Menntamál - 01.12.1967, Side 19
MENNTAMÁL
207
i>;ið var eigi aðeins, að það félli í hlut ráðherrans að vera í
embæui, þegar söguleg þróun gerðist og áfangaskil urðu á ferli
Kennaraskólans, heldur hafði hann forgöngu um þá þróun og
þau þáttaskil. Hann ákvað að láta endurskoða löggjöfina um
Kennaraskólann og skipaði laganefndirnar báðar, sem fyrr voru
nefndar, íylgdi málinu eftir og skilaði skólanum þeirri löggjöf,
sem markað hefur þróun hans síðan, því að þáttaskil þau, sem
hér eru rakin, eru aðeins liður í framkvæmd löggjafarinnar. Og
leyfi ég mér að nefna eitt atriði enn: Ákvæði laganna um stofn-
un framhaldsdeildar og fjárveitingu til hennar á þessu ári.
Kenni ég fremur um seinlæti skólastjórnar við undirhúning
þessa máls en tómlæti kennarastéttarinnar að svo fáir sóttu um
hana, að ekki þótti fært að hefja kennslu í henni fyrr en á næsta
hausti.
Svo mikið fagnaðarefni sem Kennaraskólanum má vera stofn-
un menntadeildarinnar, tel ég að framtíð skólans eigi ekki minni
vonir í framhaldsdeildinni.
Með löggjöfinni 1963 var hlutur Æfingaskólans ákvarðaður.
Með þeim framkvæmdum, sem nú eru hafnar við smíði húss-
ins, hefur hann verið afhentur framtíðinni og þróuninni. Þakka
ég ráðherranum fyrir að hafa haft forgöngu um löggjöf, skipað
svo ráðum og tryggi fjárveitingar, að liinni 59 ára gömlu bar-
áttu er lokið.
Þegar ég settist að morgunkaffinu í gær, renndi ég auguni yfir
forsíður blaðanna, og gat þar að líta á hverri íorsíðu l'réttir í
þessum anda:
Hitinn á Venusi er 40—280 gráður og lítil von um líf á jarðar-
vísu. Eldflaugin lenti rnjúkri lendingu.
Venus er nú í 80 milljón kílómetra fjarlægð frá jörðu.
Ég get vel unað því, að ekki frýs í Rrunnmelslindinni á Venus
í vetur, en öllum þeim, sem aldir eru upp við Brunnmelslind-
ina mun reynast næsta örðugt að búast við vetri nreð þeirri
kynslóð, sem mælir hitastig fjarlægra himinhnatta af margfaldri
nákvæmni á við þá sem fyrr var beitt í lindinni við fætur manns.