Vikan - 14.11.2000, Side 11
Unnur Óttarsdóttir er
kennari og listmeð-
ferðarfræðingur. Hún
útskrifaðistfrá Kenn-
araháskóla íslands árið 1986
og lagði stund á listmeðferð við
Pratt Institute í New York þar
sem hún lauk meistaragráðu
árið 1991. Unnur vinnur nú að
doktorsritgerð sem fjallar um
hvernig hægt sé að nota mynd-
ir og list til þess að vinna úr til-
finningalegu álagi (s.s skilnaði
foreldra, veikindum, alkóhól-
isma, dauðsföllum og ofbeldi)
og eins til að aðstoða við nám
en hún hefur þróað aðferð, í
gegnum starf sitt sem sérkenn-
ari, sem tengir saman myndir,
kennslu og listmeðferð.
,,Mér hefur alltaf fundist
mjöggaman að teikna og búa til
hluti og ég féll alveg fyrir list-
meðferðinni við fyrstu kynni,
bæði persónulega og faglega.
Það er algengur misskilningur
að fólk þurfi að hafa hæfileika
til að teikna eða mála til þess
að geta tekið þátt í listmeðferð
en svoerekki ogfólki eryfirleitt
frjálst að teikna hvað sem er,“
segir Unnur og brosir. ,,List-
meðferð er kennd á háskólastigi
en það er aðeins hægt að nema
hana erlendis enn sem komið
er. Þeir sem veita meðferðina
bera starfsheitið listmeðferð-
arfræðingar og fer hún fram á
flestum stöðum þar sem hug-
að er að andlegri velferð skjól-
stæðinga. Hér á landi fer hún,
enn sem komið er, einkum fram
á sjálfstæðum meðferðarstof-
um, í skólum og á sjúkrahús-
um en víða erlendis er hún
einnig veitt í fangelsum og í
áfengismeðferð, svo dæmi séu
nefnd."
Virkjar undirmeðuítundina
Listmeðferð á rætur sínar að
rekja bæði til listarinnar og sál-
greiningar og þróaðist samtím-
is í tveimur heimsálfum ann-
ars vegar Evrópu, nánar tiltek-
ið í Bretlandi, og hins vegar í
Ameríku, þ.e.a.s. Bandaríkjun-
um, upp úr 1950.,,! Bandaríkj-
unum var megináherslan á sál-
greiningu og þartóku menn eft-
ir að myndir og list virtust ná
til undirmeðvitundarinnar líkt
og draumar. Þeir álitu að í
myndum kæmi fram ómeðvit-
uð tjáning og að tákn í listinni
virkuðu á svipaðan hátt og í
draumum.
( Bretlandi var lögð meiri
áhersla á listina og þar voru
listamenn fengnir til þess að
vinna með fólki sem átti við
depurð og þunglyndi að stríða,
m.a. til að örva sköpunargleði
og tilfinningalega útrás sem
varð til þess að skjólstæðingarn-
irurðu líflegri. Um 1960erfar-
iðeraðtala um listmeðferð sem
faggrein. Hún er sífellt í mót-
un og hefur meðferðin fengið já-
kvæð viðbrögð, bæði hérlendis
og erlendis," segir Unnur.
Fólk leitar til listmeðferðar-
fræðinga af ýmsum ástæðum.
,,! listmeðferð er tekist á við sál-
rænan vanda og kreppu sem
skapast oft við t.d. þunglyndi,
skilnað, missi, einelti eða kyn-
ferðislega misnotkun. Það geta
allir notið góðs af listmeðferð
óháð aldri og fullorðnir koma oft
til að vinna úr vanda, tjá sig án
orða og þroska sjálfan sig með
því að fá aukið innsæi og dýpt
í sálarlíf sitt.“
Tjáning án orða mikilvæg
Flestir nota tungumálið sem
aðaltjáningarmiðiI. Málið er þó
ekki eini mögulegi tjáningar-
mátinn. Listin og tjáning án
orða, eins og á sér stað í list-
meðferð, tjáir einnig hugsun og
tilfinningar. Þannig opnast í
listmeðferð möguleiki á að
víkka út tjáningarsvið einstak-
lingsins.
Unnursegirsérkenni listmeð-
ferðar vera tjáninguna sem fer
fram án orða, þ.e.a.s. með list-
inni. ,,! meðferðinni er listin
notuð sem tjáningarform og það
er þessi tjáning án orða sem er
m.a. styrkur meðferðarinnar.
Meðferðin hentar börnum af-
skaplega vel, þar sem mynd-
málið er þeirra tungumál. Börn
eru málfarslega og vitsmuna-
lega ekki eins þroskuð og full-
orðnir og eiga oft auðveldara
með að koma tilfinningum og
reynslu til skila í mynd en orð-
um. Það sama má segja um fólk
með þroskafrávik og fólk sem
hefur lítinn málfarslegan
þroska. Stundum er myndræna
tjáningin eina leiðin sem við-
komandi hefurtil aðtjásig. Það
sem unnið er með getur verið
svo sárt að fólk á erfitt með að
tjá það með orðum og þá eru
myndirnar mikilvægar. Ein
mynd getur sagt meira en þús-
und orð á augnabliki og opnað
heim inn í manneskjuna."
Hún segir að í listmeðferð sé
oft hægt að nálgast vandann á
óbeinan hátt. ,,Það getur verið
mjög gott að vinna úr áföllum
og erfiðri re á táknrænan hátt í
gegnum mynd. Skjólstæðingur-
inn talar þá um það sem er að
gerast á myndinni í þriðju per-
sónu og notar persónufornöfn-
in ,,hann“ eða ,,hún“ í staðinn
fyrir ,,ég“ „, segir Unnur. ,,!
meðferðinni er leitast við að
orða tjáninguna, sem farið hef-
urfram, með listinni einsogvið-
eigandi er á hverjum tíma.
Þannig er brúað bilið á milli til-
finninga og orða og það ómeð-
vitaða gert meðvitað sem enn
frekar leysir úr togstreitu og
styrkir einstaklinginn."
Tími og traust skipta máli
Talið er að fyrstu tvö árin í
lífi barnsins séu mikilvæghvað
varðar t.d. getuna til að mynda
tengsl við aðra og læra að
treysta. „Börn upplifa margvís-
lega lífsreynslu áður en þau ná
að þroska með sér mál og ef þau
hafa átt við einhvern vanda að
stríða á þessu tímaskeiði getur
verið erfitt að komast að honum
ogjafnvel ómögulegt. Hinsveg-
ar eru uppi kenningar um að
hugsanlega sé hægt að nálgast
reynslu í lífi barna frá þessum
tíma í gegnum listina og með-
ferðarsambandið og vinna með
t.d. samband móður og barns í
upphafi á þann máta."
Vikan
11