Menntamál - 01.10.1933, Blaðsíða 7
MENNTAMÁL
103
hörmulégt, a'Ö jafn-fámenn, fátæk og umkomulítil þjóð og
viiS erum, skuli ey'öa jafnmikilli orku í ófriö og erjur og flokka-
drátt. Vifi höfum sannarlega nóga öröugleika viö aö stríöa
sameiginlega, þó aö við eyðum ekki bestu kröftunum i það að
berjast hver við annan.
Og eins og eg' tel þaö hlutverk kennarastéttarinnar íslensku
að styðja en ekki fella allt það, sem til góðs og gagns má
verða í trúmálum, eins tel eg það hlutverk hennar að sani-
■eina en ekki sundra í stjórnmálum, ])ví að sameinaðir stönd-
um vér, en sundraðir föllum vér. Og þess vildi eg óska um
ykkur, sem nú farið héðan út í lífsbaráttuna, að þið færuð
með þá heitstrenging í hjarta, að skipa ykkur alltaf í þann
hó])inn, sem vill styðja og efla hvern góðan málstað, og tengja
saman dreifða krafta þessarar fámennu þjóðar. Þess hefir oft
verið þörf, en aldrei meiri en nú.
Frcystcinn Gitnnarssou.