Menntamál - 01.04.1965, Page 104
98
MENNTAMÁL
/ /
Utgáfu Kennaratals á Islandi lokið.
13 ára starj — Alls 41S4 awiágrip — 4103 myndir.
Stcersta mannfrceðirit og mannamyndabók, sem út.
hefnr verið gefin á íslandi.
Meira en 40 þús. Íslendingar nafngreindir í verkinn.
Sjötta og síðasta heftið.
Ut er komið sjötta og síðasta hefti Kennaratals á Islandi,
192 bls. með 853 æviágripum 474 karla og 379 kvenna.
í heftinu eru æviágrip þeirra kennara, sem eiga Þ—() að upp-
hafsstöfum, og hefst það á Þór Vilhjálmssyni og endar á
Össuri Guðbjartssyni, alls 159 æviágrip. Þá er í heftinu við-
bcetir, en í honum eru æviágrip kennara, sem af ýmsum
ástæðum hafa fallið úr eða gerzt kennarar meðan á samn-
ingu verksins stóð. Ennfremur er í heftinu skrá um kennara,
sem lokið hafa kennaraprófi árin 1962 og 1963, og að lokum
ritar ritstjóri Kennaratalsins, Ólafur Þ. Kristjánsson, eftir-
mála, greinargerð fyrir öllu verkinu. Þá fylgir og Jressu hefti
titilblað fyrir II. bindi Kennaratalsins.
í sjötta hefti eru 842 myndir (aðeins 11 myndir vantar)
auk 10 mynda af kennurum, sem tillieyra öðrum heftum, þar
af tvær teiknaðar myndir. í sjötta heftinu ber langmest á
unga fólkinu, og er það í yfirgnæfandi meirihluta. Þá er Jress
að geta, að upplýsingar í æviágripum ná aðeins til vorsins
1962.
13 ára starf.
Það var á útmánuðum árið 1952, sem I jórir menn voru
skipaðir í nefnd til þess að vinna að undirbúningi að útgáfu
Kennaratals á íslandi. Hefur nefndin starfað alla tíð síðan,