Vikan


Vikan - 28.11.2000, Blaðsíða 16

Vikan - 28.11.2000, Blaðsíða 16
Texti: Steingerður Steinarsdó11 i r I Grettissögu er okkur sagt að ekki fari alltaf saman gæfa og gjörvi- leiki, enda sannaðist það svo um munaði á aðalsöguhetjunni en þeir eru fleiri en Grettir sem ekki hafa fengið notið hæfileika sinna sem skyldi. John DeLorean var mikill lífs- nautnamaður. Hann var bílahönnuður í bílaborg- inni Detroit og naut ein- stakrar velgegni því bíl- ar hans þóttu framúr- stefnulegir, sportlegir og sérlega fallegir. DeLore- an sló í gegn í bílaiðn- aðinum á sjötta ára- tugnum og mikið var um hann skrifað í fjöl- miðlum og þá ekki síst hjónabönd hans og fyr- Mistækur hæfileikamaður John DeLorean var sonur verkamanns í Ford verk- smiðjunum og ólst upp í austurhluta Detroit sem er ófínni hluti borgarinnar. Hann stundaði nám í Detroit Lawrence tækniskólanum og fékk að námi loknu vinnu sem verkfræðingur hjá Chrysler. Það- an fór hann til General Motors og var meðal hönnuða Pontiac GTO bílsins sem varð feykilega vinsæll. Bíllinn var kallaður „vöðvabílinn" og vélin var sér- lega aflmikil. John vartekinn að reskjast þegar Pontiac bíllinn sló í gegn og velgengnin steig honum illilegatil höfuðs. Hann skildi við konu sína sem hann hafði verið giftur í fimmtán ár, fékk sér andlitslyftingu og gift- ist fyrirsætu sem var tuttugu árum yngri. Hjónabandið ent- istíþrjúárog eft- ir síðari skilnað- inn var hann orð- aður við konur eins og Candice Bergen og Ursulu Andress. Hann kynntist þófljótt, Cristinu Ferrare, tuttugu og tveggja ára fyrir- (Back to the Future) með þeim Michael J. Fox og Christopher Lloyd í aðalhlutverkum muna vafalaust eftir bílnum glæsilega semflutti þáfélagaframogaft- ur í tíma en það var einmitt í DeLorean bíl. Verksmiðjunum lokað DeLorean hugðist spara í framleiðslukostnaði bílsins og setti því upp verksmiðjur á Norður-írlandi. Breska ríkis- stjórnin hafði á þeim tíma feng- ið óvænt og fljótlæknað sam- viskubityfir efnahagsástandinu í landinu og styrkti DeLorean með hundrað milljón dollara framlagi. Bílarnirtóku að renna af færibandinu á götuna árið 1981. Kreppa ríkti á Vestur- löndum á þeim tíma og bílarnir seldust ekkert, enda kostaði stykkið 26.000 dollara. Bílarnir hafa þó sennilega örugglega verið vel peninganna virði því vel var vandað til framleiðslunn- ar en þetta var einfaldlega ekki tími glæsilegra, rándýrra sport- bíla. Almenningur keypti ekki annað en ódýra, sparneytna og litla fjölskyldubíla. Árið eftir voru þúsundir DeLorean bíla óhreyfðir á bíla- sölum um allan heim og breska ríkisstjórn- in ákvað að loka verk- DeLorean og kona hans Crist- ina meðan allt lék í lyndi. irsætna sem voru yfir- leitt helmingi yngri en hann. En síðan syrti í álinn og þetta fyrrum óskabarn hamingjunnar var orðið sakborningur í umfangsmiklu saka- máli. ' \ ™ •/ 1 \ -r^p DeLorean bíl- arnir hrönnuð- ust upp á bíla- sölum því þeir voru svo dýrir að enginn vildi kaupa þá. sætu og giftist henni. Árið 1973 hætti hann hjá General Motors og ákvað að stofna eigið fyrirtæki og setja á markað nýjan sportbíl sem átti að taka öllum öðrum fram. DeLorean bíllinn frægi hafði gylltar hurðirsem opnuðust upp en ekki út og yfirbyggingin öll var úr ryðfríu stáli. Allirsem sáu myndina Aftur til framtíðar smiðjunum. Aðeins örfáum klukkustundum eftir að ríkis- stjórnin gaf út þá yfirlýsingu 19. október 1982 var DeLorean tek- inn fastur í Los Angeles sakað- ur um að hafa reynt að selja rúmlega 80 kgaf kókaíni. Hugs- anlega var þetta örvæntingarfull tilraun DeLoreans til að bjarga fyrirtæki sínu en samkvæmt lög- regluskýrslum hafði bílafram- leiðandinn haft samband við fyrrum nágranna sinn og beðið hann að aðstoða sig við að koma á viðskiptum við fíkniefnasala þar sem hann hefði undir hönd- um mikið magn af kókaíni sem hann þyrfti að koma í umferð. Nágranninn hafði samband við FBI og þeir fylgdust með og tóku DeLorean þegar hann hitti lögreglumennina sem þóttust vera kaupendur. DeLorean kvaðst hafa verið leiddur í gildru. Hann bar að fíkniefna- smyglarar hefðu neytt sig til að taka þátt í viðskiptum sínum með því að hóta að drepa fjöl- skyldu hans. Sá framburður fór fyrir lítið þegar sýnt var í sjón- varpsþættinum 60 mínútur bút- ur úr myndbandinu sem tekið var af lögreglunni meðan á við- skiptafundinum stóð þar sem DeLorean heldur uppi einum kókaínpakkanum og segir: „Þetta er betra en gull.“ Kvið- dómur sýknaði hann samt sem áður. Cristina yfirgaf hann ogtók börn þeirra tvö með sér og skömmu síðar var hann aftur handtekinn og nú fyrir fjársvik en sagt var að hann hefði fals- að bókhald og lagt peninga í fyr- irtæki á Panama sem hann tók út úr rekstri eigin fyrirtækis. Árið 1987 var hann tekin til gjaldþrotaskipta og dæmdur til að greiða skuldunautum sínum 9 milljónir dollara en skuldir hans námu þrisvar sinnum hærri upphæð en það. í mars síðast- liðnum varhann svo borinn út af heimili sínu í New Jersey þegar það var tekið fjárnámi upp í skuldir. Kaldhæðnislegt þegar vinsældir bflsins hans eru sem aldrei fyrr. Margir safnarar eru tilbúnirað borgastjarnfræðileg- ar upphæðir fyrir DeLorean bíl í þokkalegu ástandi og á vefnum eru ótal síður þar sem bílaá- hugamenn skiptast á upplýsing- um um þá fáu DeLorean bíla sem enn eru til. 16 Vikan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.