Menntamál - 01.04.1965, Side 7
MENNTAMÁL
XXXVIII. 1
JAN.-APRÍL
1965
Endurskoðun íslenzka fræðslukerfisins.
Hinnr öru breytingar á þjóðfélagsháttum siðustu áratugina
hafa knúið flestar þjóðir heims til að enclurskoða stefnu
sina i frceðslumálum i þeirn tilgangi að samrœma skóla-
kerfi sín kröfum timans.
Einnig hér á landi verður vart vaxandi tilhneigingar i
þessa átt, enda verða „nýju“ frœðslulögin okkar senn tvi-
tug að aldri. Gildistaka frœðslulaganna 1. febrúar 19-17 var
merkilegur viðburður í skólasögu landsins, og sú samræm-
ing skólakerfisins, sem í þeim fólst, var mikil endurbót frá
því, sem áður var. — En frá þeim degi hefur mikið vatn
runnið til sjávar og ófátl breytzt i þjóðlífi okkar og menn-
ingu heimsins.
Þá endurskoðun fræðslukerfisins, sem væntanlega er á
nœsta leiti, hljóta kennarar og samtök þeirra að láta sig
miklu skipta. Kennurum ber, öðrum fremur, skylda til að
hugsa — og skrifa um þessi mál. Engir vita betur en þeir,
hvar skórinn kreppir, og varla eru aðrir lil þess færari að
varða veginn fram á við.
Fyrirmyndir að nýju fræðslukerfi og kennslutilhögun
verðum við að scekja lil annarra þjóða, og þá auðvitað þeirra,
sem lengst hafa náið á þessu sviði. En jafnvel þótt hagnýta
megi að verulegu leyti erlenda reynslu og rannsóknir, má
ekki gleyma hinu, að vissa þætli skólarannsókna er óhjá-
kvæmilegt að framkvæma hér heima. Ekki hefur enn verið
hafizt handa urn þetta mikilsverða verkefni, en að þvi
þarf að vinda bráðan bug.
MENNTAMÁL eru eðlilegur vcttvangur umræðna um
þetta mál og mun fúslega birta hugleiðingar kennara þar
að lútandi. Jafnfrarnt mun ritið leitast við að hynna það,
sem efst er á baugi erlendis í þessum efnurn.