Vikan - 19.12.1957, Page 42
Það var kvöld í Nasaret
Framhald af bls. 39.
regluþjónninn, sem hafði ruðst gegnum hópinn, án þess að
eftir honum væri tekið. Komið með mér á lögreglustöðina og
þar getum við fengið einhverja skýringu á þessu.
— Ég læt slíkt ekki viðgangast, sagði rauðhærði maðurinn.
Þér vitið ekki við hvern þér eigið.
— Takið þessa tvo, sagði lögregluþjónninn. Menn hans komu
hlaupandi út úr bíl með rimlagluggum, viku sér undan grjót-
kasti sem á þeim dundi, hikuðu og tóku sér svo vopn í hönd.
Þetta var að verða að upphlaupi. Og það hefði vafalaust endað
með götubardaga, ef þremur stórum fagurgljáandi bílum hefði
ekki skotið upp í sömu andrá. Út úr þeim stigu þrír menn,
klæddir mjúkum skinnpelsum, og eftir stuttar umræður báðu
þeir lögregluþjónana um að sleppa Jósep og rauðhærða mann-
inum. Að baki þeirra stóðu bílstjóramir þeirra og héldu á fall-
egum pökkum með gljáandi silkiborðum.
— Ef þið takið ábyrgðina á þeim, þá verður svo að vera,
sagði lögregluþjónninn önugur. Ég tek kæruna aftur.
— Hér er það ekki ábyrgðin sem máli skiptir, heldur heil-
brigð skynsemi, sagði einn mannanna. Svo sneri hann sér að
Jósep og fékk homnn með virðingu aflangan pakka. — Leyf-
ist mér að færa föðurnum nokkra vindla.
— Og móðurinni ofurlítið kölnarvatn, sagði annar og rétti
honum glas.
Sá þriðji dró upp úr innri brjóstvasanum blokk, reif út úr
henni blað og skrifaði á það nokkrar línur: — Mér datt í hug
að ávísun ....
Fólkið hafði vikið ofuriítið frá og nú skalf það af eftir-
væntingu og fögnuði, eins og það ætti von á einhverjum heilla-
vænlegum tíðindum á hverri stundu. Jósep vissi ekki hvað hann
átti að segja. Hann velti því fyrir sér hvers konar undarlegt
happdrætti þetta gæti verið, sem færði honum allar þessar gjafir.
Þá opnuðust dyrnar á fæðingarbragganum og kona með hvítan
höfuðbúnað kom út. Hún stanzaði á þrepskildinum og virti undr-
andi fyrir sér þennan óvenjulega mannsöfnuð. Þegar hún kom
auga á Jósep, kallaði hún hátt:
— Það var dóttir.
Það ljómaði bros á andliti Jóseps, þegar hann sneri sér að
fólkinu. — Loksins, sagði hann.
Gleðileg jól!
HÚSGÖGIM
GÓLFTEPPI
LJÓSATÆKI allskonar
FINNSKUR kristall
Kristján Siggeirsson h.f.
Laugavcg 13 — Stmar 13879 & 17172
ReyJcjavtk
FYRIR
Fyrir herra:
KARLMANNAFÖT
DRENGJAFÖT
FRAKKAR
HATTAR
SKYRTUR
BINDI
NÆRFÖT
SOKKAR
PEYSUR
VESTI
NÁTTFÖT o. fl.
JOLIIXI!
Fyrir dömur:
DÖMUKÁPUR
DRAGTIR
PILS
HANSKAR
NYLON UNDIRFATNAÐUR
SLÆÐUR
SOKKAR
PEYSUR
ILMVÖTN
HÚFUR
STÖK PILS o. fl.
KLÆÐAVERZLUN ANDRÉSAR ANDRÉSSONAR H.F.
LAUGAVEGI 1 - SÍMI 1B25G
42
VIKAN