Vikan


Vikan - 31.10.2000, Side 51

Vikan - 31.10.2000, Side 51
Maskarar fyrir alia frá Max Factor Max Factor framleiðir maskara sem hæfa mismunandi þörfum hvers og eins. Lash Silks maskarinn gefur góða sveigju á augnhárin og þekur hvert hár. Max Factor 2000 Calorie Mascara gefur 200% meiri fyllingu og augnhárin virka mun lengri. Max Factor Stretch lengir augn- hárin og þéttir þau. Aqua Lash er vatnsheldur og hentar vel þeim sem stunda íþróttir og útivist. Max Factor er maskari kvikmyndastjarnanna og Gwy- neth Paltrow segir að Max Factor lengi og þétti augnhárin stórkost- lega án þess að þekja þau þykku lagi af svörtu kremi þannig að þau virki þykk og stökk. Þess f stað séu augnhárin silkimjúk, sveigjanleg, þétt og óvenjulöng. Biómailmur frá Kenzo Flower frá Kenzo er ilmvatn sem byggir á blómailmi fyrst og fremst. Búlgarskar rósir, fjólur og jasmína mynda uppistöðuna í þessu einstaka ilmvatni. Örlítill vanillukeimur gefur ferskan blæ og hvít moskushneta eykur á dulúðina. Þetta er ilmvatn sem var hannað til að tengja borgarbarnið aftur villtri náttúru og gefa því kost á að njóta endurnærandi eiginleika fersks blómailms. Umbúðunum er ætlað að sameina kosti borgarlífs og ósnertrar náttúru. Útlit þess var hannað með nútímaarkitektúr í huga og notast er við eitt vin- sælasta efni í byggingum í dag, nefnilega gler. ( mjúk- ri sveigju glassins teygir sig síðan rauð draumsóley til himins, í átt að birtunni, og minnir þannig á náttúr- una og til að minna á óendanlega fjölbreytni náttúr- unnar eru glösin þrjú en ekki eitt. Le Feu d’lssey Lighi Issey Miyake er löngu heimsþekktur fyrir fatahönnun sína en nú hefur hann hafið framleiðslu ilmvatna sem hann telur passa nútímakonunni einstaklega vel. Le Feu d’lssey varð til rétt eftir að hin byltingarkennda fatalína hans Pleats to Please var fyrst sýnd og Issey segir um hana að hún hafi verið tilraun hans til að skapa föt sem hæfðu daglegu lífi. Sama hugmynd liggur að baki hönnun ilmsins Le Feu d’lssey þ.e. að notagildið er sett ofar öllu, að allir geti notað hann og lagað að sínum smekk og tilfinningum. Leu Feu d’lssey Light byggir á sama grunntóni og Le Feu d'lssey en bætt er við ömbru og blakkaviði sem gefa léttan og glaðværan tón í ilmvatnið sem minnir á áhyggjuleysi æskunnar. Vikan 51

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.