Vikan - 14.11.2000, Side 21
NOKKUB ORC Uffl
Til er eitt orð í íslenskri
tungu sem ég á bágt
með að sætta mig við.
Það er orðið kjaftakerl-
ing. Kannski er það
vegna þess að orðið
gefur það freklega til
kynna að það séu bara
konur sem hafi gaman
af því að smjatta svolítið
á lífi annarra og þá
kannski sérstaklega á
óförunum í lífi annarra.
En staðreyndin er sú að
karlar iðka ekki síður
þessa þjóðaríþrótt, bara
undir svolítið öðrum for-
merkjum.
1 I ndanfarið hefég búið
~ í. j erlendis en komið
j j heim til íslands með
== nokkuð reglulegu
~ millibili. f hvertsinn sem égsvíf
~ í háloftunum og sé á klukkunni
c að föðurlandið nálgast óðfluga
| byrjar hjartað að hamast í
^ brjóstinu á mér. Bráðum er mér
óhætt að kveikja á gemsanum.
.- í einhvers konar sjálfspíningu
* hef ég þá reglu að kveikja ekki
i- á honum fyrr en ég stend við
færibandið og bíð eftir því að
taskan mín sé líka komin heim.
Skjálfhent kveiki ég svo á sím-
anum og stimpla mig inn. Eft-
ir bráðnauðsynlegustu kurt-
eisiskveðjur get ég loksins spurt
spurningarinnar sem lengi hef-
urbrunniðávörunum: „Hvaðer
að frétta? Er eitthvað að ger-
ast?“
Nú má alls ekki skilja það
sem svo að við sem höfum gam-
an af slúðri séum endilega í leit
að sögum af óförum, hjóna-
skilnuðum, framhjáhaldi og
öðru I þeim dúr. Alls ekki. Slúð-
ur getur nefnilega verið ákaflega
jákvætt og eingöngu af hinu
góða. Ég vil alls ekki líkja okk-
ur slúðurfagurkerunum við fólk
eins og rithöfundinn Dorothy
Parker sem gjarnan heilsaði
fólki með því aðsegja: ,,Komdu
nú og sestu hérna hjá mér, svo
framarlega sem þú hefurekkert
gott um náungann að segja.“
Spurningu minni áflugvellin-
um er yfirleitt svarað með
annarri spurningu: „Varstu búin
að heyra ...?“ Hvílík sæla. Ég
er komin heim.
Fréttirnar eru misjafnar eftir
því af hvoru kyninu sá er sem
á hinum endanum er. Ef ég hef
valið ,,karlkynsnúmer“ eru
fréttirnar yfirleitt um hver hafi
sótt um hvaða stöðu, hvort ein-
hver hafi verið að svindla í pen-
ingamálum eða hvort einhver
hafi verið rekinn úr starfi og
stöðu. Ef „kvenkynsnúmer"
hefur verið valið eru fréttirnar
á svolítið öðrum nótum, hver
sé byrjaður að vera með hverj-
um, hver sé skilinn við hvern,
það sé komin ný verslun í
Kringluna sem við þurfum endi-
lega að heimsækja við fyrsta
tækifæri og þar fram eftir göt-
unum.
Átímum Internetsogannarra
skyndifjarskipta er maður auð-
vitað í beinu sambandi við um-
heiminn hvar sem maður er
staddur. Hægt er að fylgjast
með heimsviðburðum eiga sér
stað f beinni útsendingu og
bréf, sem áðurvoru marga daga
að berast í pósti, þjóta yfir höf
og lönd á svipstundu. Það ger-
ir okkur mannfólkinu auðvelt að
fylgjast með því sem gerist jafn-
óðum og það gerist. En það
jafnast samt ekkert á við það
að sitja á notalegu kaffihúsi eða
uppi í sófa og fá slúðrið augliti
tilauglitis. Þaðereinhvern veg-
inn svo miklu nánara og nota-
legra. Slúður þarf nefnilega að
fara fram við notalegar aðstæð-
ur, helst með
rauðvíni og
kertaljósum.
Slúður hef-
ur valdið mér
vonbrigðum á
Spáni, land-
inu þar sem
ég hef búið
undanfarið.
Éguppgötvaði
mér til mikill-
ar skapraunar
að þar er þetta
ágæta fyrir-
bæri almenn-
ingseign,
maður þarf
ekki einu
sinni að
hvísla, allir
eiga heimt-
ingu á að vita
allt. Það er
nóg að fara á
hverfisbarinn
til þess að fá
að heyra að
Jón hafi verið
að halda fram
hjá Gunnu, að
Kalli sé á kafi
í kókaíni og Palli sé að drepast
í blöðruhálskirtlinum. Þetta eru
einfaldlega blákaldar stað-
reyndir sem allir hafa skoðun á
og leggja sitt til málanna, jafnt
karlar sem konur. Það vantar
alla þessa viðkvæmu, spenn-
andi nálgun sem gerir slúður
svo gómsætt og gott.
Reynsla mín af slúðri í þess-
um tveimur löndum hefur leitt
í Ijós að við íslendingar erum
Spánverjum fremri í þessari
ágætu íþrótt. Samt veit ég að ég
mun ekki geta stillt mig um að
leika gamla leikinn næst þegar
ég bíð eftir töskunni minni við
færibandið á flugvellinum í
Barcelona. Ég mun kveikja á
gemsanum og velja eitthvert
númer af handahófi og spyrja
spurningarinnargóðu: „Hvaðer
að frétta?" Ef til vill verð ég
heppin með viðmælanda sem
hefur vit á því að spyrja á móti:
„Varstu búin aðfrétta ...?“ Það
sakar ekki að reyna að ala
spænsku þjóðina upp í góðum
siðum og þjálfa þá í íþróttinni
sem við íslendingar iðkum
manna best.
Vikan 21