Menntamál - 01.08.1961, Side 14
92
MENNTAMÁL
og eru lögfræði og viðskiptafræði saman um eina deild,
laga- og viðskiptadeild. Fastakennarar í viðskiptafræðum
hafa lengstum verið tveir, en þriðja prófessorsembættið
hefur nú verið stofnað að lögum, og auk þess starfa þar
2 dósentar. Standa lög til þess, að viðskiptadeild verði sér-
stök deild nú á næstunni, og verða þá háskóladeildirnar
sex talsins.
Á árinu 1942 var lagður grundvöllur að kennslu til B.A.
— baccalaureum artii — prófa. Samkvæmt gildandi reglu-
gerð má halda uppi kennslu í 16 kennslugreinum til B.A.-
prófa, og gætir þar mest ýmissa tungumála, fornra og
nýrra, auk greina eins og sagnfræði, landafræði, stærð-
fræði, eðlisfræði, bókasafnsfræði o. fl. 1 sambandi við
B.A.-námið, sem fer fram í skjóli heimspekideildar, má
nefna sérstakt próf í íslenzkum fræðum fyrir erlenda
stúdenta, sem stunda nám hér við háskólann. Hafa lokið
því prófi alls 7 stúdentar, þar af 4 síðustu 4 árin. Segja
má raunar, að það séu tiltölulega fáir þeirra erlendu stúd-
enta, sem hér hafa stundað nám við háskólann, sem ljúka
þessu prófi, enda eru prófkröfur miklar og því á færi
þeirra einna, sem hér geta dvalizt nokkur ár, að þreyta
þetta próf. Fer þeim erlendu stúdentum fjölgandi, sem
hér stunda nám við háskólann, og eru nú í vetur innrit-
aðir 18 erlendir stúdentar. Ýmsir þessara stúdenta stunda
námið með styrk frá íslenzka ríkinu. Er mjög ánægjulegt
að minnast þessa þáttar í starfsemi háskólans, og vissu-
lega er bæði gagn og gaman að því fyrir stúdenta og kenn-
ara að hafa þessa erlendu skólaþegna á meðal vor. —
Enn er þess að geta, að kennsla hófst í tannlæknisfræði
haustið 1945. Kenna þar einn prófessor og einn dósent og
nokkrir kennarar aðrir. Kennslan fer fram á vegum lækna-
deildar.
Með háskólalögunum nýju frá 1957 var enn bætt við
kennslu í lyfjafræði lyfsala, en jafnframt var lagður nið-
ur Lyfjafræðingaskóli fslands, sem stofnaður var með