Menntamál - 01.08.1961, Page 74
152
MBNNTAMÁL
ur að taka afleiðingunum af því og veita honum nauð-
synlega vernd.
Athugasemd þýðandans.
Margt er líkt með skyldum. Sjálfsagt kannast íslenzkir
kennarar við flest það, sem hér er drepið á. Varla hefur
geðverndardeildin í Heilsuverndarstöðinni orðið til af ein-
tómri fordild, ekki heldur starfsfræðslan né embætti hins
einmana skólasálfræðings. Mikilsvert væri, ef allir yrðu
sammála um það hér „að auka þessa starfsemi eins mikið
og fljótt og mögulegt er.“
Hitt getur verið vafasamara, hvert traust kennurum
er í reglum eins og þeim, sem drepið er á í greininni.
Sennilega fallast flestir aðilar á, þegar til kastanna kemur,
að úlfurinn megi ekki ganga laus, nema þá úlfurinn sjálfur.
Þótt takast mætti að smíða haldbæran f jötur af anda fisks-
ins, dyn kattarins, fogls hráka o. s. frv., er enn eftir að
leggja fjöturinn á, og hver vill leggja hönd sína að veði
og þiggja að launum spé hinna, sem hafa báðar sínar
heilar.
setur ?
skóli í Tammerfors.
í Tammer fors í Finnlandi eru 120.-
000 íbúar. Þar var hinn 1. október vígð-
ur nýr skóli, sem Tammerforsbúar eru
mjög stoltir af. Skólinn er skipulagður
og byggður fyrir hjálparbekki barna-
skólanna. Hann heitir Saukonpuiston
koulu og er fyrsti skóli sinnar tegundar
í Finnlandi.
Byggingin er 12.000 rúmmetrar og
kostaði ca. 115 milljónir marka. Arki-
Við sjáum hvað
Nýr
Rannveig Löve.