Vikan - 15.02.1973, Síða 12
SKELFING
í SKAFTÁRELDI
h.ftir aö eldgjáin opnaðist á Ileimaey,
ógnaði lifi ibúanna og eyðilagði blómlega byggö,
heiur hugurinn eðlilega hvarflað aftur i timann til
náttúi uhamiara fyrr á öldum. Geigvaenlegastar voru skelfingar
Skaftgreldanha 1783. Af afleiðingum þéirra dóu
h landi árið 1784 4289 menn af ýmsum meinsemdum,
og árið eftir um 1000 menn.
%'WWWÆ
Þá hrundi og fénaður landsmanna niður.
— I „Sögum af Skaftáreldi” eftir Jón I’rausta
ei sagt irá þessum atburðum og eru allur staðreyndir-
sannleikanum samkvæmt, þótt að öðru leyti sé um skáldsöguíú'ð i
llér á eftii- fer kaíli úr síðára bindinu, „Sigri lifsins”.
[„.aimennt lýst á áhrifámikinn hátt
að séra Jóni Steingrimssyni og
'lans i hörmimguíium
KAFLI tJR
„SÖGUM AF SKAFTARELDI”
EFTIR JÓN TRAUSTA
Nú sjáum við austur að Skaftáreldi.
Eldroðinn er nú að mestu horfinn af
loftinu og jöklarnir aftur orðnir
skinandi hvitir. En loftið er enn þá
þrungið af einhverri seigri, bláleitri
móðu og sólskinið er dauft.
Á landinu kring um Siðufjöllin
liggur — langt til að sjá — eins og
breiða af bláhvitri ull, — hvit þykk
þoka, sem svifur til og frá fyrir
andvaranum. Sumstaðar belgist hún
upp i himinháa bólstra, svo háa og
mikla fyrirferðar, að fjöllin verða að
engu i samanburði við þá. Annars-
staðar liggur hún sem jöfn, iðandi
ábreiða. En hvar sem i gegnum hana
grisjar, sjer i svört hraunin —
kol—biksvarta brunabingina.
Austan við þetta alt saman stendur
•eykjarstólpi mikill upp úr Vatnajökli
sunnanverðum, norður af Skeiðarár-
jökli, og Skeiðarársandur er
mest—allur undir vatni.
Alt landið umhverfis eldstöðvarnar
er svart, — sviðið, brent og brælt og
þakið ösku. Á heiðum uppi er ösku-
lagið 6 þumlungar á þykt. Niðri i
bygðum er það þynnra og þar er ný-
græðingurinn byrjaður að gægjast
upp i gegnum það. Hann gægist
undur gætilega og gáir til veðurs. Svo
teygir hann úr sjer og ber sig
bor ginmannlega.
Enn stiga hinir miklu mekkir til og
frá upp úr hraununum, og enn
hrekjast vötnin þar vegalaus.
Helmingurinn af Skaftá kemst ekki
fyrir i rennu þeirri, er hún hefir
grafið sjer austur með Siðunni. Hitt
flóir út um alt hraunið og leitar þar
framrásar. Alstaðar blika heit,
gufandi lón ofan á svörtu hrauninu.
Enginn veit hvar eða hvenær þetta
Q
Z
><
s
12 VIKAN 7. TBL.