Vikan


Vikan - 14.11.2000, Síða 18

Vikan - 14.11.2000, Síða 18
Texti: Jóhanna Harðardóttir Sjúkdómur en ekki vesaldómur Lfður ðér illaP Þegar manni líður illa and- lega er stundum erfitt að meta sjálfur hvort um er að ræða tímabundna vanlíðan sem hverfur af sjálfu sér eða sjúk- dóm. Til er próf frá Karólínska sjúkrahúsinu I Stokkhólmi sem notað er til að meta hvort sjúk- lingur sé haldinn þunglyndi. Þegar þú tekur prófið skaltu hafa í huga andlega líðan þína undanfarna þrjá daga. Gerðu hring utan um þá tölu sem lýs- ir best líðan þinni (notaðu 0,5 1,5 og 2,5 ef þú ert mitt á með- al tveggja staðhæfinga). Taktu þér ekki of langan tíma til að svara, reyndu að svara viðstöðu- laust öllum spurningunum. Oroleiki 0 Ég er yfirleitt róleg(ur). 0,5- 1----- Ég fæ stundum óróleikaköst. 1,5- 2,5- Ég er oft mjög óróleg(ur), stundum er sú tilfinning mjög sterk og ég verð að taka mig á til að hafa stjórn á henni. Ég er með stöðuga, sterka kvíða- og óróleikatilfinningu sem ég hef enga stjórn á. Einkenni þunglyndis eru mörg. Gleðin hverfur úr lífi þunglyndissjúklingsins, hann getur fengið slæm kvíða- köst og það verður erfitt að einbeita sér og framkvæma auðveldustu hluti. Þunglyndi er algengari sjúkdómur en of hár blóðþrýstingur og sykursýki. Samt sem áður eru sjúklingarnir ósýnilegri. Ein ástæðan er sú að sjúklingarnir sjálfir gera sér oft ekki grein fyrir að þeir séu haldnir sjúkdómi, önn- ur ástæða eru fordómarnir gegn sjúkdómn- um sem því miður eru enn til staðar og koma í veg fyrir að sjúklingarnir leiti sér hjálpar og tjái sig um sjúkdóminn. Það er mjög áríðandi að þeir sem haldnir eru þunglyndi leiti sér lækninga en til þess þarf sjúklingurinn að vera meðvitaður um að hann sé haldinn sjúkdómi. Skapið Svefn 0,5- 1,5- Ég er ýmist glöð (glaður) eða 0------- leið(ur), allt eftir því sem um- hverfið býður upp á. 0.5- Ég er yfirleitt niðurdregin(n), 1 — en líður þó stundum sæmi- lega. 1,5- Ég er yfirleitt niðurdregin(n) 2 — ogsvartsýn(n). Éggleðstekki 2,5—| yfir hlutum sem venjulega hefðu glatt mig. Ég er svo niðurdregin(n) og óhamingjusöm(samur) að mér gæti ekki liðið verr. 2,5- Ég sef rólega og nýt þeirrar hvíldar sem ég þarfnast. Ég á ekki erfitt með að sofna. Ég á stundum erfitt með að sofna og sef ekki eins vel og venjulega. Ég sef a.m.k. tveim tímum minnaenvenjulega. Égvakna oft á nóttinni, jafnvel þótt ekkert trufli mig. Égsef mjög illa, allt niður f 2- 3 tíma á nóttu. \ 18 Vikan

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.