Menntamál - 01.10.1933, Blaðsíða 8
104
MENNTAMÁL
FræBslumál iveitaima.
Ekki verður um það deilt,
að framfarir síðustu árá hafa
verið allstórstígar og fært oss.
nokkuð í áttina lii þeirra
þjóða, sem ekkert spara lil að
færa sér í nyt aukna tækni
og þekkingu. Þessa gætir þó
einkum í verklegum efnum,.
og þótt við séum að visu
skammt komnir, þá er fram-
farahugurinn vakinn og nokk-
uð almennur skilningur á því,
að þýðingarlaust er að sporna-
á móti þeim menningarlireyf-
ingum, sem byggjast á staðreyndum eða athugun og
reynslu kynslóðanna. Um þetta hera og vitni fram-
kvæmdir síðustu ára, bæði lil sjávar og sveila. Fisk-
veiðar vorar eru reknar með nýtískusniði. I landbún-
aði licfir verió liafist handa um ræktun, byggingar og.
notkun véla, vegir og sími lagðir um landið, hrýr
byggðar, skólar reistir.
Tilraunir hafa og verið gerðar með ýnisar nýjar
greinar i húnaði og sannað, að þær eiga liér framtíð
fyrir höndum og hafa mikla þýðingu, vegna aukinnar
atvinnu, fjölbreylni í framleiðslu og nýting náttúru-
gæða. Má ])ar lil nefna ræktun ýmissa matjurta, ali-
fuglarækt, fiskiklak og loðdýrarækt. Þá má og nefna
aukinn áhuga á heimilisiðnaði, liíhýlaprýði, hæði inn-
an bæjar og utan, svo sem smekklegri og þjóðlegri
gerð klæða og húsbúnaðar, blóma- og trjárækt heima
við bæi.
Aðaláteinn Eiríksson.