Vikan


Vikan - 28.11.2000, Page 19

Vikan - 28.11.2000, Page 19
• Þrífðu krukkuna vel og þurrk- aðu. • Penslaðu eina umferð af Glass&Tile-medium á krukk- una með góðum pensli. • Láttu þorna vel (í 30-90 mín- útur eða lengur). • „Dúmpaðu" málningu á krukkuna, 3-4 umferðir, og láttu þorna vel á milli. Gott er að nota pottasvamp. • Taktu föndurkalkipappír sem smitar ekki og límdu á krukk- una. • Leggðu sniðið (eða límdu) ofan á kalkipappírinn og farðu ofan í mynstrið með penna. • Fjarlægðu kalkipappírinn og sniðið. • Notaðu góða pensla og mál- aðu inn í mynstrið. • Láttu þorna. • Notaðu góða pensla, t.d. skápensla, og bleyttu þá vel í Floating-medium gelinu. Stingdu oddinum (lengri end- anum ef þú notar skápensil) í litinn sem skyggja á með (t.d. Burnt Umber frá FolkArt). • Notaðu smjörpappír eða flís (eða vaxhúðaðan pappadisk) og penslaðu upp og niður og náðu þér í Floating af og til. Með þessu blandar þú gelinu og litnum í penslinum þannig að hann verði dökkur á öðr- um endanum (hárunum) og fari svo mjúklega yfir í glært. • Skyggðu mynstrið með þess- um pensli. Náðu þér í meira af gelinu og litnum eftir þörfum. Þetta er í rauninni það eina í sambandi við krukkumálunina sem þarf að æfa sig í. • Þegar búið er að skyggja er tekin málning (t.d. dökkbrún) og hún aðeins þynnt með vatni. • Notaðu gamlan tannbursta og þynnta málningu til þess að slétta (frussa) yfir krukkuna. Gott er að byrja að ,,frussa“ í pappírsþurrku því oft vill koma svolítið mikið fyrst. • Ef til vill má svo pensla með málningu (þynntri eða óþynntri) efst á krukkuna og kannski aðeins á botninn til þess að brjóta upp litinn. • Þegar allt er orðið þurrt er lakkað yfir með Satin Varnis lakkinu frá FolkArt eða Delta. Venjulega nægir ein umferð og gott er að nota pensil með góðum hárum (góðum gervi- hárum, t.d. úr gulltaklon eða næloni). Notið helst ekki ekta hár eða mjög grófan pensil (alls ekki svamppensil.) Athugið að krukkur málaðar með þessari aðferð þola ekki þvott, en það er auðvelt að þrífa þær að utan með vel undinni tusku. Eins má þvo þær að inn- an, en gætið þess að rennbleyta þær ekki að utan. Kerti Efni: kerti Candle & Soap (frá Delta) svampur góðir penslar (flatir, skáskornir, línupensill og mosapensill) akrýllitir spritt Floating medium (frá FolkArt) tannbursti Aðferð: • Nuddið kertið vel með spritti, hægt er að nota pappírs- þurrku. • Blandið til helminga lit og Candle & Soap. • Berið blandaða litinn vel á allt kertið með svampi, farið eina til þrjár umferðir og lát- ið þorna vel. • Límið föndurkalkipappír var- lega á kertið. • Límið sniðið ofan á. • Farið varlega ofan í sniðið með blýanti eða penna, fjar- lægið síðan sniðið og kalki- pappírinn. • Athugið að Candle and Soap er blandað til helminga út í alla málningu sem notuð er hér eftir. • Grunnið í eftirfarandi litum: snjókarl með Ijósgráum lit skó með svörtum lit poka með antíkrauðum lit. • Skyggið með eftirfarandi lit- um (notið skápensil og Float- ing): snjókarl með medium- gray, tölur og poka með dökk- brúnum lit. • „Dúmpið" með mosapensli (Scruffy) snjóhvítum lit á snjókarlinn. Byrjið að „dúrnpa" þar sem hann á að vera Ijósastur og látið deyja út þar sem hann er mest skyggð- ur. Látið þorna vel. • Leggið kalkipappírinn og sniðið aftur á snjókarlinn og teiknið tölur, nef og munn. • Málið nef með orange, tölur með antíkrauðum og munn með svörtum lit. • Skyggið nef og tölur með dökkbrúnum lit. • Gerið glampa á skó með hvít- um lit, notið skápensil og Floating. • Málið skóspennur í antíkgul- um lit og gerið glampa á þær með hvítum lit. Notið línupensil. • Snyrtið myndina til eftir smekk. ,,Frussið" yfir allt kertið með hvítum lit. Notið tannbursta. Þegarallt erorð- ið þurrt er ,,lakkað“ yfir allt kertið með Candle and Soap. Vikan 19

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.