Menntamál - 01.10.1933, Blaðsíða 29
MENNTAMÁL
125
Á tveira fundum, seni ég var á í héraðinu og skólamáliÖ
var til umrætSu, kom fram óvenjulega glöggur skilningur á
hlutverki skólanna og þeirri nauðsyn, aÖ leggja sem mest í
sölur fyrir æskuna, — framtíð héraosins. Skólanefndir l>eggja
hreppanna og héraðsbúar leggjast á eitt um aÖ hrinda þessu
máli í framkvæmd.
Einn þefssara áhugamanna, Jón H. Fjalldal, Melgrasey'ri,
hefir stofnað fræðslusjóð fyrir Nauteyrarhrepp, til minning-
ar um komi sína, frú Jónínu Fjalldal. Var hún framúrskar-
andi áhugasöm um fræÖslumál, svo sem lesendum „Mennta-
mála“ mun kunnugt. Hér fer á eftir skipulagsskrá sjóðsins:
S K I P U L A G S S K R Á
fyrir Fræðslusjóð Nauteyrarhrepps.
1. gr. — SjóÖurinn heitir „FræðslusjóÖur Nauteyrarhrepps”.
StofnféÖ, kr. 500.00 — fimm hundruð krónur —. er gefið á
dánardegi frú Jónínu Kristjánsdóttur Fjalldal, til minningar
um hana.
2. gr. •—• Sjóðinn má auka með gjöfum. áheitum og öðru.
er íbúar Nauteyrarhrepþs kynnu aÖ efla hann meÖ.
3. gr. — Sjóðinn skal ávaxta i Söfnunarsjóði Islands, þar
til Nauteyrarhreppur hefir eignast sinn eigin sparisjóÖ, en
þá skal sjóðurinn ávaxtast þar.
4. gr. —• Takmark sjóðsins á aÖ vera það að bera uppi all-
an kostnaö viÖ barna- og unglingafræðslu i Nauteyrarhreppi
af hálfu foreldra og hrepjrsfélagsins, að þeim hluta, sem rík-
ið ekki kostar fræðsluna.
5. gr. — Höfuðstól sjóðsins má aldrei skerða. Allir vextir
leggist við höfuðstólinn, þar til hann er orðinn kr. 5000-00 —
fimm þúsund krónur, — úr því má vcrja einurn þriÖja vaxt-
anna til styrktar fátækum börnum á skólaaldri. Þegar sjóður-
inn er orðinn kr. 20 þús., má verja % af vöxtum hans í
sama skyni, en 's leggist við höfuðstólinn, uns sjóðurinn er
kr. 50.000. Úr |)ví gangi J/? vaxtanna til barna- og unglinga-