Vikan


Vikan - 31.10.2000, Qupperneq 14

Vikan - 31.10.2000, Qupperneq 14
texti. Gunnhildur Lily Magnúsdóttir Keramik fyrir alla í vinalegu bakhúsi við Laugaveginn situr fólk og málar á keramik, diska, bolla, platta og ým- islegt annað sem það ætlar að skreyta heimili sín með eða gefa í jólagjöf. Hér eru ekki lærðir listamenn á ferð heldur fólk af götunni sem hefur fundið farveg fyrir sköpunarþörf sína í galleríinu Keramik fyrir alla að Laugarvegi 48b. igandi gallerísins er Guð- rún Kristín Sigurðardótt- ir textílhönnuður. Þegar viðtalið er tekið hefur galleríið aðeins verið opið í um viku og hafa viðtökur verið góðar. „Fólk er forvitið og kemur og skoðar það sem aðrir hafa gert og spáir í hvað það geti sjálft gert. Flestir koma hingað til að gera eitthvað fyrir sjálfa sig til að skreyta heimili sitt með en sum- ir eru farnir að huga að jólagjöf- unum og hafa jafnvel nefnt að þeirætli aðgera allar jólagjafirn- ar hér," segir Guðrún Kristín. Galleríið er það eina sinnar tegundar hérlendis enda um nokkuð sérstakt fyrirbæri að ræða. Hlutirnir eru ódýrir og hægt er að fletta uppi bókum í leit að fallegum mynstrum til að mála eftir eða fá leiðsögn hjá Guðrúnu Kristínu. í vor kynnti Guðrún Kristín sér rekstur svona staða og sótti námskeið í keramikmálun á vinnustofu í Bretlandi. „Það var bæði fróðlegt og skemmtilegt og ég mun bjóða upp á námskeið eftir áramót þar sem farið verður dýpra í mörg afbrigði keramikmálunar en hægt er með þeim sem koma tilfallandi. Keramiknámskeiðin verða byggð upp með frjálsum mætingum, svona svipað og fólk stundar líkamsrækt. Ég ætla samt að taka forskot á námskeiðasæluna fyrir jól og hafa jólakvöld þar sem verður hægt að undirbúa jólin með sérlega áhrifaríkum aðferðum. Þau námskeið byrja fljótlega enda fyrirspurnir farnar að berast." „Fyrirmyndin er amerísk en svona gallerí eru afar vinsæl í Bandaríkjunum ogeru t.d. stað- sett í mörgum verslunarmið- stöðum þarsem fólkgetur kom- ið inn, sest niður og skapað. Ég hef auk þess rekist á svona gall- erí í Bretlandi, Þýskalandi og Noregi," segir Guðrún Kristín. En er hinn íslenski meðaljón ekkert feiminn við að stökkva inn af götunni og setjast niður við að skreyta og mála? „Jú, það vill brenna við að fólk sé dálítið feimið og afsaki sig með því að það kunni nú ekkert að mála og geti það ör- ugglega ekki. Sumir koma hing- að til að fylgjast með öðrum áður en þeir hafa sig í það sjálf- ir að gera eitthvað. Ég sýni fólki gjarnan fallega hluti sem aðrir, sem hafa sagst ekkert kunna, hafa gert. Þá sér fólk fljótt að þaðgeta allir búið eitthvað tiI,“ segir Guðrún Kristín. „Það hafa nefnilega allir ein- hverja sköpunarþörf og þurfa að fá útrás fyrir hana á einhvern hátt,“ bætir hún svo við eftir stutta umhugsun. Textflhönnuður í New York Guðrún Kristín segist hafa teiknað og málað frá því að hún var barn og slíkt hafi þótt sjálf- sagt í fjölskyldunni sem sé mjög listhneigð. ,, Það þótti ekkert tiltökumál að fá útrás fyrir sköpunarþörf- ina á einhvern hátt. Faðir minn hafði t.d. mikinn áhuga á skúlp- túr og sinnti honum í frístund- um og bróðir minn hefur hann- að bfla.“ Aðspurð um hvenær hún hafi ákveðið að leggja listina fyrir sig segir hún: „Ég var nú komin á miðjan þrítugsaldur þegar ég ákvað að fara út á þessa braut því ég tók mér frí frá námi í fimm ár eftir stúdentspróf áður en ég byrj- aði í Kennaraháskólanum. Það- an lauk ég svo prófi sem handa- vinnukennari ogstarfaði við það í um eitt og hálft ár. Ég fór svo til Philadelphiu í Bandaríkjunum í fjögurra ára nám í textílhönnun sem ég lauk reyndar á þremur árum með mikilli vinnu. Ég kunni ákaflega vel við mig í Philadelphiu en flutti þó að námi loknu til New York þar sem ég starfaði sem textílhönnuður í eitt ár.“ Hvernigvaraðvinna við hönn- un í milljónaborginni New York? „Ég kann mun betur við að vinna við mína hönnun í Reykja- vík en í New York. Mér fannst „Það hafa allir einhverja sköpunarþörf og þurfa að fá útrás fyrir hana á ein- hvern hátt.“ stórborgarlífið í New York ekki heillandi. Þar er mikið áreiti, al- veg sama hvar þú ert og fólks- mergðin gífurleg. Maður er aldrei einn með sjálfum sér og það er ægilegureri11 íborginni." En hvað með Reykjavík? Finnst þér hún vera stórborg líka? „Bæði og. Mér líður vel í Reykjavík enda uppalin hér en þetta hefðbundna stórborgarlíf sem maður finnur fyrir í öðrum borgum verður maður ekki var við hér nema kannski milli fimm og sjö á föstudögum þeg- ar umferðin er sem mest. Hér hafa allir pláss fyrir sjálfa sig. En menningarlífiðhérergott og í því tilliti má kannski segja að Reykjavík sé stórborg." fluga fyrir mynsfri Að lokinni Bandaríkjadvölinni starfaði Guðrún Kristín lengi sem peysuhönnuður þar sem hún hannaði alls kyns mynstur og hélt námskeið því tengdu. Hún vill ekki meina að það stingi í augu þegar hún sér fólk í peysum með Ijótu mynstri eða illa hönnuðu mynstri á gangi sínum um bæinn en viðurkenn- ir þó að hún sé alltaf með aug- un opin fyrir fallegri hönnun. „Jú, auðvitað er maður alltaf í leit að nýjum formum og mynstrum. Ég er svo heppin að þetta er bæði áhugamál mitt og vinna og því er ég sífellt að velta fyrir mér því sem fyrir augu ber og hvernig væri hægt að út- færa það á peysu, keramiki eða annars staðar." Auk hönnunarinnar segist Guðrún Kristín eiga sér ýmis önnur áhugamál. „Ég hef gam- an af að mála með vatnslitum og olíulitum. Svo stunda ég fluguveiði á sumrin og hef mjög gaman af garðrækt sem mér finnst bæði gefa mér mikið, vera góðfyrirsálina og lífga upp á umhverfið." En hvað vill Guðrún Kristín segja að lokum við þá sem-lang- artil aðsetjast niður ígalleríinu hennar og mála eitthvað fallegt en eru ekki vissir um að þeir þori því? „Mér finnst að fólk eigi fyrst og fremst að líta á þetta sem hönnun sem hefur notagildi því sumireru svo hræddirviðað líta á það sem þeir gera sem list. Ef fólk kemur með þessu hug- arfari tekur það sjálft sig ekki jafn hátíðlega og ella og er óhrætt við að prófa eitthvað nýtt og gera mistök. Yfirleitt kemur svo eitthvað mjög skemmtilegt og fallegt út úr því sem fólk hef- ur verið að gera hér og allir geta verið ánægðir með sitt að lok- um.“ 14 Vikan
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.