Menntamál - 01.10.1933, Page 22
MENNTAMÁL
n8
lilílar. Það er að vísu allmikill galli, að þurfa að nota
skólastofu fyrir funda- og skemmtanastað. Yrði það
að vera í fullu samráði við forstöðumann iieimilisins,
enda mætti þá síðar byggja sérstaklega yfir þessa starf-
semi, ef nauðsyn kreföi.
Áætlaður kostnaður við byggingu þessa húss er 27
þúsund krónur. Þar af er aðkeypt efni, samkvæmt út-
reikningi, um 14 þúsund krónur. Innlent efni og öll
vinna lö þúsund krónur. Samkvæmt lögum um heima-
vistarskóla leggur ríkið fram helming stofnkostnaðar
sem styrk. Lætur þá'nærri að styrkurinn nægi fyrir að-
keyptu cfni. Sá hlutinn, sem skólahéraðið leggur þá
til, cr innlenda efnið og öll vinnan, sem annaðlivort
yrði lögð fram af héraðsbúum með frjálsum framlög-
um, eða ]>ví yrði jafnað niður á menn eftir efnum og
ástæðum. Þó færi það aldrei svo, að béraðsbúar slyppu
alveg við bein peningaframlög. Þeir yrðu alltaf að
greiða kaup eins eða tveggja iðnlærðra manna. Sjálf-
sagl er að úvega efni milliliðalaust, eða leita lilboða í
efni og vinnu, ef ekki væri unnið i þegnskaparvinnu.
Á þann hátt mætti mikið sparast, og þá vila alllaf fyrir-
fram nokkurnveginn um kostnað.
Lögum þessum þyrfti að breyta þannig, að ríkið
legði fram allt aðkeypt efni, komið á land á næstu höfn
við skólastaðinn, og auk þess vinnu eins smiðs. Þá þyrfti
að komast á föst fjárveiting til þessara bygginga,
meiri en verið befir.
Meginliluti reksturskostnaðar fcr eftir lögum þar
um, svo sem laun kennara, Iiitun, birðing og viðhald
liússins. Kostnað við heimilishaldið, fæði barnanna og
starfsfólks og kaup |)ess, yrðu auðvitað aðstandendur
að greiða. Nú mun þvi vera þannig liáttað í ýmsum
heimavistarskólum landsins, að heimilin leggja á borð
með börnum sínum, og verður ])að því ekki eins lil-
finnanlegt, eins og ef greiða þyrfti ákveðið með hverju