Vikan - 31.10.2000, Page 24
Á hverju ári bætist
mikill fjöldi stúlkna í
hóp ungra mæðra í
landinu. Tvisvar til
þrisvar sinnum al-
gengara er að ís-
lenskar stúlkur, tví-
tugar og yngri, eign-
ist barn en kynsystur
þeirra annars staðar
á Norðurlöndunum.
Og tíðni fæðinga hjá
þessum hópi fer vax-
andi. En hvernig er
að vera ung móðir?
Hverjir eru kostirnir
og hverjir ókostirnir?
Hvaða afleiðingar
hafa barneignirnar?
Vikan spjallaði við
nokkrar stúlkur á
Akranesi sem fæddar
eru 1979. Stelpur úr
þeim árgangi hafa
verið einstaklega
duglegar við að fjölga
mannkyninu, jafnvel
svo að talað er um
„frjósemisárganginn
79“!
Blákaldar staðreyndir um
r „frjósemísárgangínn 79“ á
° Akranesi:
" Útskriftarhópurinn úr grunn-
° skóla samanstóð af 107 krökk-
w um úrtveimurskólum. Þaraf voru
'Z 54 stelpur. Á útskriftinni var ein
> þeirra ófrísk og eftir það fór bylgja
^ fæðinga af stað. Nú, fimm árum
« síðar, eru rúm 35% þeirra orðnar
^ mæður! 19 stelpur hafa eignast
'J, 20 börn. Strákarnir hafa verið
- heldur rólegri í þessum efnum og
~ aðeins þrír eru orðnir feður. At-
= hyglisvert er að af þeim sem eiga
e börn eru tæp 83% i sambandi
með hinu foreldrinu. Þrátt fyrir að
trúlofaðir einstaklingar innan út-
skriftarhópsins séu mjög margir
“ hefurenginn gengið í það heilaga!
Heba Agneta Stef-
ánsdóttir á soninn
Stefán Bjarka en
hann eignaðist hún
sextán ára gömul.
Stefán er fimm ára í
dag. Þau mæðgin
leigja fallega íbúð í
gamla bænum á
Akranesi.
Heba brosir þegar hún er spurð
hvernig það hafi verið að eign-
ast barn svona ung. „Það er
kannski dálítið lýsandi að þeg-
ar Ijósmóðirin rétti mér Stefán
Bjarka eftir fæðinguna spurði
ég: „Á ég hann?!" Auðvitað var
talsvert áfall að vera aðeins
fimmtán ára og uppgötva að ég
væri ófrísk. Satt best að segja
sá ég ekki fram á að ég gæti
höndlað þetta þar sem ég og
Sturla Guðlaugsson, barnsfað-
ir minn, vorum ekki einu sinni
saman á þeim tíma. Um leið
og mamma og pabbi fréttu
þetta stöppuðu þau í mig stál-
inu og sögðu mér að þetta yrði
allt í lagi. Og það reyndist rétt.“
Útskrift á næsta leiti
Heba hefur ekki setið auðum
höndum síðan hún átti Stefán
og Ijóst er að hér er á ferðinni
dugnaðarforkur. „Ég fór í Fjöl-
brautaskóla Vesturlands á Akra-
nesi þegar Stefán var ekki nema
mánaðargamall. Ég hafði út-
skrifast úr 10. bekk um vorið og
Fjölbrautin var því eðlilegt fram-
hald. Mamma og pabbi studdu
mig í að breyta ekki þeim plön-
um og ég tók þrjá áfanga fyrir
jól ogfjóra eftir jól. Þau pössuðu
Stefán ásamt föðurömmu hans
og það gekk mjög vel. Við Sturla
byrjuðum að vera saman og
bjuggum bæði hér og í Reykja-
vík. Ég tók eins og hálfs árs frí
frá námi til að vinna en ákvað
síðan að klára skólann. Ef allt
gengur samkvæmt áætlun út-
skrifast ég af félagsfræðibraut,
sálfræðilínu, vorið 2001.“
Þar sem Heba stundar nám
á framhaldsskólastigi á hún
ekki rétt á námslánum. Frá því
að hún hóf nám aftur hefur hún
því alltaf þurft að vinna með
skólanum. Hún segir að það sé
erfitt en gangi þó upp og er
ánægð með að geta staðið á eig-
in fótum.
Aðstæður skipta öllu máli
Heba segist verða að viður-
kenna að hún hafi að nokkru
leyti misst af unglingsárunum
en tekur fram að önnur atriði
vegi það fullkomlega upp. „Ég
hef fyllst mikilli ábyrgðartilfinn-
ingu, þetta er gífurleg reynsla
og ég held að ég meti vissa hluti
meira en stelpur á sama aldri,"
segir hún máli sínu til útskýr-
ingar. Hún efar að hún hafi upp-
lifað móðurhlutverkið öðruvísi
en aðrar mæður þótt hún hafi
verið svona ung og bendir á að
þrítug kona sem er að eignast
sitt fyrsta barn sé alveg jafn
ókunnug því og ungar stelpur.
Það sem aðallega skilji á milli
sé fjárhagslega hliðin. „Ef mað-
ur er búinn í námi hefur maður
visst öryggi. Ókosturinn við að
stelpur eignist barn mjög ung-
ar er sá að þær detta hugsan-
lega út úr skóla. Þetta er hins
vegar allt spurning um aðstæð-
ur. Ef menn eru ungir en að-
stæður góðar er þetta ekki það
mikið mál. Ég á sem dæmi frá-
bæran föður sem hefur reynst
mér ómetanlegur."
Heba og Sturla slitu samvist-
um fyrir rúmu ári. Þau höfðu
verið saman síðan Stefán var
hálfs árs. „Hann er ekki einn
af þeim sem stinga bara af!
Hann stendur sig mjög vel og
það er gott samband okkar á
milli", segir Heba. Hún er kom-
in í sambúð með Helga Reyni
Guðmundssyni sem er nemandi
í Fjölbrautaskólanum líkt og
hún.
Eftir stúdentsprófið segist
Heba ætla að fara í framhalds-
nám en er óviss um hvað verð-
ur fyrir valinu. „Síðan ætla ég
að eignast hús og bíl og að sjálf-
sögðu fleiri börn. í sjálfu sér
væri ég tilbúin til að eignast
annað barn núna en aðstæður
leyfa það ekki. Og svo er nátt-
úrlega betra að vera búin að
vera með kærastanum dálítið
lengur! “
24
Vikan