Vikan - 15.02.1973, Blaðsíða 47
leitaði hann þegar á fund vel-
gjörðarmanns síns.
Ollenburg tók honum blíð-
lega og lánaði honum þegar
Volkswagen, sem hann átti, því
að hann vissi að Kron gat sízt
af öllu bíllaus verið. Þegar hér
var komið, var orðið erfitt fyr-
ir Kron að fá arðbæra vinnu,
svo að hann tók til við innbrot
á ný, að þessu sinni með vit-
und og án mótmæla Ollen-
burgs. Kron var nú orðinn svo
afður í faginu að hann náði
hvað eftir annað góðum feng,
og mestum hluta þess kom
hann í geymslu hjá vini sín-
um Ollenburg. En Ollenburg
eyddi því fjármagni jafnharð-
an í spilavítum í Baden-Baden,
Bad Neuenahr, Bad Wiessee og
Westerland.
Meðal þeirra fyrirtækja, sem
Kron heir.sótti árið 1971, var
vöruhúsið SB-mehr-Wert. Þar
braut hann upp peningaskáp,
er reyndist innihalda fimmtán
þúsund mörk. En þá brást hon-
um heldur betur bogalistin.
Undir þessum skáp var annar,
sem innihélt hvorki meira né
minna en fjögur hundruð þús-
utid mörk, og Kron sást yfir
hann, Ollenburg til mikillar
gremju. „Hefði hann tekið þessi
fjögur hundruð þúsund, hefð-
um við aldrei þurft að nema
herra Albrecht á brott,“ sagði
hann síðar.
Dag einn kom Ollenburg að
máli við Diamantfenpaul og
mælti: „Nú á tímum er von-
laust að verða ríkur á innbrot-
nm. Við verðum að ræna ein-
hverjum.“ Niðurstaðan varð
svo mannrán það, sem hér um
ræðir.
Þeir kumpánar skiptust á um
að vera á verði þannig, að Oll-
enburg hafði gætur á fangan-
um að degi til, en Kron um
nætur. Þegar Albrecht hafði
verið tvo daga í vörzlu þeirra,
létu þeir hann skrifa konu
sinni annað bréf, þar sem hann
fullvissaði hana um að sér liði
prýðilega. Og það var mála
sannast að hann sætti ekki
beint illri meðferð, þar sem
hann lá í rekkju Ollenburgs,
þar sem rúmfötin voru blá og
sló á rósaroða. En hreyfingum
hans voru heldur þröng tak-
mörk sett. Á milli þess að hann
var látinn skrifa bréf lá hann
lengst af út af, bundinn á fót-
um og með límt fyrir augu.
Þeir Ollenburg og Kron
bollalögðu nú um, hversu mik-
ils lausnarfjár þeir ættu að
krefjast af fanga sínum. Al-
brecht var aðaleigandi stór-
fyrirtækisins Albrecht KG
Múhlheim/Herten sem hafði
ársumsetningu upp á hálfan
annan milljarð marka. Ollen-
burg taldi enga frekju að mæl-
ast til þess að slíkur hátekju-
maður greiddi fimmtán millj-
ónir marka. Kron mótmælti því
ekki, og sem hann um nætur
var á verði yfir fanganum,
herbergisins, lét hann sig
liggjandi í bedda í fremri hluta
dreyma marga drauma um
framtíðina. Hann ætlaði að
kaupa drengjunum sínum öll-
um fínustu sportbíla — honum
bótti mjög vænt um drengina
og heimsótti þá hvenær sem
þvi ekki að reyna....
SLENDERTONE
Slendertone þjálfar slöppu vöðvana
með rafbylgjum.
Slendertone grennir.
Slendertone fegrar húðina.
Reynið hið frábæra. grenningar- og
vöðvauppbyggingatæki.
6 eða 10 skipta meðferðir.
Að sjálfsögðu eru okkar rómuðu nudd- og
gufutímar í fullum gangi, jafnt fyrir
konur sem karla.
Allar upplýsingar í síma 23131.
NUDD- OG GUFUBAÐSTOFAN HÓTEL SÖGU.
___________________________________®
7. TBL. VIKAN 47