Vikan


Vikan - 31.10.2000, Síða 25

Vikan - 31.10.2000, Síða 25
Ætiaði alltaf að eignast mörg börn Gíslína Erna Valentínus- dóttir er nýorðin tuttugu og eins árs. Um þessar mundir er hún að flytja í eigið einbýlishús á Vestur- götunni á Akranesi ásamt unnusta sínum, Hallgrími Guðmundssyni, og Berg- þóru Hrönn, tveggja ára dóttur þeirra. Og nú er annað barn á leiðinni. „Éghef alltaf verið ákveðin íþví að eignast mörg börn,“ segir Gíslína Erna sem vill láta kalla sig Ernu. „Og þó að fyrsta barn hafi í rauninni ekki verið „plan- að“ þá myndi ég engu vilja breyta. Ég er ofboðslega ham- ingjusöm og hefði ekki kosið að bíða með pakkann í tíu ár.“ Vildu ekki láta líða of langt millí barna Erna veit hvað hún vill og er með hlutina á hreinu. „Ég var alltaf harðákveðin í að fara beint í hjúkrunarfræði eftir stúdents- próf frá Fjölbrautaskóla Vest- urlands á Akranesi og síðan í Ijósmóðurnám. Þrátt fyrir að hafa orðið ófrísk eftir tvö ár í framhaldsskóla seinkaði það mér ekkert og ég útskrifaðist með jafnöldrum mínum vorið 1999. Ég var búin að taka fleiri áfanga en venjulegt er því ég ætlaði upphaflega að útskrif- ast á sjö önnum. Það var því ekkert mál aðtaka þetta á átta.“ í fyrrahaust fór Erna í Háskóla íslands og keyrði suður á hverj- um degi og aftur heim. Það gekk vel og hún komst í gegn í hjúkrunarfræðinni. „Fjárhagslega hliðin hefur gengið vel upp enda er Hall- grímur í fullri vinnu sem smið- ur. Við höfðum því búið út af fyr- ir okkur slðan stuttu eftir að Bergþóra fæddist. Við ákváð- um að eignast barn númer tvö áður en hún yrði of gömul. Okk- ur fannst kominn tími til þess gagnvart henni, vildum ekki láta líða of langt á milli barna og var auk þess farið að langa í annað. Barnið fæðist nú í haust og ég ætla að dreifa öðru ári ( hjúkrunarfræðinni á tvö ár. Þriðja árið tek ég síðan í fullu námi og útskrifast að öllu óbreyttu vorið 2004.“ Allt hægt ef viljinn er fyrir hendi Erna segir fjölskyldu og vini hafa brugðist vel við fréttunum af fyrsta barni þrátt fyrir hversu ung hún var og þá staðreynd að hún og Hallgrímur hafi ekki ver- ið búin að vera lengi saman. „Ég er þessi mamma í mér og þeir sem þekkja mig vissu það. Auk þess var ég alltaf harðá- kveðin í því að halda áfram námi og það hafði ef til vill sitt að segja.“ Hún vill meina að mæður og feður ungra foreldra skipti mjög miklu máli. „Ef ég ætti ekki svona góða foreldra og tengda- foreldra væri ég ekki að gera það sem ég er að gera. Þau hafa ver- ið ótrúlega hjálpleg." Hún neit- ar því að það að vera ung móð- ir sé í eðli sínu erfiðara en ef þær eru eldri. Líkt og Heba seg- ir hún að þetta sé allt spurning um aðstæður. Ef þær eru góðar skipti aldur foreldra í sjálfu sér ekki máli. í framtíðinni segist Erna vilja eignast fleiri börn og nefnir tölurnar fjögur eða fimm. Fjöl- skyldan ætlar að búa á Akranesi og segir gott að vera þar. Hún hlær þegar hún er spurð út í giftingu og segiraðenginn dag- ur hafi verið ákveðinn en þau Hallgrímur trúlofuðu sig 1997. Erna segist ekki sjá eftir neinu og af geislandi andliti hennar er auðvelt að sjá að hún er hamingjusöm. „Það er allt hægt ef viljinn er fyrir hendi. Mikilvægt er að gefast ekki upp heldur halda bara sínu striki." Bergþóra Hrönn tekur undir orð móðursinnar meðstóru brosi og klappar á kúluna á maga henn- ar. Skildi hún eignast bróður eða systur? Vikan 25

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.