Vikan - 14.11.2000, Page 49
FÆST Á BLAÐSÖLUSTÖÐUM UM ALLT LAND
ÁSKRIFTARSÍMI: 515-5555
í nýjasta tölublaði
MANNLÍFS er að finna
viðtöl við Hallgrím
Helgason rithöfund um
nýja leikritið hans, Skálda-
nótt, Elízu Geirsdóttur,
söngkonu í Bellatrix, og
Guðna Elísson bók-
menntafræðing sem situr í
jafnréttisráði. Friðrik
Friðriksson leikari sýnir
okkur uppáhaldshlutina
og Kjartan Már, Ijós-
myndari hjá Atmo, opnar
möppuna sína. Friðrik
Erlingsson segir frá nýj-
ustu skáldsögunni sinni
og ekki ómerkari maður
en Brad Pitt talar um brúðkaup sitt og Jennifer Aniston og kvikmyndina
Snatch sem verður sýnd hér á landi innan tíðar.
Hjónin Anna Pálína Árnadóttir og Aðalsteinn Ásberg Sigurðs-
son hafa bæði gefið út plötur og bækur fyrir börn en veikindi hafa sett mark
sitt á líf þeirra því í fyrra greindist Anna Pálína með krabbamein i brjósti.
Greinin Efla íþróttir alla dáð? er afar áhugaverð en þar er fjallað um
þær fórnir sem afreksfólk verður oft að
færa til að komast á verðlaunapall. Bryn-
hildur Þórarinsdóttir kryfur hinn japanska
Pokémon og greinin Lifðu með hrukku
en ekki í krukku tekur á því hvort
hrukkukremin, sem seljast eins og heitar
lummur um allan heim, geri eitthvert gagn.
Gætum við allt eins skellt sinnepi framan í
okkur?
Óskarsverðlaunahafinn Julie Christie var
stödd hér á iandi við tökur á mynd Hals
Hartley, Monster. Hún veitti Mannlífi einka-
viðtal.
Glæsilegur
myndaþáttur
með flottustu
stelpunum í
bænum. Þær
eru fallegar og
hæfileikaríkar
og virðast geta
hvað sem er.
Ruth Reginalds hef-
ur sagt skilið við eit-
urlyfin og gefið út
nýjan geisladisk
sem heitir einfald-
lega Ruth. í hispurs-
lausu viðtali segir
hún m.a. frá írskum
blóðföður sínum
sem hún kynntist
fyrst um tvítugt, lífi
sínu sem barna-
stjarna og mannin-
um sem hún giftist
eftir aðeins þriggja
mánaða kynni.
Hin dularfulla
Vigdís Gríms-
dóttir hefur sent
frá sér nýja bók
sem heitir
Þögnin. Hér tal-
ar hún um
gagnrýnendur,
bækur og breyt-
ingaskeiðið.
SPENNANDI, FLOTT
OG FJÖLBREYTl