Vikan - 14.11.2000, Page 6
PÉg hef alltaf verið svolít-
ið gjörn á að vaða í hlut-
ina,“ segir Guðný. „Ég fæ
hugmynd og ég framkvæmi
hana. Fyrir nokkrum árum hefði
ég hins vegar sennilega hrund-
ið af stað þessari hugmynd
minni en fengið aðra til að sjá
um hagnýtu hliðarnar. Nú hef
ég hins vegar hugsað mér að sjá
um allt sjálf, allt frá bókhaldi og
skipulagningu, upp í markað-
setningu og þróun. Ég hef hugs-
að mér að fara á námskeið hjá
Iðntæknistofnun og læra allt
um rekstur smáfyrirtækja."
Fyrirtæki Guðnýjar, Gerið það
sjálf, stendur fyrir námskeið-
um í öllu er lýtur að viðhaldi á
heimilum og þegar hafa verið
haldin námskeið um ýmislegt
sem lýtur að málningu, flísa-
lagningum, rafmagni, pípulögn-
um og parketlögnum og til
stendur að bjóða upp á fleira.
Á vefnum er að finna allar frek-
ari upplýsingar um fyrirhuguð
námskeið og kennslufyrirkomu-
lag og slóðin er www.gerid-
tadsjalf.is. En hvernigstóðá því
að einstæð móðir ákvað að taka
áhættuna á að stofna eigið fyr-
irtæki frekar en að vinna fyrir
aðra?
„Ég hef unnið við ferða-
mannaþjónustu í tólf ár, síðast
hjá SAS flugfélaginu hér á ís-
landi. Þegar ákveðið var að loka
skrifstofunni missti ég drauma-
starfið mitt og stóð eiginlega á
Áræði og kjarkur vekja alltaf aðdáun því fólk sem þorir að leggja á
djúpið upp á von og óvon verður ávallt sjaldgæfara en hitt sem kýs að
stíga hvert skref af varkárni. Guðný Hansen er ein af þeim sem lætur
sér fátt fyrir brjósti brenna og nú hefur hún stofnað fyrirtæki til að kenna
fólki að taka málin í sínar hendur og sinna viðhaldi heimila sinna betur.
krossgötum. Ég hafði verið svo
ánægð í starfi hjá SAS að mig
langaði ekki aðfara aðvinna við
eitthvaðsvipað hjá öðrum, lang-
aði frekar að reyna eitthvað nýtt.
f vetur kviknaði svo þessi hug-
mynd að gefa fólki kost á að
læra að nostra við, laga og
betrumbæta heimili sín. Aðrir
sem bjóða svipuð námskeið fara
mjög ítarlega í hlutina og fólk
þarf að sitja á skólabekk í heila
önn. Auk þess er það sem ég
býð upp á mínum námskeiðum
Vikan