Vikan


Vikan - 31.10.2000, Page 61

Vikan - 31.10.2000, Page 61
Susan Keane á iðulega í vandræðum í einkalífinu og þvælist ástin sérstaklega fyrir henni. Þá getur verið gott að eiga góða ömmu sem hefur upplifað sitt lítið af hverju og hefur ráð undir rifi hverju. rooke Shields sjónvarpsþáttum eins og The Simpsons árið 1989 og í Fri- ends árið 1994. Hlutverkið sem kom Brooke Shields aftur á kortið var hins vegar hlutverk blaðakonunnar Susan Keane í þáttunum Sudd- enly Susan sem komu á skjá- inn árið 1996. Þættirnir vöktu heimsathygli á Brooke og þrátt fyrir að þeir hafi ekki mokað inn jafn miklum peningum ogtil var ætlast ogframleiðslu þeirra hafi verið hætt er Brooke á beinu brautinni og nú streyma kvik- myndatilboðin til hennar. Hún lék meðal annars í rómantísku gamanmyndinni The Bachelor í fyrra og fyrr á þessu ári lék hún í kvikmyndinni After Sex og hlaut góða dóma fyrir. SIOSÖM OG SAKLAUS Þrátt fyrir að Brooke Shields hafi verið kynþokkafull og falleg frá unga aldri hefur hún alltaf haft orð á sér fyrir að vera ákaf- lega siðsöm. Hún krafðist þess til dæmis þegar hún lék I Bláa lóninu að sítt hár hennar væri límt yfir brjóstin á henni svo ekkert sæist og sýnir það vel að þessi fjórtán ára táningsstúlka hafði svo sannarlega bein í nefninu. Húnvaróhræddviðað segja hverjum sem er að hún væri hrein mey á unglingsárun- um ogersögð hafa haldið í mey- dóminu fram á þrítugsaldurinn. Húnlékoft ,, upp fyrir sig“ þegar hún var unglingur, þ.e.a.s. persónur sem voru eldri en hún sjálf en hélt samt alltaf barnslegu sakleysi sínu. Frægt er hvernig hún snéri sig snilld- arlega út úr því þegar hún var spurð að því í sjónvarpsviðtali þegar hún var fimmtán ára göm- ul hvað henni fyndist gott í bólinu: „Gott í bólinu? Það er til dæmis þegar ég er veik heima og sit uppi í rúmi og horfi á sjón- varpið og mamma færir mér súpu í rúmið. Það finnst mér gott í bólinul", sagði Brooke þá kotroskin. Hún er kaþólsk fram í fing- urgóma, ræktar trúna vel og fékk hjónaband sitt og tennis- leikarans Andre Agassi ógilt þrátt fyrir að þau hefðu verið gift í tvö ár, en þau skildu fyrir rúmu ári, svo hún gæti gifstaftur inn- an kaþólsku kirkjunnar. Auk tennisleikarans fræga hefur Brooke verið orðuð við ýmsa fræga menn í gegnum tíð- ina. Hún var meðal annars í tygjum við söngvarann Michael Bolton, leikarann Liam Neeson ogJohn heitinn Kenndy yngri. í dag er Brooke hamingju- samlega trúlofuð handritshöf- undinum og framleiðandanum Chris Henchy. Sennilega er Brooke rómantísk í sér og viss um að sambandið muni endast því hún lét húðflúra nafn unnustans á ökklann á sér fyr- ir stuttu. Einlæg kona sem trú- ir á eilífa ást!

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.