Vikan - 14.11.2000, Síða 51
«t3 Þykjast hafa ofnæmi fyrir
köttum þegar þú biður um
leyfi til að fá þér kettling í
fjölbýlishúsið.
eO Þykjast hafa vit á öllu.
etj Reyna blygðunarlaust við
elskuna þína fyrir framan
þig-
et3 Tala mikið um ekkert.
Útskýra bíómyndina fyrir
þér á meðan þið eruð að
horfa á hana.
eQ Bjóða þér heim í mat og
á eftir á óvænta Rainbow
ryksugukynningu!
et3 Verða alltaf að eiga síð
asta orðið og hafa
vit á öllu.
et3 Eru óstöðvandi í
tali sínu um eigin
veikindi og gæta
þess að hafa lýs-
ingarnar afar ná-
kvæmar.
et3 Kvarta yfir þyngdinni
á meðan þeir fá sér
Snickers og kók.
ét3 Kvarta yfir offitu íslend-
inga á meðan þeir eru
sjálfir of feitir.
et3 Tala um hvað þeir séu feit-
ir þegar þeir eru að detta
sundur úr hor.
et3 Búa á íslandi en kvarta
stöðugt undan veðrinu.
et3 Kvarta undan verðlaginu,
en kaupa alltaf „merkja-
vörur".
Æ3 Þykjast vera bílveikir til að
fá að sitja í framsætinu.
et3 Eru með ofnæmi fyrir hinu
og þessu en aðeins ef þeir
vita af viðkomandi ofnæm-
isvaldi.
et3 Geta ekki mætt í skólann
eða vinnuna á réttum
tíma, en eru alltaf tíman-
lega fyrir framan uppá-
halds sjónvarpsþáttinn.
et3 Geta ekki mætt í skólann
eða vinnuna á réttum
tíma, en eru alltaf fyrstir
út.
Æ3 Finnst Blóðbankinn vinna
þarft verk en hafa aldrei
gefið blóð.
Leiðindapúkar eru „hættir" að reykja og
sníkja alltaf sígarettur hjá öðrum.
Viltu uerða leiðíndapúkiP
Nokkrar auðveldar og fljótlegar
aðferðir
éQ Syngdu þá hástöfum með
þegar þú ferð í óperuna.
éQ Biddu um aukasæti á veit-
ingahúsinu fyrir ímyndaða
vininn þinn.
éQ Endaðu aldrei setningu
heldur láttu fólk halda að
það sé að koma meira.
«Q Ekki mynda augnsamband
við fólk.
éQ Ekki slíta augnsambandi
við fólk.
éQ Taktu fyrir eyrun á þér
þegar þú nennir ekki að
tala meira við einhvern.
éQ Vertu sífellt með frasa á
takteinum.....Alltaf í bolt-
anum?“ „Ókídókí, sör,“
...innan gæsalappa" og
gerðu merki með vfsi-
fingri og löngutöng
beggja handa. „Með
hliðsjón af og með til-
liti til ..." o.s.frv.
«Q Ef þú sérð að einhver
er að telja, reyndu þá
að trufla viðkomandi með
því að raula tölur af
handahófi ... 15, 76, 2,
885 o.s.frv.
Reyndu að panta
þér tíma hjá lækni eða
einhverjum 31. sept-
ember.
iÍ3 Bjóddu fjölda
manns með þér f partí
heima hjá öðrum.
«Í3 Borgaðu með
smápeningum á veit-
ingahúsinu.
«Q Lestu yfir öxlina á
einhverjum og tautaðu
fyrirsagnirnar fyrir
munni þér.
éQ Spurðu fólk
hvers kyns það
sé.
éQ Láttu jóla-
Ijósin loga ut-
andyra þangað
til í september.
isQ Ogaðlokum...
yndisleg dægradvöl:
éQ Sittu á gang-
stéttinni fyrir framan húsið
þitt og beindu hár-
þurrkunni að bílum sem
eiga leið um og athugaðu
hvort þeir hægi á sér.
Að ergja vinnufélagana
r.Q Heimtaðu að netfangið
þitt í vinnunni verði gyðj-
an_flotta@vinnan.is.
ií3 Laumaðu koffínlausu kaffi
í kaffivélina í u.þ.b. þrjár
vikur og þegar allir eru
orðnir vanir því breyttu þá
yfir í rótsterkt espressó.
Kallaðu alla pennana
þína nöfnum og
segðu að
fundur-
inn
geti ekki byrjað fyrr en þú
hefur fullvissað þig um að
allir „vinirnir" séu við-
staddir!
éQ Þegar þú ert beðin/n um
að gera eitthvað spurðu þá
alltaf hvort viðkomandi
vilji franskar með.
éQ Heftaðu öll skjöl saman í
miðjunni.
éQ Kallaðu samstarfsfélaga
þína asnalegum gælunöfn-
um. „Frábært hjá þér,
Snabbsi (Snæbjörn)." Ég
er sammála þér, Góli
(Ingólfur)."
>£3 Spurðu samstarfsmenn
þína undarlegra spurninga
og skrifaðu svör þeirra nið-
ur í minnisbók.
éQ Settu flugnanet yfir skrif-
borðið þitt.
£3 Boðaðu alla fundi kl.
16:14.
éQ Sendu samstarfsfélögum
þínum tölvupóst um allar
ferðir þínar, „Ég verð á
salerninu ef einhver þarf
að ná í mig.“
éQ Svaraðu ÖLLUM spurning-
um með „ókei“.
éQ Settu ruslafötuna upp á
skrifborð hjá þér og
merktu hana „Áríðandi
verkefni".
éQ Þú skalt þykjast vera ofsa-
hrædd/ur við heftara.
bQ Stilltu upp myndum af
frægum barnastjörnum á
skrifborðið þitt og láttu
líta út fyrir að þetta séu
börnin þín.
Þú
skalt
þykjast
vera ofsa-
hrædd/ur við
heftara.
Byggt á Internetinu, frásögnum vina
og kunningja og eigin reynslu.
Vikan 51