Menntamál - 01.08.1961, Blaðsíða 92
170
MENNTAMÁL
indum, þ. e. réttindum þeirra til að kenna í efstu þekkjum
níu ára samfellda skólans. Hún segir m. a.:
Yfirleitt mun verða krafizt adjunktsstöðu til þess að kenna í „Ung-
domsskolen''.1)
Unnt á að vera að öðlast þessa menntun með sveigjanlegu kerfi,
þannig að tengd eru próf úr kennaraskólum, háskólum eða sérkenn-
araskólum. Meginsjónarmiðið verður, að námið komi skólunum að
umtaki og gildi að sama gagni og cand. mag.-próf ásamt prófi í upp-
eldisfræði (pedagogisk eksamen), eða þá almennt kennarapróf og
tveggja ára viðbótarnám. Þetta nám á að veita adjunkts-réttindi.
Eftirfarandi kostir verða sennilega á því að öðiast kennarastöðu
í „ungdomsskolen":
a) Embættispróf af „fægri gráðu" (cand. mag.) úr heimspeki- og
sögudeild eða stærðfræði- og náttúrufræðideild, ásamt prófi í upp-
eldisfræði.
b) Kennarapróf og tvö stig í aðalnámsgrein, svarandi til tveggja
ára náms (to grunnfagsenheter eller emneeksamener).
c) Kennarapróf og eitt stig í almennri námsgrein, svarandi til eins
árs náms, og próf úr sérkennaraskóla.
d) Kennarapróf og próf eftir tveggja ára sérkennaranám hið
minnsta.
e) Kennarapróf frá kennaraskóla, sem hefur auk þess veitt eins
árs viðbótarnám (sérnám ejtir hið almenna kennaranám eða sérnárn
í og með hinni almennu kennaramenntun), og eitt stig af því tagi,
sem að framan er tafið, og svarar til eins árs hið minnsta.
f) Önnur innbyrðistengsl þeirra kosta með þremur einingum eða
stigum, sejn að framan eru taldir, og svara til þriggja ára náms hið
minnsta, ásamt prófi í uppeldisfræði.
Að því er varðar tveggja ára kennaranám stúdentanna og fjög-
urra ára kennaranámið, er það höfuðkrafa, að þetta tvenns konar
nám skuli metið að jöfnu, bæði við embættaveitingar og mat á
sjálfri menntuninni.
Það veldur nokkrum vandkvæðum, þegar leita skaf upptöku við
universitetet eða högskolan, að annar kennarahópurinn hefur stú-
dentspróf, en hinn ekki. Kennaraháskólinn í Þrándheimi veitir báð-
um hópunum jöfn réttindi til náms. Við hina háskólana og uni-
1) Ungdomsskolen á að taka yfir sjö-, átta- og níu-ára bekki eða e.
t. v. aðeins átta- og níu-ára bekki í níu ára enhetsskola. Sbr. Skofa och
Samhálfe, 7/8 hefti ’59 bls. 202. /jr. j_