Menntamál - 01.04.1965, Qupperneq 71
MENNTAMÁL
65
skrá er sniðin með ákveðna verkaskiptingu í huga milli
þeirra, er sjónvarpskennsluna liafa á liendi hverju sinni,
og bekkjarkennaranna. Yfirleitt virðist reynslan sýna, að eigi
kennslusjónvarp að ná tilgangi sínum, þarf að undirbúa
dagskrána sjálfa með góðum fyrirvara, undirbúa nemendur
í bekkjunum undir sjónvarpskennsluna og gera foreldrum
ljóst, hvernig ætlazt er til, að nemendur vinni að heima-
verkefnum eða notfæri sér vissa þætti almennrar dagskrár.
Sjónvarpskennsla þarf ekki endilega að miðast við, að nem-
endur séu í skólanum, Jregar hún fer fram.
Hin tœknilega hlið.
F.kki er hér unnt að lýsa að verulegu gagni hinni tækni-
legu hlið sjónvarps. Áður var drepið á nauðsyn Jress að hafa
fleiri en eina sjónvarpsvél við upptöku og gerður saman-
burður á kvikmyndatækni og sjónvarpstækni. Þessar mynda-
vélar eru í raun ekki annað en linsa með ákveðinni brenni-
vídd og elektrónískur hólkur, sem breytir „mynd“ Jreirri,
er linsan skilar, í rafseguliildur ljóss og skugga. Við hólk-
inn er tengdur kapall, er skilar þessum rafsegulsendingum
til sendistöðvar, er aftur sendir Jja-r á hátíðnibylgjum milli
endurvarpsskerma, eftir Jdví hvar viðtækið, sjónvarpstækið,
er staðsett. Svonefnd lokuð kerfi byggjast á Jrví, að leiðsl-
urnar frá sjónvarpsvélunum liggja alla leið að viðtækinu.
Slík kerfi eru mjög útbreidd í viðskiptaheiminum og í
iðnaði, svo og til kennslu í afmörkuðum skólaþyrpingum
og námssvæðum.
Auk hreyfaulegra myndavéla í sjónvarpssal ]>arf vélar,
sem „veitt er í“ efni af filmum og skuggamyndum, svo og
af segul-myndböndum, en þau eru mjög Jyýðingarmikil við
upptöku sjónvarpsefnis. Sjónbönd þessi eru lík hljómbönd-
um að gerð, I— 2ja Jnunlunga breið. Sérstakar rásir eru fyrir
tón og tal auk myudrásar, svo að hægt er að fella úr, breyta
og bæta inn í efni á hverri rás, óháð hinum. Spólurnar má
nota allt að fjögur þiisund sinnum og geyma að vild, flytja