælikvarða en hentaði okkur ágætlega þar sem skólinn var af svipaðri stærð og Háskóli Islands. Það bjuggu í kringum 37.000 manns í bænum og við komumst fljótlega á þá skoð- un að þarna myndi okkur líða mjög vel. Allir sem við hittum voru svo hlýlegir og hjálp- samir og vildu allt fyrir okk- ur útlendingana gera. Við leigðum pínulitla íbúð með einu svefnherbergi á efstu hæð í gömlu húsi með turni. íbúðin var í slæmu ásigkomu- lagi en við fylltum hana af fal- legum pottablómum, kertum og bókum og hún varð hin notalegasta. Þar sem við vor- um blankir námsmenn urðum við að gera okkur þetta hús- næði að góðu. Við hengdum sængurver fyrir gluggana og stungið upp á að stofna svo- kallaða „studygroup“ með okkur en með því átti hann við að við myndum gera heimavinnuna saman í hóp og þau ætluðu að koma strax í kvöld heim til okkar. Mér leist ekki á blikuna en ákvað að halda friðinn og samþykkti þetta með semingi. Rick kom í sömu fáránlegu múndering- unni á slaginu átta með fang- ið fullt af pokum. Svo dró hann upp heimalagað kart- öfluvín og fullt af ís og ost- um. Jæja, hugsaði ég með mér. Hvers konar lærdómur á þetta að verða? Það er skemmst frá því að segja að það var bara drukkið og borðað en ekkert lært. Stelp- unum fannst Rick skemmti- lega hallærislegur en það var eitthvað í fari hans sem vakti hjá mér ugg. Hann flutti smám saman inn á okkur Fljótlega var Rick orðinn órjúfanlegur hluti vinahóps- ins og þótt ég léti í ljós ákveðnar efasemdir um þennan furðulega mann þá létu stelpurnar athugasemd- ir mínar sem vind um eyru þjóta. „Láttu ekki svona, hann er bara öðruvísi en fólk er flest; skondinn og sérkennilegur,“ sögðu þær hlæjandi við mig. Svo ég reyndi að sætta mig við nærveru Ricks. Hann reyndi með miklum til- þrifum að koma sér í mjúkinn hjá okkur með ýmsum hætti en smám saman varð mér ljóst að hann var yfir sig ástfang- inn af Sigrúnu. Hann skildi stundum eftir blóm- vendi í póstkassanum okkar og barnaleg kort með bangsamyndum og eitt sinn bakaði hann smákökur og hengdi þær í fitugum bréfpoka á hurðar- húninn okkar. Svo gerðist það einn daginn að hann barmaði sér yfir því við Sigrúnu að hafa ekki að- gang að tölvu en hann væri að vinna að viðamikilli ritgerð og bað af einlægni um að fá að nota hennar tölvu. Eftir allar þessar gjafir og almennileg- heit af hans hendi var erfitt að neita honum um þessa bón og Sigrún lét tilleiðast. Mér fannst hann vera að beita okkur þrýstingi sem mér fannst óþægilegur og varð um og ó þegar Sigrún sagðist hafa látið hann fá lykil að íbúðinni okkar. Svo það fór að verða daglegur viðburður, þegar við komum heim úr skólanum, að hann sæti við tölvuna og hoppaði upp í barnslegri kæti þegar hann sá okkur. Þá heimtaði hann að fá að elda fyrir okkur og það var erfitt að neita því án þess að vera dónalegur. Einn daginn voru komin nokkur ný pottablóm inn í stofu og skítugur frakk- inn hans hékk í fatahenginu dögum saman. Stöku krydd bættist við á eldhúshilluna og bækurnar hans lágu á víð og „Náinsmanna- baftkarið". 28 Vikan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.