Vikan


Vikan - 03.10.2000, Page 45

Vikan - 03.10.2000, Page 45
Þórunn Stefánsdóttirþýddi brunnu í augum hennar þeg- ar hún settist niður við skrif- borðið. Hún þurrkaði þau reiðilega í burtu. Daniel hafði sagt að þau legðu af stað eftir hálftíma. Hún tók upp stóru hliðar- töskuna sem hún notaði sem skjalatösku og stakk í hana blokk og penna. Hún hafði ekki hugmynd um hvers vegna hann vildi að hún færi með honum. Sennilega vegna þess að hann treysti henni ekki að vera einni, hugsaði hún biturlega. Hún gæti tek- ið upp á því að svara í símann og ræða við einhvern skjól- stæðinginn... „Ertu tilbúin?" Charlotte hrökk upp úr hugsunum sín- um við rödd Daniels. Hún hafði verið svo niðursokkinn í lesturinn að hún heyrði hann ekki koma inn. Það fór í taug- arnar á henni hvað hann stóð þétt upp við hana. Hún ætlaði að standa upp úr stólnum á tígulegan og virðulegan hátt, en í þess stað tókst henni að ýta einni möppunni fram af borðbrúninni og missa jakk- ann sinn á gólfið. Hún stífnaði upp þegar Daniel var á undan henni að taka upp jakkann og hún varð að láta sig hafa það að leyfa honum að hjálpa sér í hann. Sólin skein inn um skrifstofu- gluggann og beindi geislum sínum í gegnum silkiskyrtuna hennar. Undir skyrtunni var hún í næfurþunnum brjósta- haldara. Hún leit niður og gerði sér allt í einu grein fyr- ir því hversu lítið þessi búnað- ur gerði til þess að hylja dökk- ar geirvörturnar. Það var víðsfjarri henni að ögra karlmönnum með kynæsandi klæðnaði. Nú varð henni ljóst að séð með augum Daniels gæti brjóstahaldarinn og blússan virkað sem ein- hvers konar áskorun, úthugs- að bragð til þess að draga at- hyglina að líkama hennar. Hún flýtti sér í jakkann og tautaði óstyrkri röddu: „Þakka þér fyrir.“ „Ekkert að þakka,“ sagði hann og þegar hún sneri sér við sá hún að hann virti hana fyrir sér, alvarlegur og hugs- andi. Skyldi hann hafa tekið eft- ir því hvernig geirvörturnar þrútnuðu við snertingu hans? Sjálf hafði hún gert sér óþægi- lega grein fyrir því. Hún bað til Guðs að svo hefði ekki ver- ið. Henni fannst ekki bara auðmýkjandi hvernig líkami hennar hafði brugðist við, heldur líka gjörsamlega óskiljanlegt. Hún hafði aldrei átt í vandræðum með að um- gangast karlmennina sem hún vann með. Hún hafði aldrei verið ein af þeim kon- um sem höguðu sér eins og bjánar innan um aðlaðandi karlmenn. Daniel var aðlaðandi, jafn- vel hún varð að viðurkenna það. Þessi blanda karl- mennsku og hlýju var mjög heillandi. Það var ekki erfitt að skilja það að Patricia Winter áliti hann verðugan arftaka eigin- mannsins. Skyldu þau ætla að gifta sig? Þau yrðu óneitan- lega glæsilegt par. Hún minnti sjálfa sig á að einkalíf hans kæmi henni ekki við. Hún tók upp töskuna sína, fegin því að hárið huldi andlit hennar og hann sæi ekki framan í hana. Hún skammaðist sín fyrir hugsan- ir sínar. „Bíllinn minn er beint fyr- ir utan,“ sagði Daniel þegar þau gengu gegnum móttöku- herbergið. Bíllinn var gamall, stífbón- aður Jagúar. „Lydia átti þennan bíl,“ sagði hann og opnaði dyrnar. „Hún arfleiddi mig að hon- um. Eg nota hann ekki oft en John og Lydia voru góðir vin- ir og hann getur séð bílinn út um gluggann.“ Charlotte sagði ekkert. Bíllinn var með leðursæt- um, leðrið var máð og sprung- ið. Charlotte hallaði sér aft- ur í sætinu og fann reiðina og gremjuna sem hafði fyllt huga hennar undanfarna daga víkja fyrir vonleysi. Henni fannst hún útilokuð frá töfra- heimi, áhorfandi að veislu sem henni yrði aldrei boðið í. Daniel hafði svo mikið að gefa, öllum þótti vænt um hann. Hvers vegna hafði hann ekkert að gefa henni? Hún rétti úr sér og minnti sig á að hún kærði sig ekkert um vináttu hans og þyrfti svo sannarlega ekki á henni að halda. Daniel var góður bílstjóri. Charlotte rifjaði upp orð vin- konu sinnar í London sem hafði eitt sinn sagt að góður Vikan 45

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.