Vikan - 31.10.2000, Qupperneq 31
komið margir krakkar af báð-
um kynjum án þess að eiga fé-
laga á námskeiðinu."
Gúðar fyrirmyndir úr
poppheiminum
Þeir Herbert Viðarson og Arn-
grímur Fannar úr hljómsveitinni
Skítamóral eru umsjónarmenn
námskeiðsins ásamt þeim stöll-
um. Laðar það að þátttakend-
ur að vita að poppstjörnur muni
kenna þeim?
„Já, vissulega hefur það lað-
að að,“ segir Dagbjört. „Margt
fullorðið fólk telur að hljóm-
sveitargaurar séu einhverjir
töffarar sem lifi fremur óheil-
brigðu lífi en um það er alls ekki
að ræða í þeirra tilfelli. Þeir eru
því góðar fyrirmyndir fyrir þenn-
an hóp.“
„Við urðum sömuleiðis undr-
andi á því hversu lítið þurfti að
auglýsa þetta námskeið," segir
Dögg. „Það var aðeins auglýst
einu sinni og stór hópur skráði
sigstrax. Síðan hefur alltaf ver-
ið að bætast við í alla tíma og
við erum með milli þrjátíu og
fjörutlu börn í hverjum hóp.
Þetta gengur þannig fyrir sig
að maður þekkir mann og það
erskemmtilegt hversuvel þetta
gengur. Við erum fjögur og ráð-
um ágætlega við að kenna svo
mörgum en það er eins og þetta
spyrjist út og gott orð virðist
betra en nokkur auglýsing. Nú
höfum við hugsað okkur að færa
okkur inn í Planet Sport með
hópana og jafnvel er í bígerð
að bjóða þar upp á leikfimi fyr-
ir unglinga."
„Börn og unglingar geta vel
stundað almenna leikfimi og
eróbikk en þau eru ekki full-
vaxin og því mega þau ekki lyfta
þungu," heldur Dagbjört áfram.
„í eróbikkog leikfimi vinna þau
bara með eigin þyngd og það
hæfir þeim ágætlega. Við mæl-
um því alls ekki með að krakk-
ar fari í tækjasalina og vinni
með tækin sem þar eru.“
Foreldrar ánægðir
Þær Dagbjört og Dögg eru
grunnskólakennarar, eins og
áðursagði, og í námi sínu fengu
þær vissa fræðslu um líkams-
þjálfun en þær eru auk þess um
þessar mundir í einkaþjálfara-
skóla FÍA. Annarstrákanna hef-
ur lokið námi þaðan en hinn er
með samstarfskonum sínum í
skólanum. Hópurinn er mjög
áhugasamur um starf sitt. Þær
Dagbjört og Dögg segja að þótt
hugmyndin af námskeiðinu hafi
fæðst í hópvinnu í Heilsuskóla
Planet Pulse var uppbygging og
samsetning þess algjörlega
þeirra vinna.
„Öll dagskráin og allt sem
fram fer í tímum erokkar verk,“
segir Dagbjört. „Við höfum
einnig reynt að spyrja krakkana
hvernig þeim líkar það sem
fram fer til að fá gleggri hug-
mynd af því hvað fellur þeim í
geð til að byggja framhaldsnám-
skeið á. Krakkarnir eru yfirleitt
mjög ánægðir með allt en auð-
vitað er það misjafnt eftir ein-
staklingum hvað þeim líkar
best. Sumir hafa einnig alveg
á hreinu hvaða hreyfingu þeir
vilja stunda meðan aðrir hafa
ekki jafnmótaðar skoðanir."
Hvað með foreldrana eru þeir
ánægðir með það sem þið eruð
að gera?
„Ef börnin eru ánægð eru for-
eldrarnir ánægðir," segir Dögg.
„Við heyrum gjarnan frá for-
eldrum að þeir séu ánægðir með
hversu jafnt börnin standa,"
bætir Dagbjört við. „Ein móðir
ræddi sérstaklega við mig um
daginn og sagði mér hversu
ánægð hún væri með
að börnin væru ekki
flokkuð niður. Hún
sagði að sonur henn-
ar væri ævinlega val-
inn síðastur þegar
verið væri að kjósa í
lið í fótbolta í skól-
anum og þetta hefði
orðið til þess að
draga úr áhuga hans
á íþróttum. Þetta er
einfaldlega það sem
gjarnan gerist þegar
keppni er I gangi. Ég
held að það sé ekki óraunsætt
að búast við að í framtíðinni
verði líkamsræktarstöðvar í
meira mæli opnar börnum og
sérstök námskeið I gangi þar
ætluð þeim. Hreyfing er fyrir
alla og allir krakkar geta notið
hreyfingar. Við viljum að krakk-
arnir læri að hreyfing er sjálf-
sagður og skemmtilegur hlutur
og þú þarft ekki að vera sterk-
ur á einhverjum ákveðnum svið-
um til að geta notið þess að
hreyfa þig.“
„Við leggjum mikla áherslu
á jákvætt viðhorf,“ segir Dögg.
„Reynum að sýna fram á að
hreyfing er ekki kvöð heldur
skemmtun. Ég sé þó fyrir mér í
framtíðinni að hægt verði að
koma að meiri fræðslu, nám-
skeiðin sem eiga eftir að koma
munu auðvitað mótast af þessu.
Annars hefur allt gengið von-
um framar og byrjunarörðug-
leikar engir verið. Við áttum von
á að við myndum reka okkur á
ýmislegt sem betur mætti fara
en það hefur ekki verið.“
„Já, ég veit að þetta er lygi-
legt,“ tekur Dagbjört undir.
„Allt hefur gengið eins og í lyga-
sögu. Ég held þó að það megi
þakka góðum undirbúningi. Við
undirbjuggum námskeiðið mjög
vel og gerðum ítarlega áætlun
fyrir hverja viku.“
Þessi góði undirbúningur
virðist skila sér vel því enn
streyma kraftakrakkar að þeim
Dagbjörtu og Dögg reiðubúin að
læra gildi hreyfingar og hversu
skemmtileg hún er. Á þeim
stöllum er að heyra að framhald
verði á þessum námskeiðum og
svo sannarlega virðist vera mik-
il þörf fyrir þau.
Vikan
31