Vikan - 31.10.2000, Blaðsíða 8
Slakað á heima á
íslandi. Fram
undan eru ferða-
lög með norsku
söngkonunni
Sissel Kirkeby.
bein og svo hefur hún svo stórt
hjarta. Þaðsem mérfannststór-
kostlegast á ferðalögum okkar
var hvað hún var góð við íslend-
ingana sem hún hitti. Það var
alltaf númer eitt hjá henni að
hitta íslendinga."
Fegurð í beinni útsenfl-
ingu
Doddý er alveg hörð á því að
það sé hægt að gera okkur öll
falleg. ,,Það er alveg tvímæla-
laust hægt. Mér finnst starfið
mitt einstaklega gefandi, en
mitt aðalstarf er að gera fólk fal-
legt. Ég er með einhvers konar
innbyggðan radar sem fer í gang
þegar ég hitti fólk og ég sé alltaf
það fallegasta í fólki. Ég hafði
mjög gaman af því þegar ég var
í hálft ár með innskot í morg-
unsjónvarpinu einu sinni í viku,
í þættinum God morgen, Dan-
mark. Fólk skrifaði þættinum,
sendi bréf ásamt mynd af sér og
bað um ráðleggingar í sambandi
við val á fatnaði, förðun og hár-
greiðslu. Ég litaði hárið á fólk-
inu daginn áður en allt annað
fór fram í beinni útsendingu.
Það var svo yndislegt að finna
hvað fólkið varð ánægt og hvern-
ig sjálfsmat þess breyttist. Það
varóhemjumikil aðsókn í þetta,
ég fékk fimmtán hundruð bréf
eftir fyrsta þáttinn. Eftir að ég
fór að birtast í sjónvarpinu varð
ég nokkurs konar almennings-
eign og það fannst mér frekar
óþægilegt. Ég tók mér þess
vegna hlé frá þættinum en það
getur vel verið að ég byrji ein-
hvern tíma aftur.“
Eigin snyrtivörulína
Kona eins og Doddý lifir og
hrærist í snyrtivörum daginn út
og daginn inn og er misjafn-
lega ánægð með þær vörur sem
boðið er upp á. ,,Ég er búin að
vinna sem stílisti í tuttugu og
fimm ár og kaupi snyrtivörur
hvar sem ég er stödd í heimin-
um. Égáorðiðaragrúa af snyrti-
vörum, það koma haustlitir og
það koma vorlitir og allt í einu
er maður búinn að safna þessu
að sér og svo endar þetta allt
saman ofan í skúffu. Frá því að
égstofnaði Monsoon hefur mig
dreymt um að framleiða eigin
snyrtivörur og einn daginn
spurði dóttir mín hvers vegna ég
drifi ekki bara í því að hanna
mína eigin línu.“
Og mamman settist niður og
fór að hugsa. ,,Ég er bara ein-
staklingur og er ekki með millj-
ónir á bak við mig eins og stóru
tískuhúsin. En það er nú einu
sinni þannigað það er allt hægt
þegar viljinn er fyrir hendi. Nú
er farið að framleiða snyrtivör-
urnar og fljótlega mun verða
hægt að kaupa þær á íslandi.
Margir af fastakúnnunum mín-
um eru farnir að nota þær, t.d.
danska leikkonan Ghita Nörby."
Líf í öðru landi
Lífið er ekki bara vinna.
Doddý og Jan, eiginmaður
hennar, eiga stóra fjölskyldu.
,,Elsta dóttir mín er þrítug og
sonur minn átján ára. Einnig á
Jan tvær stelpur sem búa hjá
okkur. Líklega á ég alltaf eftirað
búa í Danmörku og þar er ynd-
islegt að búa. En samt verð ég
að viðurkenna að ég hef alltaf
svolitla heimþrá. Ég verð að
komast heim til fslands með
reglulegu millibili til þess að
viðra mig og leyfa íslenskum
vindum að blása í gegnum mig,
eins og ég orða það. Yfirleitt
reyni ég að koma tvisvar á ári
og stundum kem ég jafnvel oft-
ar. Fyrir tíu árum keyptum við
seglbát og það er ástæða þess
að ég hef ekki farið mikið heim
til fslands á sumrin. Við sigl-
um mikið um sænska skerja-
garðinn þar sem landslagið
minnir svolítið á ísland. Það er
yndislegt að geta siglt út á haf
og verið í sambandi við náttúr-
una.“
Doddý er mikil fjölskyldukona
og hafði það fyrir sið að helga
börnum sínum einn dag í viku
þegar þau voru yngri. ,,Ég leyfði
þeim að mála sig, setja upp
leikrit og halda tískusýningar.
Ég sagði alltaf við krakkana
mína að ég ætlaði að viðhalda
þessum sið þegar ég yrði amma
og halda ömmudag á miðviku-
dögum. Ennþá erum við bara
tvær í hópnum, ég og 1 1/2 árs
gömul dótturdóttir mín, en það
er von á fjölgun í hópnum í apr-
íl. Þessi tími með dótturdóttur
minni er mér mjög dýrmætur,
það er mikil gjöf að geta varið
tímanum með henni og ég fæ
það margfalt til baka. Hún kall-
ar á mig á hverjum morgni þeg-
ar hún vaknar, nær svo í mynd
af mér og kyssir hana. Sam-
skiptin við hana eru mjög gef-
andi. “
Gaman að lifa
Lífið leikurgreinilega viðfjöl-
skylduna í Danmörku. ,,Mér
finnst lífið svo skemmtilegt. Ég
hef það fyrir reglu aðsegja upp-
hátt við sjálfa mig á hverjum
morgni að þessi dagur eigi eft-
ir að verða sá besti í lífi mínu.
Ég hef þá trú að þá gerist eitt-
hvað innra með manni. Ég hef
það líka fyrir reglu aðtala út um
hlutina jafnóðum og þeir koma
upp, tala hreint út, hreinsa and-
rúmsloftið og halda svo áfram.
Ég á góða fjölskyldu og nýt
þeirra forréttinda að fá að vinna
við það sem mér finnst
skemmtilegast, að gera fólk fal-
legt, draga fram persónuleika
þess og fá fram þann kraft sem
býr ífólki, kraftinn sem ég kalla
dýrið og kynþokkann í fólki.“
Það verður spennandi fyrir
okkur, íslenska kvenfólkið, þeg-
ar við getum farið að kaupa
snyrtivörurnar hennar Doddýjar.
Hún lofar því að það sé einfalt
að nota þær, litirnir séu fáir og
auðvelt fyrir allar konur að finna
eitthvað við sitt hæfi. Liti, sem
eiga uppruna sinn í íslenskri
náttúru.
8
Vikan