Menntamál - 01.12.1968, Síða 42
268
MENNTAMÁL
Eins og áður er getið flutti Jónas Jónsson, og fékk sara-
þykkt, árið 1930, hið merka frumvarp sitt um Háskóla
íslands. í 3. gr. frumvarpsins var gert ráð fyrir kennslu í
uppeldisvísindum. Sú grein liljóðar svo: „Landsstjórninni
heimilast að ætla húsrúm fyrir kennslu í uppeldisvísindum
í væntanlegri háskólabyggingu og að ætla svæði undir heima-
vistarhús fyrir kennaraefni á þeim hluta lóðarinnar, sem
ætlaður verður fyrir sjálfstæðar smábyggingar." Fáar laga-
setningar ltera eins vel með sér framsýni Jónasar Jónssonar,
og hve langt hann var á undan sinni samtíð. Hann skildi
betur en flestir íslenzkir stjórnmálamenn, hve mikilvægtþað
var að eiga vel menntaða kennarastétt. Því miður auðnaðist
Jónasi ekki að knýja stjórnarvöld landsins til þess að fram-
fylgja þessum lögum. En sökin liggur ekki öll lijá stjórnar-
völdunum. Ráðamenn Háskólans hafa löngum haft sára
lítinn áhuga fyrir menntun kennara. Sumir þeirra töldu
jafnvel fráleitt að veita Kennaraskólanum rétt til að útskrifa
stúdenta, þegar það mál var að síðustu leitt til lykta með
lögum um kennaramenntun árið 1963. Þó má ætla, að
sumir af forystumönnum Háskólans hafi talið þessi lög
leysa þetta „leiðinda“ kennaravandamál á viðunandi hátt og
þar með mundi kennaradraugurinn láta af þeirri hvimleiðu
áráttu að ætla sér sess innan veggja hins alráða akademiska
musteris. Suma þeirra rámaði, el: til vill, í að árið 1940 bar
Jónas Jónsson enn á ný fram frumvarp til laga um stofnun
kennaradeildar við Háskóla íslands. Telja má víst að forráða-
menn Háskólans hafi hryllt við slíkri hugmynd. Alþingi
virtist þó hala haft góða ástæðu til að meðhöndla málið á
{:>ann hátt, sem raun varð á, þ. e. a. s. stinga því undir stól.
I frumvarpi frá 1940 er lagt til, að Háskóli íslands ann-
ist menntun kennara. Gert er ráð fyrir mun strangari inn-
tökuskilyrðum í kennaradeildina en almennt var talið
hyggilegt. Um þetta mál segir Freysteinn Gunnarsson á
þessa leið í afmælisriti Kennaraskólans frá 1958, sem áður
er vitnað til: „Inntökuskilyrði í þessa deild voru allströng.