Menntamál - 01.10.1933, Blaðsíða 28
124
M ENNTAMÁL
skemmtiför út í Svárfaöardal og skoSuöu þar hinn nýja
barnaskóla Dalvíkinga, seni nú er í smíöum, hið ju'ýöilegasta
hús, og sáu einnig sundskálann fræga o. fl., er l)er vott um
menningu Svarfdæla.
Þessi námskeið bæöi hefir Akureyrarbær styrkt með ioo
kr. og léö barnaskólann ókeypis, og þetta síðara námskeið
styrkti einnig ríkissjóður ofurlitið, svo að kennslugjaldið varð
ekki hátt. — Þakka eg svo, fyrir íélagsins og kennaranna
hönd, öllum þeim, er gerðu það mögulegt, að þessir norð-
lensku kennarar gátu átt jiessa ógleymanlega daga hér, sér
til hressingar og lærdóms. Má það nú Ijóst vera, að þeir
verðskulda það, að fræðslumálastjórnin sjálf komi hér á
víðtæku námskeiði fyrir kennara, svo fljótt sem verða má.
Sn. S.
Frá Isafjarðarfijúiii.
Ahugi og skilningur manna á fræðslumálum er allmisjafn.
Til skamms tíma voru kröfur þjóðarinnar í þeim efnum mjög
litlar, að minnsta kosti hvað allan almenning snerti. Þetta er
að breytast. Það má heita viðurkennt, að það sé engu siður
nauðsyn að vanda uppeldi fólksins heldur en búpeningsins.
Þó vantar allmjög á, að svo sé i framkvæmd í einstökum
byggðarlögum.
Á síðastliðnu vori hafði ég tækifæri til að kynnast hug manna
í þessurn málum á nokkrum stöðum í landinu, þar á meðal
við ísafjarðardjúp. Er þar áhugi mikill fyrir ])ví, að reisa
starfs- og skólaheimili, þegar á næsta sumri, í Reykjanesi.
Eru þar skilyrði góð, sundlaug og nægur hverahiti. Þar er
nú starfrækt gróðrarhús og ýmiskonar ræktun matjurta.
Um skólann eru sameinaðir tveir hreppar^. Réýkjafjarðar-
hreppur og Nauteyrarhreppur.