Menntamál - 01.12.1967, Blaðsíða 61
MENNTAMÁL
249
og þess vænzt, að þeir veki athygli barna á aukinni slysa-
hættu í skammdeginu.
— Vert er að geta þess, að tveir sænskir skólamenn, Bo
Lennart Eriksson deildarstjóri og Per Lindbo skólastjóri,
sem skipulögðu fræðslustarfið í skólunum í Svíþjóð vegna
breytingarinnar þar, voru fengnir hingað til lands til ráðu-
neytis um þessi mál, og er áætlunin um aðgerðir hér í skól-
unum gerð í samráði við þá.
— Nú er unnið að því að velja og útbúa kennsluefni fyrir
umferðarfræðsluna. Það verður reynt að búa það svo í
hendur kennaranna, að lítinn tíma þurfi til undirbúnings
kennslustunda. Þegar fræðsluefnið verður sent til kennara,
munu því fvlgja leiðbeiningar um, hvernig nota skuli.
— Þá er gert ráð fyrir sérstökum fræðsluþáttum í út-
varpi, annars vegar leiðbeiningum til kennara um tilhög-
un vinnubragða við kennsluna og hins vegar skólaútvarpi
fyrir nemendur, þar sem tekin verða til meðferðar ákveð-
in verkefni, sem þeir verða búnir að fá í hendur. Það er
hreint ekki tilgangurinn að útvarpskennslan komi í stað
kennslu í skólunum, heldur er ætlunin að létta undir með
kennurunum.
— Jafnframt verða haldnir fundir með kennurum í kaup-
stöðum og þéttbýli, þar sem taka þarf sérstakt tillit til að-
stæðna og staðhátta. Til dæmis að taka er nauðsynlegt að
útvega kort af skólahverfum, til þess að auðvelda nemend-
um að átta sig á staðbundnum vandamálum eftir breyt-
inguna.
— Við vonumst til, að sú aukna umferðarfræðsla, sem
fram fer í skólunum í vetur, leiði til þess, að markvissara
verði unnið á þessu sviði í framtíðinni og umferðarfræðsl-
an komist í fast horf, enda er hér um að ræða ómissandi
þátt í skólastarfinu. Loks hefur nefndin í hyggju, áður en
hún lýkur störfum, að semja áætlun um umferðarfræðsl-
una í skólunum í upphafi næsta skólaárs.
— Að lokum vil ég segja það, að þetta fræðslustarf mun