Vikan


Vikan - 31.10.2000, Side 18

Vikan - 31.10.2000, Side 18
Texti: Jóhanna H a r ð a r d ó 11 i r Þegar minnst er á heróínneytendur detta fæstum í hug hugguiegar, ungar húsmæður í falleg- um einbýlishúsum. Þannig er það samt í sumum til- fellum og ríkar, ungar konur eru ekki síður fórnar- lömb fíknarinnar en aðrir... eru vel klædd og þrifaleg. ( heimkeyrslunni stendurtveggja ára gamall BMV, en fyrrverandi eiginmaður hennar er sjómað- ur og mokar inn peningum. Isobel er ekki eina unga kon- an í Frazerburg sem á við fíkni- efnavanda að stríða og prest- urinn og félagsráðgjafar í bæn- um tengja fíkniefnaneysluna ríkidæmi og lífsleiða. Frazer- burg er dæmigerður bær þar sem ungar konur eru stór hluti fíkniefnaneytenda en þær eru kallaðar heróínhúsmæðurnar. Lítill bær með stórt vandamál Það er ekkert nýtt að sjómenn í Frazerburg og eiginkonur þeirra stundi hið Ijúfa líf því þeir hafa haft fúlgur fjár til að eyða. Áðurfyrrfóru peningarnir í dýra bíla og vín, en síðasta áratuginn lífi af heróínneyslu. Meira en helmingur þeirra eru hátekju- menn og eiginkonur vel stæðra sjómanna. Sandy er staddur í útjaðri nýrrar byggðar með nýtískuleg- um, dýrum húsum. „Hér í Frazerburg stunda menn ekki rán eða vændi til að verða sér úti um dóp. Þeir vinna fyrir því,“ segir Sandy. „Ef ég kastaði steini af handahófi hér upp í brekkuna í átt að einbýl- ishúsahverfinu eru líkurnar 1 á móti 3 að ég hitti hús eiturlyfja- neytenda." Sandy segir að í litlum bæ sem þessum þekki menn lífsstíl hver annars og bærinn skiptist í tvo hópa, þá sem þekki eitur- lyfjaneytendur eða séu í neyslu sjálfir og svo hina sem gera það ekki. Þessir hópar vita vel hvor af öðrum en eiga engin sam- skipti. Isobel er tuttugu og sjö ára gömul móðir í Frazerburg sem er fiskveiðibær í Skotlandi. Hún á fallegt einbýlishús sem er innréttað eftir nýjustu tísku og ekkert til sparað. Isobel lít- ur vel út þegar hún sést á göt- um úti og börnin hennar þrjú hefur sífellt stærri hluti þeirra farið í eiturlyf. Einn af þeim sem standa að endurhæfingarstöð fyrir eitur- lyfjasjúklinga í Frazerburg er Sandy Wisely en á síðustu tveim árum hefur hann tekið á móti hvorki fleiri né færri en 19 sjúk- lingum sem voru nær dauða en Isobel og fíknin Þegar börnin eru komin í rúmiðdregur Is- obel niður gardínurnar í fallega húsinu sínu og nær í heróínbaukinn sinn. Hún sprautar sig ekki frekar en hinar heróínhúsmæðurnar því þær vilja ekki láta sjá á sér. Hún sýgur það upp í gegnum strá líkt og gert er með kókaín. Is- obel notar heróín fyrir u.þ.b. 125 pund á dag eða um 15.000 krón- ur. Sumar vinkvenna hennar nota enn meira en hún. Isobel skildi við mann sinn fyrir tveimur árum eftir fimm ára hjónaband. Hún hélt húsinu og bílnum og fær góð- an framfærslueyri með börnun- um auk þess sem foreldrar hennar, sem eru útgerðarmenn, styðja við bakið á henni fjár- hagslega. „Ég er að reyna að hætta," segir hún. „Ég hætti í tólf vikur á síðasta ári en þá gafst ég upp. Wisely var mér góður en það dugði bara ekki. Ég er algerlega föst í þessu, ég get ekki hætt. Heróínið er eina ástin í lífi mínu, allt annað í mínu lífi er einskis virði.“ Þetta mundi líklega mörgum finnast undarlegur dómur yfir öllum þeim lífsgæðum sem Is- obel býr við. Enda er hún ekki sjálfri sér samkvæm því hún segist gjarna vilja losna við hús- ið, bílinn og „allt draslið" gæti hún bara losað sig við fíknina. Hún segir að sig vanti einfald- lega kjarktil að komast út úr því mynstri sem hún er búin að koma sér í. Isobel er svolítið veikluleg þótt það sé ekki beinlínis líkam- legt. Þrátt fyrir að hún hafi ver- ið á heróíni í tvö ár er hún vel tilhöfð, með fallegt dökkt hár, slétt andlit ogstæltan líkamaog íklædd dýrum og glæsilegum fötum. Hennar veikleiki erand- legur. Isobel var nítján ára þegar hún varð ólétt að elsta barninu en þá hætti hún í skóla og fór aðtaka þátt í neyslukapphlaup- inu. Hún hefur alltaf haft næga peninga handa á milli. „Égbyrj- aði ekki á þessu fyrr en eftir að ég skildi," segir hún. „Mér leiddist og égfóraðfara út með kunningjunum sem áttu alltaf nóg af kannabisefnum og heróíni. Það tók mig ekki nema þrjá daga að verða háð efninu. Ég hef aldrei þurft að selja mig eða stela fyrir skammti en pen- ingarnir mínir munu ekki end- ast að eilífu og ég veit að ég myndi gera hvað sem er fyrir heróínið. “ Vinahópurinn Isobel lifir og hrærist í heimi heróínsins og allir hennar bestu vinir eru eiturlyfjaneytendur. 18 Vikan

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.