Menntamál - 01.12.1968, Síða 14

Menntamál - 01.12.1968, Síða 14
240 MENNTAMÁL hefur verið gripið til þessa úrræðis, þar til nægilegt leik- skólarými verður fyrir hendi. Markmið leikskólanámsins er að þroska athyglisgáfu og ímyndunarafl barnanna, auðga málfar þeirra og tjáningar- getu og stuðla að heilbrigðri venjumyndun og félagsþroska. Mikilvægasta uppeldistækið er auðvitað leikurinn, en með frásögnum, föndri, söng og dansi kynnast þau náttúrunni og samfélaginu og eru smám saman leidd til kerfisbundinnar hópkennslu — og síðasta árið — markvisst búin undir námið í barnaskólanum. Fóstrurnar vinna eftir samræmdri námsskrá, sem mennta- málaráðuneytið setur, og ríkið hefur umsjón og eftirlit með smíði og rekstri forskólastofnananna. Vöggustofur og leik- skólarnir eru byggðir og reknir af atvinnufyrirtækjum, sér- staklega þeim, sem hafa margar konur í þjónustu sinni, eða sveitarfélögum, en fylkisráðin bera þó ábyrgð á þróun for- skólanna og greiða reksturskostnaðinn ásamt foreldrum barnanna. Viðkomandi skólayfirvöld annast aftur á móti um leik- og mámssíðdegin. Skyldunámsskólinn, sem Austur-Þjóðverjar kalla almenn- an fjöltækniskóla, er 10 ára skóli. Hann er grunnskólinn í hinu samræmda skólakerfi, og honum er ætlað að leggja grundvöllinn að hvers konar framhaldsmenntun og starfs- hæfni. Þessum 10 bekkja grunnskóla er skipti í 3 deildir: 1,—3. bekkur nefnist smábarnadeild, 4.-6. bekkur kallast barnadeild og 7.—-10. bekkur nefnist unglingadeild. I smábarnadeildinni er varið 10—12 vikustundum til móðurmálskennslu. Þar skipa talæfingar, lestur og skrift öndvegi, en auk þess er innan ramma móðurmálskennsl- unnar lögð áherzla á fræðslu um nánasta félagslegt um- hverfi barnanna, náttúruna, atvinnuhætti og samfélags- skipan.

x

Menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.