Menntamál


Menntamál - 01.04.1972, Blaðsíða 6

Menntamál - 01.04.1972, Blaðsíða 6
um um lestur barna á skyldunámsstiginu, íslenzka bókaútgáfu fyrir þessa aldursflokka, og reyna að l)enda á nokkra helztu annmarka á bókakostinum, sem á boðstólum er fyrir börn á skyldunámsaldri. Eins og við vitum, er skólabókasöfnum ætlað að veita nemendum viðbótarfræðslu í þeim greinum, sem kenndar eru í skólanum samkvæmt náms- skrá; gefa þeim kost á fræðslu í greinum utan námsskrár, sem nemendur kunna að hafa áhuga á; kenna þeim sjálfstæð vinnubrögð við gagna- söfnun og úrvinnslu og örva þá til lesturs í tóm- stundum. Til þess að skólabókasafn geti uppfyllt sínar skyldur, þarf að sjálfsögðu mikinn, fjölbreyttan og góðan bókakost. Þeir, sem bezt vita og hafa kannað þessi mál til hlítar, staðhæfa, að til þess að skólabókasafn geti þjónað tilgangi sínum, eigi það að hafa minnst 6—10.000 bækur miðað við skóla með 250 nemendur, en í stærri skólurn skuli miðað við 20 bækur á nemanda (UNESCO Standards for Library Service, Paris 1970). Við þurfum ekki að velta dæminu lengi fyrir okkur til þess að sjá, hvílíkt risaskref verður að stíga til þess, að við komumst með tærnar þangað sem þau lönd, sem lengst á veg eru kom- in, eru með hælana. Hvernig er háttað lestri og bókanotkun barna á skólaskyldualdri? Áður en lengra er haldið, er rétt að líta á lestur barna og áhrif bókarinnar á lesandann. Bækur og bókalestur koma ekki í stað lífsreynslu eða lífsins sjálfs, en þær geta auðgað lífið og aukið fjölbreytni þess. Þegar tilveran er ánægju- leg, getur bókin aukið skilning á mikilvægi vel- gengmnnar. Þegar lífið er erfitt, getur bókin veitt augnabliksfróun, þar sem menn gleyma sjálfum sér og vanda sínum og fá þá hvíld og hressingu, sem þeim er þörf, eða gefið þeim nýja innsýn í vandamál sín. Bækur hafa alla tíð verið uppspretta fróðleiks, huggunar og ánægju fyrir þá, sem kunnað hafa að nota sér þær. Þetta gildir jafnt um börn og fullorðna, jafnvel í enn ríkara mæli lijá þeim fyrrnefndu. Hver einasta bók, sem barnið les, er nokkur uppeldisleg reynsla fyrir það, einkum vegna þess live raunveruleikinn og skáldskapur- inn eru í nánum tengslum í hugarheimi þess. Ef við höfum þetta í huga, hlýtur okkur að verða ljós sú mikla ábyrgð, sem hvílir á kennurum og uppalendum og jafnvel útgefendum, að vanda til þess lestrarefnis, sem barnið hefur aðgang að. í hverju barni er meðfædd hneigð til að kanna og uppgötva umhverfi sitt. Þessi lineigð virðist vera unclirstaða námsins. Þegar barnið þroskast, víkkar sjóndeildarhringurinn og umhverfið stækkar. Vissar þarfir eru sameiginlegar börnum á flestum aldurstigum. Það eru t. d. þörfin fyrir öryggi, þörfin fyrir að vera með, — vera þátttak- andi í umhverfi sínu, þörfin fyrir ást og um- hyggju, þörfin fyrir að gera eitthvað athyglisvert og hljóta viðurkenningu, þörfin fyrir þekkingu, þörfin fyrir tilbreytingu og leik og þörfin fyrir fagurfræðilega reynslu. Barnið er í stöðugri þörf fyrir jafnvægi milli innri liamingju og öryggis meðal félaga og annarra, sem það umgengst. Bækur og lestur geta lijálpað því beint og óbeint við að öðlast þetta jafnvægi. Leikskólabarninu og fyrstu bekkjum barna- skólans er skólinn meiri hvatning fyrir andlega þróun en Iieimilið, sem það hefur dvalið í frá upphafi. í skólanum fá börnin að nota alls konar efni, liti og leikföng, tjá sig með teikningum, og þar geta þau leikið sér saman og talað saman. Börn á þessum aldri hafa ótrúlega fjölbreytt áhugamál. Þau eru t. d. forvitin um allt, sem viðvíkur farartækjum, bílum, skipum, flugvélum og loftförum. Hver hefur ekki undrazt, þegar 6—8 ára snáðar þekkja urmul af bílategundum? Þau hafa áhuga á því, sem lifir og vex, t. d. villt- um dýrum og húsdýrum, fuglum, skordýrum, blómum og trjám. Tilfinningalega séð eru þau ennþá háð fjölskyldunni og hafa því mikið yndi af frásögnum um fjölskyldulíf, hvort sem um er að ræða músafjölskyldu eða mannabörn. Á þessum alclri hafa þau einnig kynnzt umhverfi sínu nokkuð og vilja lesa eða heyra um menn MENNTAMÁL 64

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.